Fréttablaðið - 17.10.2015, Page 128
Lögbókin Grágás er merkileg heimild um afstöðu forfeðr-anna til ýmiss konar afbrota.
Í Festarþætti er rætt um hörð
viðurlög við nauðgun, sem talin var
andstyggilegur glæpur.
Frægustu frásögnina um nauðgun
er að finna í Grettissögu Ásmunds-
sonar. Grettir synti frá Drangey til
að sækja eld. Hann var kaldur og
hrakinn eftir sundið og lagði sig og
sofnaði. Dóttir bónda og vinnu-
stúlka ákváðu að kíkja á sköpulag
Grettis og lyftu af honum brekán-
inu. Þær undruðust hversu illa hann
væri vaxinn niður og hlógu hátt.
Grettir vaknaði, kvað vísu og kippti
griðkonunni upp í til sín. Hún æpti
ógurlega en Grettir kom fram vilja
sínum þrátt fyrir það. Hann sleppti
stúlkunni lausri og hló hún ekki að
Gretti og hans litla lim eftir það.
Ekki er þess getið að einhver eftir-
mál hafi orðið að þessum glæp enda
var Grettir margdæmdur siðblindur
brotamaður. Sagan lítur reyndar
brot Grettis mildum augum enda
ögraði stúlkan hetjunni með gaspri
sínu og fékk makleg málagjöld.
Grettir er ein af dáðustu hetjum
Íslendingasagna. Hann talaði í
spakmælum og var sterkari en öll
steratröll samtímans. Ógæfan elti
hann á röndum enda var blóra-
böggull í hverju máli og Grettir átti
aldrei sök á óförum sínum. Æ síðan
hafa Íslendingar haft samúð með
mönnum eins og Gretti og hampað
þeim og réttlætt brot þeirra. Þjóðin
kallaði yfir sig siðblindu banka-
manna og ófyrirleitni hollenskra
smyglara. Væri Grettir uppi nú væri
hann fastagestur í helgarútgáfum
blaðanna þar sem hann rekti raunir
sínar og kvartaði undan samhæfðu
einelti samfélagsins. Hann mundi
segja: „Ég harma nauðgunina
forðum, en hvað gat ég annað gert?
Hún kallaði þetta yfir sig.“
Hún kallaði
þetta yfir sig
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Óttars
Guðmundssonar
Bakþankar
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
Höfuðborgarsvæðið, meðallestur á
tölublað 12–80 ára. Prentmiðlakönnun
Gallup, apr.–jún. 2015
YFIRBURÐIR
Fréttablaðsins staðfestir
62,6%
29,5%
FB
L
M
BL
Allt sem þú þarft ...