Fréttablaðið - 26.11.2015, Side 4

Fréttablaðið - 26.11.2015, Side 4
 LUX snjóskafa, 75 mm, nokkrir litir. 185kr. 42310683-96 BLÅTIND rúðuvökvi í poka, 3 l, þolir -15°. 595kr. 42375935 Hálkusalt, gróft, 25 kg. 1.995kr. 54710125 TÚRBÓ sámur með dælu, 1 l. 895kr. 90500702 DOVRE langerma­ bolur eða buxur, stærðir S-XXL, frábær ullarundirfatnaður sem gerður er úr 100% merinoull, einstaklega mjúkt og þægilegt efni. 6.995kr. 93598600-4/10-4 -15° 1 l25 KG SONNECK rúðuskafa fyrir bíla. 885kr. 55629788-9 Mannbroddar, stærðir 33-48. 1.895kr. 84533870-3 GERUM KLÁRT FYRIR VETURINN Hitablásari, 2000W, 22V. 1.995kr. 65105754 12.495kr. 42310683-96 Kuldagalli, svartur eða blár, stærð S-3XL. lögreglumál Stefnt er að því að skammbyssum verði komið fyrir í sérstökum vopnakassa í lögreglu- bílum lögreglunnar á höfuðborg- arsvæðinu um miðjan desember. Þessi breyting er endir á þriggja ára þjálfunaráætlun lögreglunn- ar sem lýkur 10. desember. Eftir þann tíma verður hafist handa við að koma vopnum fyrir í bílunum. Til þessa hefur sérsveitin verið eina lögregluliðið á höfuðborgar- svæðinu með vopn á sér og eru sérsveitarmenn sérþjálfaðir til þess að nota vopn í starfi. Á síðustu árum hafa hins vegar almennir lögregluþjónar stundað skotvopnaæfingar. Brúa bið eftir sérsveitinni Að sögn Ásgeirs Þórs Ágeirssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, er til- gangurinn með breytingunum að minnka viðbragðstíma vopnaðra lögreglumanna þar sem það getur tekið sérsveit ríkislögreglustjóra nokkurn tíma að mæta á vettvang. Ásgeir hefur tekið þátt í valdbeit- ingarþjálfun embættisins. „Það er staðarlögreglan sem ber ábyrgð á fyrstu viðbrögðum í öllum málum og einnig vopna- málum. Þegar sérsveitin kemur á vettvang yfirtaka þeir hann en staðarlögreglan þarf að geta varið sig sem og borgarana,“ segir Ásgeir og bætir við að sérsveitin geti ekki gert allt ein síns liðs. Ásgeir segir að meðal breytinga í desember sé einnig að skjólbún- aði verði komið fyrir í bílunum og tekur dæmi um hjálma og skot- vesti. Þurfa aðgangskóða yfirmanns „Við erum sem sagt að fara að ljúka öðrum hring í grunnþjálfun lög- reglumanna en þjálfunin mun þó halda áfram. Þetta er ekki einungis skotvopnaþjálfun heldur einnig þjálfun í lögreglutökum og fleira.“ Lögreglubílar í höfuðborginni verða búnir byssum í desember Stefnt er að því að skammbyssum verði komið fyrir í sérstökum vopnakassa í lögreglubílum á höfuðborgar- svæðinu í desember. Minnka á viðbragðstíma. Lögregluþjónar hafa stundað skotvopnaæfingar undanfarið. Lögreglumenn vopnbúnir á flugverndaræfingum „Sama dag fór fram flugverndar æfing á Akureyrarflugvelli. Þegar slíkar æfingar eru í gangi þá eru lögreglumenn sendir vopnaðir á vettvang í þeim tilgangi að æfa sig í að fást við vopnaða einstaklinga,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, um það að sést hafi til lögregluþjóns með skammbyssu á vettvangi umferðarslyss í vikunni. „Byssan var ekki hlaðin og umræddur lögreglumaður var á æfingunni. Það varð þetta alvarlega slys og það þurfti að losa hann af æfingunni og hann var sendur á vettvang til að loka fyrir umferð,“ segir Daníel og bætir við að lögregluþjónninn hafi ekki haft tíma til þess að skila vopninu á lögreglustöðina. „Hann gat heldur ekki skilið byssuna eftir óvarða í bílnum. Í bílnum var engin læst vopnageymsla.“ Daníel segir að fyrirhugað sé að nýir lögreglubílar verði útbúnir vopnakassa. Lögregluþjónn á Akureyri mætti vopnaður með skammbyssu sér við mjöðm á þennan vettvang umferðarslyss í síðustu viku. Þegar sérsveitin kemur á vettvang yfirtaka þeir hann en staðar- lögreglan þarf að geta varið sig sem og borgarana. Ásgeir Þór Ágeirsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu Lögregluþjónar munu ekki koma til með að hafa aðgang að skammbyssunum nema þar til bær yfirmaður láti þeim í té aðgangs- kóða að vopnakassanum eftir að hann hefur verið upplýstur um málavexti. „Það liggur ekki neitt fyrir um aðrar tegundir af skotvopnum og það þyrfti að breyta reglunum til þess að hríðskotabyssur yrðu sett- ar í bílana,“ segir Ásgeir sem ekki vill geta sér til um hvort vopna- kassar verði í hverjum einum og einasta bíl embættisins. „Lög- reglumenn á Íslandi vilja áfram vera vopnlausir en vilja geta unnið störf sín vel og geta komið sjálfum sér og öðrum í þjóðfélaginu til bjargar.“ nadine@frettabladid.is Hann gat heldur ekki skilið byssuna eftir óvarða í bílnum. Í bílnum var engin læst vopnageymsla. Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra Bandaríkin Repúblikaninn Ted Cruz mælist nú með næstmest fylgi í Iowa, fyrsta ríkinu sem kosið verður í í forvali repúblikana fyrir forseta- kosningarnar á næsta ári. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Quinnipiac-háskólans. Cruz öldungadeildarþingmaður mjakast þannig fram úr skurðlækn- inum Ben Carson og upp að hlið auðjöfursins Donalds Trump. Cruz mælist með 23 prósenta fylgi, Carson átján prósent og Trump 25 prósent. Carson og Trump hafa til þess skipst á að vera í fyrsta og öðru sæti. Meðal demókrata mælist Hillary Clinton með mest fylgi, 51 prósent. Næstur kemur öldungadeildar- þingmaðurinn Bernie Sanders með 42 prósent. Þriðji og síðasti fram- bjóðandinn, ríkisstjórinn fyrrver- andi Martin O'Malley, mælist með fjögurra prósenta fylgi. – þea Cruz nálgast toppinn í Iowa Ted Cruz sækir í sig veðrið. FréTTABLAðið/EPA mannréttindi Einstæðir feður eru 1,4 prósent fjölskyldugerða í land- inu árið 2015. Einstæðar mæður eru 14,5 prósent. Þetta kemur fram í skýrslu um stöðu og þróun jafn- réttismála 2013-2015 sem félags- málaráðuneytið gaf út. Algengasta fjölskyldusamsetning er hjónaband án barna, 38,7 pró- sent. Þar á eftir er hjónaband með börnum eða 28 prósent. Óvígð sam- búð með börnum er 12,9 prósent og óvígð sambúð án barna 4,5 prósent. Einstæðir feður eru feður með lögheimili barna sinna og fara ýmist einir með forsjá eða hafa sameigin- lega forsjá með hinu foreldri barns. Árið 2011 var í 555 tilvikum ákveð- ið að foreldrar færu sameiginlega með forsjá barna. Í 58 tilvikum var mæðrum ákveðin forsjá en einungis einn faðir fékk úrskurðaða forsjá barna. – snæ Einstæðir feður aðeins 1 prósent 2 6 . n ó v e m B e r 2 0 1 5 F i m m t u d a g u r4 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð 3 0 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :1 2 F B 0 7 2 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 4 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 2 C -C F B 0 1 7 2 C -C E 7 4 1 7 2 C -C D 3 8 1 7 2 C -C B F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 7 2 s _ 2 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.