Fréttablaðið - 26.11.2015, Side 25
Sé mönnum alvara með því sem þeir segja þurfa þeir jafnan að segja sama hlutinn oftar en
einu sinni. Segi menn skoðun sína
aðeins einu sinni kann að liggja
fiskur undir steini. Tökum dæmi.
Forsetinn
Í nýársávarpi sínu 2010 sagði forseti
Íslands m.a.: „Það er líklega einn
veikasti hlekkur íslenskrar stjórn-
skipunar að sjálfstæði dómstólanna,
Hæstaréttar og héraðsdóma, er ekki
tryggt í stjórnarskrá. … hollustan við
flokk ráðherrans [hefur] verið mæli-
kvarðinn sem mestu skipti … Stjórn-
kerfið, ráðuneyti og eftirlitsstofnanir,
hafa líka liðið fyrir hið flokkslega mat
við ráðningar og slík meinsemd veikti
getu stofnana til að veita aðhald.
Flokksskírteinið var í mörgum til-
vikum mikilvægara en fagleg hæfni;
vinátta eða vensl við ráðherra riðu
baggamuninn. Þeirri skyldu að bera
sannleikanum ávallt vitni í áheyrn
valdhafanna var iðulega vikið til
hliðar. Þessi brotalöm í stjórnkerfi
landsins … hefur … verið samofin
stjórnmálabaráttu alls lýðveldistím-
ans. … þetta flokksvædda stjórnkerfi
… átti tvímælalaust þátt í því hve illa
fór. Þær stofnanir sem áttu að veita
faglega og óháða ráðgjöf reyndust
of veikar þegar mest á reið. Styrking
stjórnkerfis og ótvírætt sjálfstæði
dómstóla og stofnana á vettvangi
réttarfars og eftirlits eru forgangsmál
við endurreisn Íslands. Grundvallar-
breyting á stjórnsýslu og réttarfari
frá flokksræði til faglegs sjálfstæðis er
lykillinn að farsælli framtíð, forsenda
þess að nýjum áföllum verði afstýrt.“
Þessi hárrétti boðskapur forsetans
virðist þó ekki vera honum hugleikn-
ari en svo að hann hefur ekki hirt um
að taka málið upp aftur þótt hann sæi
sér hag í því aðþrengdur eftir hrun að
nefna málið í eitt skipti eins og til að
villa á sér heimildir. Aðild forsetans
að tilræði Alþingis við lýðræðið í
landinu með því að halda áfram að
reyna að hunza úrslit þjóðaratkvæða-
greiðslunnar um nýja stjórnarskrá
2012 vitnar enn frekar um vandann,
enda tekur nýja stjórnarskráin
einmitt fast á þeim brestum sem for-
setinn lýsir réttilega að framan.
Ritstjórinn
Tökum annað dæmi. Styrmir Gunn-
arsson, þá ritstjóri Morgunblaðsins,
birti svofelldan texta í Reykjavíkur-
bréfi blaðsins 25. júní 2006: „Í of
langan tíma hefur vont andrúmsloft
heiftar og hefndar ráðið ferðinni
í þjóðfélagsumræðum. … engu er
líkara en menn svífist einskis til
þess að tryggja ákveðna hagsmuni.
Stjórnmál og viðskiptalíf blandast
saman með ýmsum hætti í þessu
vonda andrúmslofti og það er
hættuleg blanda. … Vopnin sem
notuð eru í þessari baráttu eru illt
umtal. … meðan unnið er að því
með markvissum hætti að skapa
„andrúmsloft dauðans“ í kringum
einhvern einstakling sitja aðrir hjá
og bíða spenntir eftir því, hvort
það tekst. … við búum að sumu
leyti í verra samfélagi en við höfum
nokkru sinni gert í okkar samtíma.
Hver vill búa í vondu samfélagi?
Hver vill anda að sér vondu and-
rúmslofti?“ Síðan hefur Morgun-
blaðið ekki birt eitt aukatekið orð
um málið. Ritstjórinn sagði að
vísu við RNA (8. bindi, bls. 179):
„Ég er búinn að fylgjast með þessu
þjóðfélagi í 50 ár. Þetta er ógeðs-
legt þjóðfélag, þetta er allt ógeðs-
legt.“ Ritstjórinn fv. hefur síðan
verið á harðahlaupum frá þessum
ummælum enda heldur hann áfram
Oftar en einu sinni
að vaða eld og reyk fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn.
Bankar og lög
Fáeinir háskólamenn í Bandaríkj-
unum hafa ásamt öðrum lýst því
sjónarmiði að ekki dugi að sekta
banka fyrir lögbrot bankamanna.
Allir helztu bankar Bandaríkjanna
hafa sætt fjallháum sektum vegna
lögbrota bankamanna síðustu ár
en bankana munar ekkert um að
greiða sektirnar, þeir taka varla eftir
þeim. Að sekta banka fyrir lögbrot
bankamanna er eins og að sekta
Reykjanesbrautina fyrir of hraðan
akstur.
Embættismenn þóttust lengi vel
ekki skilja þessa augljósu hliðstæðu.
Það breyttist loksins á þessu ári. Í
júní gerðist það að Stanley Fischer,
aðstoðarbankastjóri Seðlabanka
Bandaríkjanna, einn virtasti hag-
fræðingur samtímans, tók af skarið
í blaðaviðtali og sagðist telja rétt
að sækja bankamenn til saka fyrir
meint lögbrot. Hann hefur þó sagt
þetta aðeins einu sinni. Næst lýsti
Ben Bernanke, nýhættur sem seðla-
bankastjóri Bandaríkjanna, sömu
skoðun í blaðaviðtali um nýút-
komna bók sína þverhandarþykka
um bankamálin þar vestra. Hann
hefur þó sagt þetta aðeins einu sinni
og segir ekki heldur orð um málið í
bókinni. Loks gerðist það nýlega að
Christine Lagarde, framkvæmda-
stjóri AGS, bar í ræðu lof á Íslend-
inga fyrir að hafa komið lögum yfir
nokkra brotlega bankamenn. Hún
hefur sagt þetta einu sinni. Reynslan
mun leiða í ljós hvort þeim Fischer,
Bernanke og Lagarde var alvara með
ummælum sínum eða ekki.
Auk þess legg ég til …
Kató gamla er enn minnzt fyrir að
láta engan velkjast í vafa um að
hann meinti það sem hann sagði
fyrir 2000 árum. Hann lauk öllum
ræðum sínum í öldungadeildinni í
Róm með orðunum „Auk þess legg
ég til að Karþagó verði lögð í eyði“.
Menn hlustuðu. Kató fékk að ráða
lyktum málsins. Karþagó var lögð
í eyði.
Auk þess legg ég til að forseti
Íslands og Alþingi láti af aðför sinni
gegn lýðræðinu í landinu og virði
vilja þjóðarinnar eins og hann
birtist í úrslitum þjóðaratkvæða-
greiðslunnar um nýja stjórnarskrá
20. október 2012.
Þorvaldur
Gylfason
prófessor
Í dag
Þessi hárrétti boðskapur
forsetans virðist þó ekki vera
honum hugleiknari en svo
að hann hefur ekki hirt um
að taka málið upp aftur þótt
hann sæi sér hag í því að-
þrengdur eftir hrun að nefna
málið í eitt skipti eins og til
að villa á sér heimildir.
Ómissandi
á jólunum
Sérvalin blanda af
bestu kaffiuppskerum
ársins.
kaffitar.is
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 25F i M M T u d a g u R 2 6 . n ó v e M B e R 2 0 1 5
3
0
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:1
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
2
D
-9
5
3
0
1
7
2
D
-9
3
F
4
1
7
2
D
-9
2
B
8
1
7
2
D
-9
1
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
7
2
s
_
2
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K