Fréttablaðið - 26.11.2015, Síða 72
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Atla Fannars
Bjarkasonar
Bakþankar
Pælið í ef það væru til samtök
hvíts fólks sem hataði aðra kyn-
þætti. Samtökin væru rótgróin og
saga þeirra blóði drifin, þó þau
væru kannski ekki jafn öfgafull í
aðgerðum sínum í dag eins og áður.
Samtökin myndu kenna sig við
trúarbrögð og réttlæta ömurlegar
gjörðir sínar þannig að þau væru í
einhvers konar heilagri vegferð.
Pælið svo í ef samtökin myndu
fremja einhvers konar illvirki, jafn-
vel hryðjuverk, sem öll heimsbyggð-
in yrði vör við. Margt fólk myndi
deyja og meðlimir samtakanna yrðu
skiljanlega úthrópaðir, eftirlýstir
og gjörðir þeirra fordæmdar. Pælið
svo í ef þetta yrði til þess að allt
hvítt fólk gæti ekki lengur um frjálst
höfuð strokið. Líka fólkið sem til-
heyrði ekki samtökunum. Hvert
sem hvíta fólkið kæmi væri það litið
hornauga, beitt ofbeldi og sakað um
að tilheyra þessum ömurlegu sam-
tökum blóðþyrstra hryðjuverka-
manna.
Í kjölfarið myndi fólk neita að
leigja hvítu fólki húsnæði, einfald-
lega vegna þess að það treysti sér
ekki til þess – fordómarnir í sam-
félaginu væru slíkir að allir yrðu
settir undir sama hatt. Svo myndu
fjölmiðlar éta upp óvandaðar kann-
anir um að hvítt fólk hefði almennt
samúð með fólkinu sem tilheyrir
illu samtökunum, þannig væri það
bæði skjalfest og staðfest í hugum
fólks að allt hvíta fólkið væri eins;
það væri allt hryðjuverkmenn eins
og siðlausu illmennin í vondu sam-
tökunum.
Þessi samtök eru auðvitað til en
það dettur engum í hug að heimfæra
myrkraverk þeirra upp á allt hvítt
fólk. Það væri fjarstæðukennt. Jafn
fjarstæðukennt og að halda því fram
að allir múslimar tilheyri samtökum
sem eru svo ill og óforskömmuð að
við værum öll löngu dauð ef rúmur
milljarður manna myndi aðhyllast
hugmyndafræði þeirra.
Hvítt fólk
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
GRÍN, HASAR
OG RÓMANTÍK
Á BÍÓSTÖÐINNI
Bíóstöðin er hluti af
Skemmtipakkanum þar sem
boðið er upp á kvikmyndir
allan sólarhringinn.
365.is | Sími 1817
BÍÓSTÖÐINER Í SKEMMTI-PAKKANUM
66north.is
3
0
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:1
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
2
C
-4
F
5
0
1
7
2
C
-4
E
1
4
1
7
2
C
-4
C
D
8
1
7
2
C
-4
B
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
2
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K