Fréttablaðið - 26.11.2015, Side 8

Fréttablaðið - 26.11.2015, Side 8
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS Átt þú erindi í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna? Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda inn kynningar­ bréf með rökstuðningi og starfsferilsskrá á skrifstofu VR fyrir kl. 12:00 á hádegi miðvikudaginn 16. desember 2015, merkt „Umsókn LIVE“, eða senda umsókn á umsokn@vr.is. Þeir sem gefa kost á sér skulu: ­ Vera launamenn sem greiða iðgjald í Lífeyrissjóð verzlunarmanna ­ Ekki vera sjálfstætt starfandi atvinnurekendur/einyrkjar ­ Vera fjárhagslega sjálfstæðir og búa yfir nægilegri þekkingu og starfsreynslu skv. 31. gr. laga nr. 129/1997 og 6. gr. reglna FME nr. 180/2013 ­ Skila inn með umsókn útfylltu eyðublaði með drengskapar­ yfirlýsingu um að þeir uppfylli skilyrði til slíkrar stjórnarsetu VR auglýsir eftir stjórnarmönnum í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna kjörtímabilið 2016 – 2019. Stjórn og trúnaðarráð VR skipa fjóra aðalmenn og fjóra til vara. Nánari upplýsingar og eyðublað drengskaparyfirlýsingar eru á www.vr.is. Viðskipti Samkvæmt farþegaspá Isavia mun farþegum sem fara um Keflavíkurflugvöll fjölga um 28,4 pró- sent á næsta ári og þeir verða 6,25 milljónir. Ef spárnar standast mun farþega- fjöldi hafa nær tvöfaldast á þremur árum, en árið 2013 fóru 3,2 milljónir farþega um flugvöllinn. Ef ný spá fyrir nóvember og desember stenst munu samtals 4,9 milljónir fara um flugvöll- inn árið 2015. Þetta kom fram á fundi Isavia í gær. Ráðist verður í framkvæmdir fyrir rúma átta milljarða á flugvellinum á næsta ári. Formaður Samtaka ferða- þjónustunnar telur að talan mætti vera hærri. Í farþegaspánni er gert ráð fyrir um 10 prósent fleiri íslenskum ferða- mönnum árið 2016 en árið 2015. Gangi spáin eftir mun heildarfjöldi íslenskra farþega verða um 495 þús- und. Þá mun ferðamet frá árinu 2007 verða slegið.  Fjöldi flugfélaga sem fljúga til flug- vallarins hefur fimmfaldast á áratug. Sumarið 2005 voru fimm flugfélög í áætlunarflugi til Keflavíkurflugvallar, en sumarið 2016 munu 25 flugfélög fljúga á völlinn. Fjöldi heilsársflugfélaga hefur einn- ig þrefaldast, úr þremur í níu. Sökum anna er markvisst unnið að því að dreifa flugfélögunum betur yfir árið og tíma dags. Flugfélög sem bjóða nýja leið í heils- ársflugi til Íslands fá til að mynda 50 til 100 prósenta afslátt af lendingar- og brottfarargjöldum fyrstu þrjú árin. Til að bregðast við fjölgun far- þega  verður ráðist í miklar fram- kvæmdir á Keflavíkurflugvelli. Guðni Sigurðsson, upplýsinga- fulltrúi Isavia, segir að fyrsti áfang- inn og sá  stærsti af Masterplani fyrirtækisins sem á að vera tilbúinn 2021 eða 2022 sé áætlaður á 70 til 90 milljarða króna. Fjárfesting í flugstöðinni á næsta ári nemur 8,5 milljörðum króna. Grímur Sæmundsen, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, sagði í erindi sínu á fundinum að menn hefðu verið að horfa til þess að talan þyrfti að vera hærri, í ljósi þeirra krafna sem fram undan væru. Breyta þurfi því hvernig horft sé á framlög til Isavia. „Ég tel að það þurfi að hækka þessi framlög og horfa svo heild- stætt á þetta, að það sé ekki alltaf tengt fjárlögum hvers árs hvað gert verður. Ég tel að ríkissjóður þurfi að vera reiðubúinn til að horfast í augu við það hvað þetta er mikil fjárþörf,“ sagði Grímur. Fram kom að erfiðleikar hafa verið með ráðningar og líklegt að þeir haldi áfram er farþegum fjölgar. „Það hafa allir rekstraraðilar á Keflavíkurflugvelli fundið fyrir því. Það er búið að ráða svo marga starfsmenn undanfarið og atvinnu- leysi á Reykjanesinu hefur hríð- minnkað.  Það hefur verið mjög jákvætt vandamál þarna á ferðinni. Það hefur stundum verið erfitt að fá fólk, og fyrirtækin þarna eru hrein- lega að keppast um starfsfólkið,“ segir Guðni Sigurðsson. Því er verið að vinna í sjálfvirkni- væðingu flugvallarins til  að bæta afköst starfsmanna. Tvöfalt fleiri farþegar á þremur árum Samkvæmt spá Isavia munu 6,25 milljónir fara um Keflavíkurflugvöll á næsta ári. Ef spár standast mun ferðamet Íslendinga frá árinu 2007 verða slegið. ✿ Fjöldi farþega um keflavíkurflugvöll 2012-2016 Milljónir farþega 0 1 2 3 4 5 6 7 2012 2013 2014 2015 2016 2,76 milljónir 3,21 milljón 3,87 milljónir 4,87 milljónir 6,25 milljónir Fjöldi erlendra Fjöldi Íslendinga 2,4 0,36 2,84 3,47 4,42 5,76 0,365 0,4 0,45 0,49 ** *Samkvæmt farþegaspá Isavia Sæunn Gísladóttir saeunn@frettabladid.is Miklar breytingar væntanlegar á næsta ári Framkvæmdirnar fyrir 8,5 milljarða á næsta ári ná meðal annars til stækkunar á suðurbyggingu og fjölgunar flugvélastæða. Fram kom á fundinum að fimm þúsund fer- metra stækkun á suðurbyggingunni verður tekin í notkun í mars með sex nýjum hliðum. Einnig verður bætt við þremur flugvélastæðum næsta sumar og tveimur í viðbót árið 2017. Næsta sumar verður einnig tilbúin stækkun á farangurs- böndum og töskusvæði. Núverandi farangursflokkari verður lengdur úr 90 í 200 metra og bílastæðum verður fjölgað. Fleiri farþegarútur verða teknar í notkun auk rútu fyrir hreyfihaml- aða. Aðstaða fyrir farangursgáma í lestun verður kynnt. Þar sem nýjar flugvélar Icelandair og WOW air bera gáma sem Keflavíkurflugvöllur hefur ekki þurft að taka á móti áður. Gert er ráð fyrir að samtals 4,9 milljónir farþega fari um Keflavíkurflugvöll árið 2015. Fréttablaðið/VilHElM 2 6 . n ó V e M b e r 2 0 1 5 F i M M t U D A G U r8 F r é t t i r ∙ F r é t t A b L A ð i ð 3 0 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :1 2 F B 0 7 2 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 2 D -8 1 7 0 1 7 2 D -8 0 3 4 1 7 2 D -7 E F 8 1 7 2 D -7 D B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 7 2 s _ 2 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.