Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.11.2015, Blaðsíða 10

Fréttatíminn - 13.11.2015, Blaðsíða 10
Verðbréfa- og fjárfestingasjóðir í áskrift er góð leið til að byggja upp eignasafn. Byggðu upp þinn sjóð með reglubundnum sparnaði Lágmarksupphæð aðeins 5.000 kr. á mánuði. 100% afsláttur af upphafsgjaldi í áskrift í sjóðum. Enginn fjármagns- tekjuskattur greiddur fyrr en við innlausn.* *Skattameðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíð. 410 4000Landsbankinn landsbankinn.is Þ að eru tveir möguleikar í stöðunni. Að flytja orkuna yfir Sprengisand eða fara svokall- aða byggðaleið sem er hringinn í kringum landið,“ segir Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Lands- nets, aðspurður um möguleikana til að styrkja flutningskerfi raforku. „Til- gangur mögulegrar framkvæmdar á Sprengisandi er að bæta raforkukerfi landsins en óstöðugleiki í rekstri byggðalínunnar og takmarkanir á orkuafhendingu standa í vegi fyrir atvinnuuppbyggingu og byggðaþróun víða á landinu. Það liggur fyrir að það er ekki næg orka á Norður-og Austurlandi. Þar hafa til dæmis fisk- vinnslustöðvar, mjólkurbú og bjór- framleiðendur verið að kvarta. Það þarf að styrkja kerfið því gæðin eru óviðunandi. Þetta er bara ekki í takt við nútímasamfélag.“ Háspennulína eða jarðstrengur Nú er til umfjöllunar hjá Skipu- lagsstofnun tillaga Landsnets að matsáætlun fyrir umhverfismat Sprengisandslínu. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út 17. nóvember næstkomandi. Guð- mundur Ingi segir að verði áætlunin samþykkt eftir að athugasemdir hafi verið teknar til greina þá fari vinna við umhverfismat í gang sem ætti að vera tilbúið næsta haust. Í tillögu Landsnets eru bornir fram þrír val- kostir til að flytja orkuna um landið og sá möguleiki að 50 km af leiðinni verði í jarðstreng tengist þeim öllum. Gísli Gíslason, landslagsarkitekt hjá Steinsholti ehf og ráðgjafi Lands- nets við vinnu á matsáætlun, segir valkostina þrjá í matsáætluninni vera á tiltölulega þröngu belti, um 10 km breiðu og að í megindráttum séu leiðirnar í námunda við núver- andi Sprengisandsleið. Upphaflega var Vegagerðin þátttakandi í vinnu við matsáætlunina en hún hefur nú dregið sig úr ferlinu. Gísli segir þó tekið tillit til mismunandi veglína í vinnu við umhverfismat. „Okkur finnst eðlilegt að horfa á þessi mann- virki í samhengi ekki síst vegna þess að áhrif línunnar eru fyrst og fremst sjónræn. Þá skiptir auðvitað máli hvar aðal leiðin yfir sandinn er. Það mun þurfa línuveg, sem er í eðli sínu ekki merkilegur vegur, en það liggur auð- vitað fyrir að það þarf að bæta þá vegi sem eru þarna fyrir.“ Hvað á að friða? Sprengisandslína er umdeild á meðal þjóðarinnar því ljóst er að fram- kvæmdir myndu hafa mikil áhrif á miðhálendið. Ein helsta gagnrýni hefur komið frá aðilum sem koma að hálendisverkefni Landsverndar, „Hjarta landsins“, sem leggur til að hálendið verði gert að friðuðum víð- ernum, þeim stærstu í Evrópu. Tæp- lega 33.000 manns hafa nú skrifað undir áskorun „Hjarta landsins“ til stjórnvalda þess efnis að hálendið verði friðað. Guðmundur Ingi segist ekki geta tekið afstöðu til þess en bendir á að kannski hafi ekki komið nógu skýrt fram hverskonar friðun sé verið að tala um. „Það hefur enginn sagt hvaða miðhálendi þetta er en það getur skipt miklu máli. Við gætum tæknilega verið með 50 km jarð- streng þvert yfir hálendið en ef menn eru að tala um eitthvað miklu stærra svæði þá er ekki víst að það sé mögu- legt. Okkar mat er að umverfisvænst sé að fara yfir hálendið, það kemur best út meðal annars vegna þess að byggðalínan liggur líka að hluta til um miðhálendið, t.d. yfir Fjallabaks- svæðið. Við verðum að fara vel í fag- vinnuna, meta kosti og galla og taka svo upplýsta ákvörðun.“ „Línan myndi skera hálendið í tvennt, eyðileggja upplifun ferða- manna og útiloka að hægt verði að stofna þjóðgarð á miðhálendinu og þar með einstök tækifæri til atvinnu- sköpunar á landsbyggðinni“, segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, for- maður Landverndar, en Landvernd hefur sett upp áskorun á vefnum þar sem fólki gefst kostur á að taka undir kröfu samtakanna um að Landsnet falli frá nýútkominni áætlun sinni um Sprengisandslínu og að Skipulags- stofnun hafni matsáætlun um um- hverfismat línunnar, því á henni séu verulegir annmarkar. Beðið eftir nýrri landsskipulags- stefnu Að mati Landverndar verður Lands- net að gera grein fyrir jarðstreng yfir allt hálendið í matsáætlun sinni, en ekki bara 50 km kafla og framkvæma sameiginlegt umhverfismat fyrir Sprengisandslínu og háspennulínur í byggð frá Blöndu í Fljótsdal, því þær Hjá Skipulagsstofnun er nú til umfjöllunar tillaga Landsnets að matsáætlun fyrir um­ hverfismat Sprengi­ sandslínu. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út 17. nóvember næst­ komandi. Stefnt er að því að haustið 2016 verði umhverfismat tilbúið. Tæplega 33.000 manns hafa nú skrifað undir áskorun „Hjarta landsins“ til stjórn­ valda þess efnis að hálendið verði friðað. Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, segir brýnt að skýrt sé tekið fram hvaða hluta hálendisins eigi að friða. SprengiSandur Til að fá úr því skorið hvort hálendisleið sé raun­ hæfur kostur hóf Landsnet á síðasta ári undirbúning mats á umhverf­ isáhrifum Sprengisandslínu, um 195 km langrar 220 kV háspennulínu frá Langöldu á Landmannafrétti að Eyjadalsá vestan Bárðardals, en há­ spennulínur á þessu spennustigi eru matsskyldar samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum. Í tillögu Landsnets eru bornir fram þrír val­ kostir til að styrkja flutning raforku um landið og sá möguleiki að 50 km af leiðinni verði í jarðstreng tengist þeim öllum. Landvernd mótmælir því að ekki skuli vera gerð grein fyrir möguleika á jarðstreng yfir allt hálendið í matsáætluninni. guðmundur ingi Ásmunds- son, forstjóri Landsnets. gísli gíslason landslagsarki­ tekt. guðmundur ingi guð- brandsson, formaður Land­ verndar. Hvað á að friða? línur séu hluti af heildaráformum Landsnets. „Þetta eru tæknilegu atriðin, en í reynd er þetta ósköp einfalt: Viljum við eyðileggja það aðdráttarafl sem óbyggðir okkar og víðerni hafa fyrir okkur sjálf og erlenda ferðamenn sem halda uppi stærsta gjaldeyrisskapandi atvinnuveg landsins, ferðaþjón- ustunni?“, spyr Guðmundur Ingi sem telur einnig æskilegt að Alþingi kláraði afgreiðslu lands- skipulagsstefnu en umhverfis- og auðlindaráðherra lagði fram til- lögu til þingsályktunar um lands- skipulagsstefnu á Alþingi í byrjun haustþings og er tillagan nú til umfjöllunar í umhverfis- og sam- göngunefnd þingsins. Í tillögu að landsskipulagsstefnu er sett fram stefna um að meiri háttar mann- virkjagerð verði beint að stöðum sem rýra ekki landslagsheildir hálendisins. Búist er við því að Alþingi ljúki afgreiðslu hennar fyrir þinglok. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is 10 fréttaskýring Helgin 13.­15. nóvember 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.