Fréttatíminn - 13.11.2015, Blaðsíða 74
74 matur & vín Helgin 13.-15. nóvember 2015
Einstök safari ferð til Tanzaniu á slóðir villtra dýra,
ósnortinna náttúru og fornrar menningar.
Tanzania
22. janúar – 4. febrúar
Við sjáum óviðjafnanlegt dýralíf í sínu náttúrulega umhverfi og
kynnumst menningu heimamanna m.a. Masai þjóðflokknum.
Ferðin er eitt ævintýri, einstök upplifun sem lætur engan ósnortin.
*Verð per mann í 2ja manna herbergi
675.900.-*
588-8900
Transatlantic.is
Innifalið:
Allt flug með sköttum og gjöldum. Allur flutningur milli staða með
5–7 manna safaríbílum. Innlendur og íslenskur fararstjóri.
Gisting og matur á upptöldum (eða sambæri-legum)
gististöðum eins og er í ferðalýsingu.
Öll gjöld vegna aðgangs í þjóðgarða eins og lýst er.
Fararstjóri er Dr. Anna Elísabet Ólafsdóttir, eigandi TanzaNice Farm í Tansaníu.
588-8900
Transatlantic.is
Innifalið:
Allt flug með sköttum og gjöldum. Allur flutningur milli staða með
5–7 manna safaríbílum. Innl ndur og íslensk r fararstjóri.
Gisting og matur á upptöldum (eða sambæri-legum)
gististöðum eins og er í ferðalýsingu.
Öll gjöld vegna aðgangs í þjóðgarða eins og lýst er.
Fararstjóri er Dr. Anna Elísabet Ólafsdóttir, eigandi TanzaNice Farm í Tansaníu.
588 8900 – transatlantic.is
Sinnepssæla
Hver elskar ekki sinnep? Þetta leyndardómsfulla mauk sem
passar með nánast öllu getur alltaf komið manni á óvart. Hvort
sem það er sætt, sterkt, súrt, mjúkt eða gróft þá er alltaf hægt
að uppgötva eitthvað nýtt. Íslenskt sinnep er svo sem ekkert
sem lögð hefur verið áhersla á. Fyrir utan auðvitað SS-pylsu-
sinnepið sem er svo ómissandi á þjóðarrétti okkar Íslendinga.
Að búa til sitt eigið sinnep er aftur á móti auðveldara en marga
grunar og eitthvað sem hægt er að gera heima fyrir á skemmti-
legan hátt.
S innep er eins og vín. Fjöl-breytt og misjafnt eftir rækt-unarlöndum. Hér á Norður-
löndunum var í eina tíð mest um
sætt sinnep, sem við þekkjum svo
vel með pylsum og slíku. Frá Frakk-
landi þekkjum við Dijon sinnepið
sem nefnt er eftir héraðinu sem
það er búið til, og á Indlandi er
sinnep stór partur af allri matar-
gerð. Fyrstu sögur af sinnepi eru
frá fjórðu og fimmtu öld þegar Róm-
verjar notuðu þessi forboðnu korn
í matargerð og þá sem blöndu af
fleiri kryddum. Rómverjar eru svo
taldir hafa farið með sinnepskorn
til Gaulverja í Frakklandi og þá hafi
hjólin byrjað að snúast. Árið 1292
kom hið fræga Dijon sinnep fram
á sjónarsviðið í samnefndu héraði
í Frakklandi og eftirleikinn þekk-
ir hvert mannsbarn. Sinnepið má
nota á margan hátt og á mun fleiri
vegu en bara beint á pylsuna. Amer-
íska gula sinnepið passar til dæmis
gríðarlega vel með góðum ham-
borgara. Sinnep passar einstaklega
vel með mörgum fisktegundum, og
fyrst það er að líða að jólum þá er
fátt betra en að setja væna skeið á
diskinn þegar síld er annars vegar.
Þá helst gróft sinnep. Sinnepið er
einnig mjög gott í allskonar sósu-
gerð. Það passar einkar vel með
sýrðum rjóma eða mæjónesi, sem
og í olíudressingar á salöt og slíkt.
Uppskrift og mynd fengin frá www.
kristingroa.com
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Það er alltaf gott að eiga nokkrar
tegundir af sinnepi í skápnum og
prófa sig áfram, nánast með hverju
sem er.
Hér er einföld uppskrift að sinnepi
sem passar með flestu.
Heimagert sinnep:
Gerir u.þ.b 400 gr.
100 gr. gul sinnepskorn
150 ml. eplaedik eða hvítvínsedik
150 ml hvítvín
2 tsk sjávarsalt
U.þ.b 4-5 tarragon stilkir. Laufin
tekin af.
Aðferð:
Setjið sinnepskornin, edikið, hvítvínið
og saltið í skál. Setjið plastfilmu yfir
og látið standa í þrjá daga.
Á þriðja degi, setjið það sem er í
skálinni í matvinnsluvél ásamt tarra-
goninu. Látið vélina ganga þar til
blandan er orðin slétt og jöfn. Það
gæti þurft að bæta við vatni en það
fer eftir þykkt blöndunar. Smakkið
og saltið meira ef þess þarf. Setjið
í krukku sem lokast þétt og látið
standa í ísskáp í sólarhring.
Þessi uppskrift er góð byrjun en það
er mjög auðvelt að gera allskyns til-
raunir þegar kemur að sinnepsgerð.
Margir nota hina ýmsu vökva til að
búa sér til mismunandi bragðteg-
undir. Allt frá sítrónusafa til koníaks,
og allt þar á milli.
Jólasíld:
500 millilítrar eplaedik
250 millilítrar lífrænn vínberjasafi
10 stykki piparkorn
10 stykki negulnaglar
5 stykki kardimommur
3 lárviðarlauf
3 kanilstangir, hver um 5 sentímetrar
Börkur af einni appelsínu
Leiðbeiningar:
Blandið öllum innihaldsefnunum
saman fyrir maríneringuna í litlum
potti og náið upp suðu á hæsta hita.
Hrærið í og takið pottinn af þegar
sykurinn er allur uppleystur. Setjið
maríneringuna til hliðar og kælið hana
alveg niður.
Setjið síldarbitana og lauk í nokkrum
lögum í krukkurnar. Hellið marínering-
unni yfir þannig að hún fljóti yfir síldina
og verið viss um að skipta kryddinu
jafnt á milli krukknanna.
Geymið síldina í kæli í að minnsta kosti
2 daga en hún verður mýkri og betri
eftir því sem á líður. Hún geymist í að
minnsta kosti mánuð.
Uppskrift fengin af www.hidblom-
legabu.is
Hátíðarsíld
Síldin er að detta í hús og þá er ráð að huga að jólamarínering-
unni. Þetta er einföld aðferð en um leið ljúffeng.