Fréttatíminn - 13.11.2015, Blaðsíða 50
50 fjölskyldan Helgin 13.-15 nóvember 2015
Af hverju er
verklagsreglan
ekki sú að „barn
dvelur til skiptist
hjá foreldrum
sínum á aðfanga-
dagskvöld, þar
sem það hefur
undirbúið jólin á
báðum heim-
ilum?“
Opið bréf til sýslumanna
Ágætu sýslumenn
É g á tvö yndisleg stjúpbörn og tvö börn með manninum mínum. Heim-ilið okkar er að sjálfsögðu öllum
börnunum galopið. Hvert og eitt er með
sitt herbergi, skiptir engu hvort þau eru
hjá okkur aðra hvora viku eða allt árið
um kring.
Við hjónin elskum jólin og leggj-
um mikið upp úr undirbúning þeirra
með börnunum. Öll börnin taka þátt
í að baka smákökur, hlusta á jólatón-
list, pakka inn jólagjöfunum, skreyta
herbergin sín og jólatréð. Við gerum
allt saman en stjúpbörn mín fá aldrei
að eiga aðfangadagskvöld með pabba
sínum, mér og systkinum sínum. Við
fáum aldrei tækifæri til að eiga saman
aðfangadagskvöld sem fjölskylda. Það
vantar alltaf tvo úr henni.
Maðurinn minn hefur rætt þetta við
móður barnanna sem sjálf vill hafa
þau á aðfangadagskvöld. Hún hefur jafn-
framt sagt við hann að það þýði lítið að
reyna fá aðstoð sýslumanns. Hún myndi
„vinna“ þar sem lögheimili barnanna er
hjá henni, sem ég hef lært að þýði víst líka
„föst búseta“.
Skiptir þar engu hvort foreldar fari sam-
eiginlega forsjá og eða eru með samning
um viku/viku umgengni barnanna. Því
miður er þetta rétt hjá henni en á vef sýslu-
manns segir orðrétt:
„Sú verklagsregla gildir yfirleitt að börn
skuli dvelja hjá því foreldri sem það hef-
ur fasta búsetu hjá á aðfangadagskvöld.
Þetta styðst m.a. við þau rök að þar hefur
barn oftast undirbúið jólin“ (<http://www.
syslumenn.is/thjonusta/fjolskyldumal/
umgengni/>).
Mér er lífsins ómögulegt að skilja hvern-
ig búsetan geti verið „fastari“ hjá móður
þó lögheimili barnanna sé hjá henni, þegar
börnin dvelja viku/viku á hvoru heimili um
sig.
Sem betur fer á þetta ekki við um öll börn
sem eiga tvö heimili. Þekki ég til margra
heimila þar sem börnin eru til skiptis hjá
foreldrum um jólin. Séu foreldrar hinsveg-
ar ósammála þá getur lögheimilisforeldið
vísað í þessa úreltu verklagsreglu. Í flestum
tilvikum bitnar hún á föður þar sem lög-
heimili er í um 90% tilvika hjá móður.
Af hverju er verklagsreglan ekki sú að
„barn dvelur til skiptist hjá foreldrum sín-
um á aðfangadagskvöld, þar sem það hefur
undirbúið jólin á báðum heimilum?“ En það
er einmitt orðið sem stjúpbörnin mín nota,
heimili. Þau segja: „ég á tvö heimili.“
Allt of margir feður upplifa sig vanmátt-
uga í samskiptum við barnsmæður sínar
og láta ýmislegt yfir sig ganga af ótta við
að missa tengsl við börn sín. Eiginmaður-
inn minn er fullkomlega fær um að annast
börnin sín og elskar að hlúa að þeim. Hann
sinnir þeim frá morgni til kvölds þegar þau
eru hjá okkur. Hann sleppir öllu skemmt-
analífi og flandri svo hann geti átt sem
mestan tíma með börnunum sinum.
En hvað þarf til að þetta breytist? Á heima-
síðu sýslumanns kemur fram að engar regl-
ur séu í barnalögum um hve umgengni á að
vera mikil, en ef foreldrar eru ekki sammála
um fyrirkomulagið og sýslumaður þarf að
úrskurða um umgengni er stuðst við ákveðn-
ar verklagsreglur sem hafa myndast í fram-
kvæmd. Reglur þessar eru mjög svipaðar
hér á landi og erlendis og í reynd eru flestir
samningar sem foreldrar gera sjálfir sín á
milli í samræmi við þessar reglur.
Það er von mín að þessi pistill fái ykkur til
að hugsa betur um þessi mál en þau varða
bæði börn einhleypra foreldra og börn í
stjúpfjölskyldum sem er stór hluti barna á
Íslandi. Lögheimilisforeldri er gert hærra
undir höfði bæði þegar kemur að verklags-
reglum sýslumanna og lögum sem snerta
þennan málaflokk. Við þær aðstæður mun
samvinna og samstarf fyrst og síðast vera
á forsendum lögheimilisforeldris séu ekki
samkomulag á milli foreldra.
Það ætti að vera lítið mál að breyta verk-
lagsreglum sýslumanna í takt við raunveru-
leikann og tryggja börnum rétt til að eiga
önnur hver jól/aðfangadagskvöl með föður
og móðir (eða móður - móður, eða föður - föð-
ur) og systkinum sínum á báðum heimilum.
Ykkar einlæg, Stjúpmamman
Fyrir hönd bréfritara,
Valgerður Halldórsdóttir
Aðfangadagur – verklags-
reglur í umgengnismálum
Valgerður
Halldórs-
dóttir
félagsráðgjafi
og kennari
heimur barna
Verslunareigendur!
Réttarhálsi 2, 110 Reykavík | www.gm.is | Sími 535 8500 | info@gm.is
Ítalskir pappírspokar
í úrvali
Flottar lausnir
til innpökkunar
allskyns vöru Eingöngu sala til fyrirtækja
í sjónvarpi
Heilsutíminn er í Fréttatímanum sem kemur út á föstu-
dögum. Sjónvarpsþátturinn er frumsýndur á mánudags-
kvöldum klukkan 20 og endursýndur nokkrum sinnum í
vikunni.
Teitur Guðmundsson
læknir er með fasta pistla.
Umsjónarmaður Heilsutímans
er Gígja Þórðardóttir
sjúkraþjálfari.
Sjónvarpsþátturinn Heilsutíminn
er sýndur á mánudagskvöldum
kl. 20 á Hringbraut í vetur.
Skin Blossom margverðlaunaðar
lífrænt- og veganvottaðar húðvörur.
Innihalda ekki paraben, silikon tilbúin litar- og ilmefni né önnur skaðleg efni.
Fást í Heimkaup.is,
Heilsuveri Suðurlandsbraut 22
og Akureyrarapóteki Kaupangi.
Skin Blossom
á Íslandi.
Netlu-, túnfífla- og birkilaufstöflur
örva brennslu og meltingu og eru
bjúglosandi. Sérstaklega er mælt
með vörunni til að hreinsa líkamann.
Colonic Plus
Kehonpuhdistaja
www.birkiaska.is
Aðsent bréf
til Félags
stjúpfjölskyldna