Fréttatíminn - 13.11.2015, Blaðsíða 70
70 Helgin 13.-15. nóvember 2015
Styrkur, þol, jafnvægi og samhæfing
4 vikna námskeið fyrir 60 ára og eldri hefst mánudaginn 16. nóvember
Skemmtilegir tímar sniðnir fyrir fullorðið fólk. Áhersla á persónulega aðstoð,
styrk, þol, jafnvægi og samhæfingu til þess að auka lífsgæði.
Verð: 26.900 kr.
Innifalið: Aðgangur að Spa, handklæði við komu, herðanudd í heitum pottum.
Tímar kl. 13.00 alla dagana
Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga: Hóptími
Þriðjudaga og fimmtudaga: Prógram hjá þjálfara í sal - frjáls mæting
24. nóvember verður fyrirlestur um næringu fyrir fólk 60 ára og eldri.
Hilton Reykjavik Spa – Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík
Skráning og nánari upplýsingar á spa@hiltonreykjavikspa.is og í síma 444 5090.
60 PLÚS
Þjálfarar: Agnes Þóra Árnadóttir, Patrick Chiarolanzio og Guðbjartur Ólafsson
A STROG-LIDE T TC sleipiefnið
er sniðið fyrir pör í
barneignahugleið-
ingum, en sleipiefni
er sæðisvinsamlegt
og samþykkt af Lyfja-
eftirlitstofnun Banda-
ríkjanna (FDA) og
uppfyllir þar af leið-
andi þær kröfur sem
stofnunin gerir til
þessarar tegundar af
vöru.
Unnið í samstarfi við
Ýmus
Hver pakki inniheldur 8 innsiglaðar túbur.
Til þess að fá
að nota heitið
„sæðisvin-
samlegt“ þá er
gerð sú krafa
að sleipiefnið
uppfylli þrjá
megin þætti:
1. Samhæft við
sæði.
2. Samhæft við
eggfrumu.
3. Samhæft
við fósturvísi á
meðgöngu.
TTC sleipi-
efnið fæst í
Lyf og heilsu,
Hraunbergsapó-
teki, Reykjavíkur
apóteki, Apóteki
Vesturlands,
Lyfjavali
Hæðarsmára og
Mjódd.
Nýtt sleipiefni sem
eykur líkur á getnaði
Innihald:
Hreinsað vatn,
Propylene Glycol,
Hydroxyet-
hylcellulose,
Fructose, Galac-
tose, Potassium
Phosphate,
Sodium Phosp-
hate, Methylpara-
ben, Propylp-
araben, Sodium
Hydroxide
1
2 3
U m leið og maður þjáist af streitu eða kvíða hefur það áhrif á allt sem maður gerir,
og þar er kynlífið alls ekki undanskil-
ið. Höfuðið fer á yfirsnúning, maður
nær ekki að slaka á og það segir sig
sjálft að það er mjög erfitt að koma
sér í stuð eða halda sér í stuði ef mað-
ur er að hugsa um eitthvað allt ann-
að,“ segir Sigga Dögg kynfræðingur.
Til að vera í núinu í kynlífinu
þarf einfaldlega að beita sömu að-
ferðum og vera í núinu almennt.
„Gott er að skipta yfir í hægari fasa
og njóta hvors annars. Það er líka
allt í lagi að vera ekki í stuði, kyn-
líf er ekki bara samfarir, við erum
alltaf með haus og hendur og það
má njóta hvors annars með því að
strjúka hvort öðru og litlum koss-
um og knúsum. Ég held að þegar
fólk hugsar um kynlíf hugsi það oft
ósjálfrátt um samfarir en ekki allt
litrófið og regnbogann sem kynlíf
er.“ Það er samt líka allt í lagi að
vera ekki í stuði eða ná honum ekki
upp, að sögn Siggu Daggar sem
verður í spjalli spjalli í næsta Heilsu-
tíma, sjónvarpsþætti sem sýndur er
á Hringbraut öll mánudagskvöld.
Þar mun hún ræða tengsl heilsu og
kynlífs og mikilvægi þess að vera í
núinu í kynlífinu. „Þetta snýst um
að eyða tíma með hvort öðru og gefa
sér tíma til að vera ekki í símanum,
tölvunni eða sjónvarpinu.“
Kynlíf í öllum
regnbogans litum
Sigríður Dögg Arnardóttir kynfræðingur hefur vakið athygli
fyrir að tala hispurslaust um kynlíf þar sem stutt er í húmorinn.
Hún segir að streita og kvíði hafi áhrif á allt sem maður gerir –
líka kynlífið.
„Ég held að þegar fólk hugsar um kynlíf hugsi það oft ósjálfrátt um samfarir en ekki
allt litrófið og regnbogann sem kynlíf er,“ segir kynfræðingurinn Sigga Dögg.
ATH: Astroglide TTC er ekki töfraefni sem mun auka líkur á getnaði hjá öllum.
Áhrifaþættir eru t.d. aldur, hormónajafnvægi, hvenær á tíðarhring samfarir eiga
sér stað og dugnaður sæðisfruma.