Fréttatíminn - 13.11.2015, Blaðsíða 46
volundarhus.is · Sími 864-2400
Vel valið fyrir húsið þitt
RÝMINGARSALA
ÚTSALA
Á GARÐHÚSUM
VH
/1
5-
01
34 mm bjálki / Tvöföld nótun
Allt á að seljast · Fyrstur kemur fyrstur fær
Tilboðin gilda 13. - 30. nóvember
Sjá eiri
GESTAHÚS og
GARÐHÚS á tilboði
á heimasíðunni
volundarhus.is
34 mm bjálki / Einföld nótun
GARÐHÚS 9,7 m²
Verð nú kr. 239.900
Verð áður kr. 299.900
www.volundarhus.is
28 mm bjálki / Einföld nótun
Verð nú kr. 215.900
Verð áður kr. 269.900
GARÐHÚS 9,7 m²
VERÐTILBOÐ
GESTAHÚS og
GARÐHÚS
sérhönnuð fyrir
íslenskar aðstæður
34 mm bjálki / Tvöföld nótun
34 mm bjálki / Tvöföld nótun
34 mm bjálki / Tvöföld nótun
Verð nú kr. 234.900 - áður kr. 299.900
VERÐTILBOÐ - GARÐHÚS 9,9 m² án gólfs
Verð nú kr. 135.900 - áður kr. 169.900
VERÐTILBOÐ - GARÐHÚS 4,4 m²
Verð nú kr. 149.900 - áður kr. 189.900
VERÐTILBOÐ - GARÐHÚS 4,7 m²
Allt að 20%afslátturaf öðrumgarðhúsum semtil eru á lager
É g heyrði fyrst af drápinu á basknesku hvalveiðimönn-unum fyrir nokkrum árum,“
segir Eñaut Tolosa, handritshöf-
undur og meðframleiðandi heim-
ildamyndarinnar Euskal Baleza-
leen Triskantza, eða „Drápin á
basknesku hvalveiðmönnunum“
sem verið er að leggja lokahönd
á. „Það var vinur minn sem sagði
mér söguna en hann hafði heyrt
hana á ferðalagi um Vestfirði. Ég
sá atburðina svo ljóslifandi fyrir
mér að ég ákvað að það yrði að
gera um þetta heimildamynd.
Þessi vinur minn, sem er fornleifa-
fræðingur, var líka mjög áhuga-
samur og langaði til að rannsaka
staðina sem Baskarnir fóru um.
Við ákváðum að fara saman og
að ferðalagið sjálft og rannsóknin
hans yrði rauði þráður heimilda-
myndarinnar,“ segir Eñaut sem
ákvað að fá teiknara til að gefa
sögunni líf svo myndin verður að
stórum hluta teiknimynd.
Frábær saga í bíómynd
Allt þar til í apríl á þessu ári voru
til íslensk lög frá því að tímum Ara
í Ögri, sem gerðu Baska réttdræpa
á Íslandi. Eñaut segir það hafa
vakið töluverða athygli spænskra
fjölmiðla þegar lögin voru afnumin
við formlega athöfn á Íslandi í vor,
en við það tilefni var afhjúpaður
minnisvarði um hvalveiðimennina
á Hólmavík. „Þessir atburðir voru
algjörlega óþekktir áður en afnám
þessara laga komst í fjölmiðla.
Þegar við byrjuðum að vinna að
þessari mynd vissi enginn um
hvað við vorum að tala en nú finnst
öllum sagan mjög áhugaverð, sér-
staklega vegna þessara laga sem
fólki finnst mjög fyndin, að Baskar
hafi í raun verið réttdræpir með
lögum þar til í sumar! Þetta hefur
auðvitað áhrif á myndina, fólk
kannast betur við atburðina, en
það sem heillaði okkur upphaflega
var þessi veröld halveiðimannanna
sem er okkur algjörlega óþekktur
heimur og svo auðvitað harm-
ræn örlög hetjunnar, Martin de
Gera kvikmynd
um Spánverjavígin
Árið 1615 strönduðu þrír hvalveiðibátar í Reykjafirði á Ströndum með þeim afleiðingum að 31 skipreka hvalveiðimaður var drepinn eftir að hafa verið dæmdir rétt-
dræpir af sýslumanninum á Vestfjörðum, Ara í Ögri. Það var ekki fyrr en þann 22. apríl á þessu ári sem lög frá árinu 1615 um að Baskar væru réttdræpir á Vest-
fjörðum voru afnumin. Kvikmyndagerðarmaðurinn Eñaut Tolosa er að leggja lokahönd á heimildamynd um atburðina sem hann segir innihalda öll nauðsynleg
hráefni góðrar bíómyndar. Hann segir söguna hafa verið óþekkta á Spáni þar til afnám laganna komst í fjölmiðla í vor.
Spánverjavígin
Villafranca. Þessi saga er frábær
og hefur allt að geyma sem þarf í
góða bíómynd.“
Pólitísk spilling
Átta manns koma að gerð myndar-
innar auk Eñauts; tveir mynda-
tökumenn, hljóðmaður, framleið-
andi, tveir fornleifafræðingar og
tveir teiknarar. Eñaut segir ferlið
hafa verið virkilega skemmtilegt
og ekki síst fræðandi, fornleifa-
rannsóknin hafi varpað nýju ljósi
á málið. „Við höfum gert nokkrar
uppgötvanir en þær verða bara
að koma fram í myndinni,“ segir
Eñaut. „Það lítur til að mynda út
fyrir að ástæða morðanna hafi
verið pólitísk spilling, þema sem
okkur finnst eiga sérstaklega vel
við í dag, og ekki síst á Spáni. Ari
Magnússon seldi Böskunum veiði-
leyfi þrátt fyrir að hann mætti það
ekki samkvæmt dönskum lögum.
Þess vegna vildi hann drepa þá
alla eins og fljót og unnt var, til að
skilja ekki eftir sig nein ummerki
spillingar.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Sumarið 1615 héldu þrjú basknesk
hvalveiðiskip til í Reykjafirði á
Ströndum, þar sem hvalurinn
var bræddur, og versluðu við
heimamenn með ýmsan varning.
Á Alþingi um sumarið var lesið upp
konungsbréf þar sem allar hval-
veiðar útlendinga við landið voru
bannaðar en samkvæmt helsta
heimildamanni Spánverjavíganna,
Jóni lærða Guðmundssyni, hafði Ari í
Ögri leyft veiðarnar gegn gjaldi. Um
haustið fóru hvalveiðimenn að huga
að heimferð en þann 21. september
skall á óveður og öll skipin brotnuðu
með þeim afleiðingum að 31 skipreka
baskneskur hvalveiðimaður var
drepinn eftir að þeir voru dæmdir
réttdræpir af sýslumanninum á Vest-
fjörðum, Ara í Ögri.
Kvikmynda-
gerðamaðurinn
Eñaut Tolosa við
tökur á Vest-
fjörðum.
46 viðtal Helgin 13.-15. nóvember 2015