Fréttatíminn - 13.11.2015, Blaðsíða 14
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS
VR óskar eftir
orlofshúsum
VR óskar eftir að leigja vönduð sumarhús eða orlofsíbúðir
til framleigu fyrir félagsmenn sína. Leitað er eftir húsnæði
á landsbyggðinni fyrir næsta sumar. Áhugasamir sendi inn
upplýsingar á vr@vr.is fyrir 1. desember 2015.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja tilboði:
- Lýsing á eign og því sem henni fylgir
- Ástand íbúðar og staðsetning
- Stærð, fjöldi svefnplássa og byggingarár
- Lýsing á möguleikum til útivistar og
afþreyingar í næsta nágrenni
Nauðsynlegt er að góðar ljósmyndir
og lýsing á umhverfi fylgi með.
Öllum tilboðum verður svarað.
Stígur fram
úr skugga
Jóns Gnarr
Það heyrir vart til tíðinda lengur þegar fjölmiðlafyrirtækið 365 tilkynnir um skipulagsbreytingar
– þá er jafnan fólki sagt upp störfum og breytingar verða á því hverjir fá eigin skrifstofu og
hverjir eru á gólfinu – og alltaf eiga þessum breytingum að fylgja mikil tækifæri. Á dögunum voru
kynntar skipulagsbreytingar á dagskrársviði fyrirtækisins og þar var kynnt til leiks Hrefna Lind
Heimisdóttir sem ber titilinn ritstjóri dagskrársviðs og á að stýra nýrri handritadeild þess. Þetta
er sama Hrefna Lind og titluð er meðhöfundur að nýjustu bók Jóns Gnarr – sem einmitt er yfir-
maður hennar í nýja starfinu. Við kynntum okkur þessa konu sem á nokkrum árum hefur farið frá
því að sitja á skólabekk og yfir í að vera ein áhrifamesta konan í íslenskum fjölmiðlum.
H refna Lind Heimisdóttir er fædd síðla árs 1975 og fagn-ar því fertugsafmæli sínu í
næsta mánuði. Mamma hennar var
fimmtán ára þegar hún átti hana
og Hrefna var ung þegar foreldrar
hennar skildu. Hún ólst upp hjá
móður sinni og stjúpföður í Hvera-
gerði.
Að loknu stúdentsprófi stundaði
Hrefna nám í heimspeki við Háskóla
Íslands. Hún útskrifaðist með BA-
próf árið 2005 og lokaritgerð henn-
ar fjallaði um Nietzsche og einstak-
lingshyggjuna. Síðar lagði Hrefna
stund á mastersnám í hagnýtri
ritstjórn og útgáfu sem hún lauk í
janúar 2012. Þar kallaðist lokarit-
gerð hennar: Að skilja kjarnann frá
hisminu. Ritstjórn, verklag og siða-
reglur fjölmiðla. Hrefna veltir þar
upp spurningum um hvort lagaleg-
ur og siðferðilegur rammi fjölmiðla
sé fullnægjandi hér á landi:
„Sérstaklega verður varpað fram
spurningum um ritstjórnarlega rétt-
lætingu þess að birta nöfn grunaðra
manna þar sem sakborningar lýsa
allir yfir sakleysi sínu og hvort og
hvernig slík umfjöllun samræmist
siðareglum og lögum,“ segir í kynn-
ingu á ritgerðinni á Skemmunni.
Því miður er ekki hægt að kynna
sér efni hennar nánar því ritgerðin
er læst fram til ársins 2032.
Hluti af mastersnámi Hrefnu
Lindar var starfsnám og réð hún
sig til bókaútgáfunnar Forlagsins.
„Það eru margir nemar sem fara hér
í gegn en þessi skar sig úr,“ segir
einn samstarfsmanna þar. „Hún
var allt önnur týpa en allir sem hér
vinna – stífmáluð og vel til höfð – og
í fyrstu spurði maður sig hvernig
hún ætti að þrífast hjá okkur. Svo
kom í ljós að þetta var mikil hæfi-
leikakona. Hún reyndist eldklár í
öllum störfum sem henni voru fal-
in.“
Samstarf Hrefnu og Jóns Gnarr
hófst á meðan hún var í starfsnámi
hjá Forlaginu. Þá var Jón önnum
Hrefna Lind Heimisdóttir
Fædd 28. desember 1975
Foreldrar: Guðrún Hanna Guð-
mundsdóttir og Runólfur Þór Jóns-
son, fósturfaðir. Faðir hennar heitir
Olav Heimir Davidson, bifvélavirki er
búsettur er í Stafangri í Noregi.
Maki: Friðjón Þórðarson (sonur
Þórðar Friðjónssonar, forstjóra
Kauphallarinnar).
Þau eiga samanlagt sex börn. Fyrir
átti Hrefna son og Friðjón son og
dóttur. Saman eiga þau þrjú börn á
aldrinum sex til níu ára.
Búseta: Garðabær.
Systkini: Sammæðra: Kristinn H.
Runólfsson, Thelma Rún Runólfs-
dóttir og Dagný Ösp Runólfs-
dóttir sem lést í bílslysi á Hellisheiði
í árslok 2013 aðeins 21 árs að aldri.
Samfeðra: Drífa Heimisdóttir,
Berglind Þöll Heimisdóttir, Dagmar
Björk Heimisdóttir og Alla María
Heimisdóttir.
Menntun: Stúdentspróf frá Mennta-
skólanum á Laugarvatni. BA í heim-
speki frá HÍ. Meistarapróf í hagnýtri
ritstjórn og útgáfu frá HÍ.
Ferill: Aðstoð við skrif á bók Jóns
Gnarr, Sjóræninginn.
Einn handritshöfunda sjónvarps-
þáttanna Borgarstjórinn sem nú eru
í vinnslu.
Meðhöfundur bókar Jóns Gnarr,
Útlaginn.
Ritstjóri dagskrársviðs 365.
kafinn í starfi sínu sem borgarstjóri
í Reykjavík en var um leið að vinna
að annarri bókinni um æsku sína,
Sjóræningjanum. Hann var að leita
að manneskju til að aðstoða sig við
að slá inn hugmyndir og texta fyrir
bókina og úr varð að þau Hrefna
voru leidd saman.
„Þau smullu svona rosalega vel
saman, þó ólík séu. Þau höfðu
greinilega mikla ánægju hvort af
öðru,“ segir einn viðmælenda.
Hrefna aðstoðaði Jón við skrif á
Sjóræningjanum og síðan þá hafa
þau unnið saman. Hún er með hon-
um í handritshöfundateymi fyrir
sjónvarpsþættina Borgarstjórinn
og hjálpaði honum við skrif á þriðju
sjálfsævisögulegu bókinni sem kom
út á dögunum, Útlaganum. Öfugt
við fyrri bókina er Hrefnu getið á
titilsíðunni. Útlaginn er skrifaður
„í samstarfi við“ Hrefnu. Hrefna
ferðaðist meðal annars út til Banda-
ríkjanna til að skrifa með Jóni þeg-
ar hann dvaldist í Houston í Texas
fyrripart ársins.
„Hún hefur reynst Jóni Gnarr al-
gjör happafengur, hún sér um að
balansera hann. Hann er með ríkt
hugmyndaflug og fer í allar áttir
en hún sér um að stýra hlutunum í
skapandi og skynsamlegan farveg,“
segir samstarfsmaður þeirra beggja
sem telur samstarf þeirra hafa verið
gæfuspor – fyrir þau bæði.
„Hún er harðdugleg og ákveð-
in,“ segir annar samstarfsmaður
Hrefnu. „Hún er skipulögð og alltaf
vel undirbúin. Hún hefur sínar skoð-
anir en hlustar líka á aðra og tekur
nýjum hugmyndum mjög vel. Þetta
er snjöll kona og með bein í nefinu.“
Fólk sem hefur umgengist
Hrefnu Lind segir að það geti tekið
tíma fyrir hana að opna sig á nýjum
stað, hún sé ekkert að blása út við
fólk sem hún ekki þekkir. Hins veg-
ar sé hún mjög opin fyrir öllu spjalli
þegar fólk er farið að kynnast.
Þannig er þessu farið á nýjum
vinnustað hennar, 365 miðlum, þar
sem hún hóf störf í síðustu viku.
„Hún lítur út fyrir að vera bæði
almennileg og klár og býður af
sér mjög góðan þokka,“ sagði einn
starfsmaður þar á bæ.
Hrefna deilir skrifstofu með Jóni
Gnarr og stýrir nýstofnaðri hand-
ritadeild fyrirtækisins. Ætlunin
mun vera að auka framleiðslu á
íslensku gæðasjónvarpsefni og
starf Hrefnu felst í gæðastjórnun
– að halda utan um alla þræði þar.
Reyndar virðist enginn vita ná-
kvæmlega hvað í starfi Hrefnu á að
felast. Jón Gnarr tilkynnti á fundi að
þau hafi unnið lengi saman og síðan
þá hefur verið unnið að mótun þess-
arar nýju deildar með tilheyrandi
fundahöldum. Ljóst má þó vera að
Hrefnu er ætlað lykilhlutverk við
hlið Jóns Gnarr. Uppgangur henn-
ar frá því að sitja á skólabekk fyrir
nokkrum árum og vera nú komin í
háa stöðu í stærsta fjölmiðlafyrir-
tæki landsins er því afar athyglis-
verður.
Fólk sem Fréttatíminn ræddi við
lagði allt áherslu á hversu vel þau
Hrefna og Jón nái saman.
„Það skilja hvort annað mjög
vel og hafa myndað náin og góð
tengsl. Það er mjög gott fyrir fólk
eins og Jón að hafa manneskju eins
og Hrefnu í kringum sig – mann-
eskju sem þeir treysta. Hún er al-
gjör kjarnorkukona.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
14 nærmynd Helgin 13.-15. nóvember 2015