Fréttatíminn - 13.11.2015, Blaðsíða 22
Síðustu
þrjú ár
hafa karlar
hlotið
verðlaunin
og tölu-
verður kurr
er kominn
upp í
kvenna-
hópum,
sem þykir
komin
pungalykt
af verð-
laununum.
T ilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna verða tilkynntar í byrjun
desember og bókmenntaáhuga-
fólk er farið að velta upp hug-
myndum um hver sé líklegur til
að hljóta þau eftir áramótin. Ólíkt
því sem verið hefur tvö undanfar-
in ár er enginn augljós kandídat í
flokki fagurbókmennta en margir
hallast að því að Hundadagar
Einars Más Guðmundssonar séu
líklegasti kosturinn. Einar Már
hefur aldrei hlotið Íslensku bók-
menntaverðlaunin – ótrúlegt en
satt og bók hans Englar alheims-
ins, sem hlaut bókmenntaverð-
laun Norðurlandaráðs 1995, var
ekki einu sinni tilnefnd til þeirra,
sem þykir einn alalvarlegasti
skandall í sögu verðlaunanna.
Það er því mál manna að kom-
inn sé tími til að sýna Einari Má
verðskuldaðan sóma, auk þess
sem Hundadagar þykja ein besta
skáldsagan á vertíðinni.
Komin pungalykt af verðlaun-
unum
Málið er þó engan veginn svona
einfalt. Síðustu þrjú ár hafa karlar
hlotið verðlaunin og töluverður
kurr er kominn upp í kvennahóp-
um, sem þykir komin pungalykt
af verðlaununum. Af þeim konum
sem bækur eiga á þessari vertíð
þykir Linda Vilhjálmsdóttir lík-
legust til að hljóta verðlaunin fyrir
ljóðabók sína Frelsi, enda er þar
á ferðinni ein allra besta ljóðabók
síðustu ára og jafnvel hörðustu
andfemínistar gætu ekki rökstutt
það að kynferði höfundar hefði
neitt með málið að gera hlyti hún
verðlaunin. Tilfinningarök Þórdís-
ar Gísladóttur og skáldsaga Auðar
Jónsdóttur, Stóri skjálfti, hafa
einnig verið nefndar sem hugsan-
legir verðlaunahafar og jafnvel
hefur kvisast að fyrsta skáldsaga
Kristínar Helgu Gunnarsdóttur,
Litlar byltingar, komi sterk inn í
slaginn. Skáldættarsaga Þórunn-
ar Jörlu Valdimarsdóttur, Stúlka
með höfuð, kemur líka vel til
greina, spurningin er bara hvort
hún verði sett í flokk fagurbók-
mennta þar sem um endurminn-
ingar er að ræða, því ævisögur
hafa yfirleitt verið settar í flokk
fræðirita og rita almenns efnis.
Minnisbók Sigurðar Pálssonar
hlaut þó verðlaunin í flokki fagur-
bókmennta árið 2007 þannig að
fordæmið er til staðar og ástæðu-
laust að strika Þórunni strax út af
listanum um þá sem hreppt gætu
verðlaunin.
Jón Kalman verið hunsaður
Annar af stóru karlhöfundunum
sem þykir sterklega koma til
greina er Jón Kalman Stefánsson,
en bók hans Eitthvað á stærð við
alheiminn hefur fengið rífandi
dóma og jafnvel verið kölluð hans
besta verk. Jón hlaut verðlaunin
árið 2005 fyrir Sumarljós og svo
kemur nóttin og þykir sumum
freklega hafa verið gengið
framhjá honum af dómnefndum
verðlaunanna þar sem engin
bókanna í þríleik hans um Strák-
Er tími Einars Más kominn?
Einn af þeim samkvæmis-
leikjum sem bókelskir stunda
á jólavertíðinni er að velta
fyrir sér hver muni hljóta Ís-
lensku bókmenntaverðlaunin
sem veitt verða eftir
áramótin. Sitt sýnist hverjum,
eins og gengur, en tvö nöfn
virðist bera hæst í um-
ræðunni; Einar Má Guð-
mundsson og Lindu Vilhjálms-
dóttur.
Linda Vilhjálmsdóttir á án efa bestu ljóðabók vertíðarinnar og ætti að
margra mati að hljóta verðlaunin.
Mörgum hefur þótt súrt að Jón Kalman Stefánsson skuli ekki hafa
hlotið verðlaunin fyrir bækurnar í þríleiknum vinsæla og þykir
einboðið að hann hljóti þau nú.
Mörgum bókmenntaunnandanum þykir einboðið að Einar Már Guðmundsson hljóti verðlaunin að þessu sinni.
inn og Plássið hlaut náð fyrir augum
nefndanna. Sömuleiðis hafa heyrst
þær raddir að skáldævisaga Hallgríms
Helgasonar, Sjóveikur í München,
verði að minnsta kosti tilnefnd og
komi vel til greina sem verðlaunahafi
en hann hefur ekki hlotið þau síðan
2001 fyrir Höfund Íslands og þótti
mörgum ansi súrt að hann skyldi
ekki fá verðlaunin fyrir Konuna við
1000°um árið. Ljóðabók Sjóns, Grás-
pörvar og ígulker, hefur ekki farið
hátt í umræðu vertíðarinnar en ýms-
um finnst hún vera sterkur kandídat
í verðlaunakeppninni. Sjón hlaut hins
vegar verðlaunin fyrir Mánastein fyrir
tveimur árum og því verður að teljast
ólíklegt að honum hlotnist þau aftur,
hversu góð sem bókin er.
Hver það verður veit nú enginn
Margar aðrar bækur hafa verið
nefndar í umræðunni manna á milli,
nöfn Jóns Gnarr og Mikaels Torfasonar
verið nefnd og ný skáldsaga Ólafs
Gunnarssonar, Syndarinn, þykir af
sumum koma sterklega til greina sem
verðlaunahafi. Heimska Eiríks Arnar
Norðdahl, sem hlaut verðlaunin 2012
fyrir Illsku, þykir hins vegar ekki lík-
leg til að blanda sér í toppbaráttuna en
vegir dómnefnda eru órannsakanlegir
og engin ástæða til að afskrifa hana
strax. Svo eru oft tilnefndar bækur
sem enginn af bókmenntaspekúlönt-
unum hefur látið sér detta í hug að ætti
möguleika, þannig að allt getur gerst
og ekkert er öruggt.
Hér verður ekki farið út á þann
hála ís að velta fyrir sér mögulegum
verðlaunahöfum í flokkum Fræðirita
og rita almenns efnis eða barnabóka,
þótt ýmsir séu þegar farnir að sjá fyrir
sér verðlaunagripinn fyrir barnabæk-
urnar á arinhillu Gerðar Kristnýjar.
Allt kemur þetta í ljós með tímanum,
fyrst fáum við að sjá tilnefningarnar í
byrjun desember og þá hefst nýr sam-
kvæmisleikur; að velta því fyrir sér
hver tilnefndra bóka sé líklegust til að
hreppa hnossið. Allt er þetta afskap-
lega ábyrgðarlaust og ófaglegt en lyftir
geðinu í skammdeginu og, það sem
mestu skiptir, eykur umræðu um bók-
menntir.
Friðrika Benónýsdóttir
fridrika@frettatiminn.is
22 bækur Helgin 13.-15. nóvember 2015