Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.11.2015, Blaðsíða 68

Fréttatíminn - 13.11.2015, Blaðsíða 68
Helgin 13.-15. nóvember 201568 Þ að má segja að röddin sé í raun vöðvi sálarinnar,“ segir Þórey. „Það hvernig okkur líð- ur endurspeglast í röddinni og þegar við þjálfum röddina hefur það góð áhrif á sálina.“ Þórey kynntist mætti raddarinnar fyrst fyrir um það bil 20 árum og í dag kennir hún sjálfstyrk- ingarnámskeið fyrir þá sem vilja styrkja framkomu sína og rödd undir yfirskriftinni „Röddin – vöðvi sálar- innar.“ „Nafnið á námskeiðinu er til- vísun í Roy Hart, sem er þekktur úr leikhúsheiminum. Hann byrjaði að gera tilraunir með röddina á sjöunda áratugnum og sótti innblástur frá tónlistarmanni að nafni Alfred Wolf- sohn sem var hermaður í fyrri heim- styrjöldinni. Í stríðinu missti hann marga félaga sem hafði mikil áhrif á hann og eftir stríðið ásóttu þessi hljóð hann, hljóðin úr deyjandi lík- ömum. Til að vinna úr þessari erfiðu reynslu notaði hann ákveðna tækni til að heila sig í gegnum röddina.“ Upplifði röddina á nýjan hátt Þórey kynntist þjálfunartækninni fyrir tveimur áratugum. „Ég fór á námskeið hjá Nadine George sem hefur mótað þessa raddþjálfunarað- ferð og námskeiðið breytti lífi mínu, svo einfalt er það. Ég upplifði rödd- ina á alveg nýjan hátt.“ Þórey lauk kennsluréttindum frá Voice Studio International, sem Nadine George stendur fyrir, og hefur hún meðal annars kennt leiklistarnemum í Listaháskóla Íslands og Kvikmynda- skóla Íslands raddbeitingu. Hún seg- ir þó að þessi tækni nýtist á öllum sviðum samfélagsins. „Það að vinna í röddinni skapar svo góðan jarðveg fyrir annars konar vinnu, hvort sem það tengist texta, myndlist eða sjálfs- tjáningu. Þú tengir þig beint við sjálf- ið og sköpunarkraftinn.“ Góð raddbeiting skapar góða nærveru Á námskeiðunum er unnið að því að finna jafnvægi í gegnum önd- unar- og raddæfingar. „Þetta er í raun ný vakning í heildrænni líkamsrækt. Röddin er mjög lík- amlegur hluti en verður gjarnan útundan þegar talað er um lík- amsrækt. Röddin endurspeglar gjarnan hvernig okkar líður, mót- ar sjálfsmyndina og tengir þann- ig saman líkamlega og andlega heilsu okkar,“ segir Þórey. Hún vill því varpa ljósi á röddina og segir mikilvægt að þjálfa hana eins og hvern annan vöðva. „Ég held að fæstir geri sér líka grein fyrir möguleikunum sem felast í því að þróa röddina sem atvinnu- tæki. Það er hvaða starfi maður gegnir, það er alltaf meiri krafa á að geta staðið upp og gert grein fyrir máli sínu og því er svo mikil- vægt að geta beitt röddinni rétt.“ Góð raddbeiting skapar auk þess góða nærveru og hefur jákvæða áhrif á sjálfsmyndina, að sögn Þóreyjar. „Röddin er yfirleitt það fyrsta sem hverfur þegar við finn- um fyrir óöryggi en ef við höfum þjálfað hana og höfum tækni til að byggja á, þá brestur hún okk- ur ekki undir krefjandi kringum- stæðum.“ Námskeiðið fer fram í Tveimur heimum, miðstöð f jölbreyttrar hreyfingar, en meðal námskeiða sem þar er hægt að sækja er hug- leiðsla með Birni Bjarnasyni, fyrr- verandi ráðherra. „Röddin er svo sannarlega vöðvi sálarinnar og með því að tengja saman líkama og sál með öndun og æfingum líður manni svo vel, bæði andlega og líkamlega.“ Erla María Markúsdóttir erlamaria@frettatiminn.is „Það er fátt skemmti- legra að sjá en þegar fólk heyrir nýjan hljóm í eigin rödd,“ segir Þórey Sigþórs- dóttir leikkona. Raddþjálfun og hvernig við beitum röddinni á að vera hluti af heilsurækt okkar að mati Þóreyjar og býður hún upp á námskeið þar sem hún kennir tækni sem hjálpar til við að upp- götva mátt eigin raddar. Mynd/Hari Þegar kemur að því að hugsa um heilsuna er yfirleitt fjallað um tvenns konar heilsu; líkamlega og andlega. En hvað með röddina? Þórey Sigþórsdóttir, leikkona og kennari, segir röddina tengja saman líkamlega og andlega heilsu. Hún hefur um árabil kennt fólki að uppgötva og beita eigin rödd með sérstakri tækni sem byggist á öndunar- og raddæfingum.  Heilsurækt röddin er vöðvi sálarinnar Röddin mótar sjálfsmyndina Fæst í apótekum og heilsubúðum Betra blóðflæði Betri heilsa Einstök virkni og gæði þú finnur muninn Nitric Oxide Superbeets allt að 5 sinnum öflugri 1. dós superbeets jafngildir 30 flöskum af 500 ml rauðrófusafa Íslensk vottun á virkni NO3 Sýni rannsóknarstofa - Nýsköpunarmiðstöð Íslands Eftir fertugt framleiðir líkaminn 50% minna Nitric Oxide. SUPERBEETS örvar Nitri c Oxide framleiðslu strax. Bætt blóðflæði og aukin súrefnisupptaka hefur jákvæð áhrif á alla starfsemi líkamans, þ.m.t. hjarta og æðakerfi. ATH: Breyting nítrats úr fæðu í Nitric Oxide. (NO) byrjar í munni, þess vegna er SuperBeets tekið inn í vökvaformi, en ekki töfluformi. Nánari upplýsingar www.SUPERBEETS.is Umboð: vitex ehf - Upplýsingasími 896 6949 Náttúruleg t Upplýsingasími 896 6949 - og www.vitex.is Melatónin ZenBev Triptófan úr graskersfræjum Fæst í apótekum og heilsubúðum Evonia er hlaðin bæti- efnum sem næra hárið og gera það gróskumeira. Myndirnar hér til hliðar sýna hversu góðum árangri er hægt að ná með Evonia. Evonia www.birkiaska.isFyrir Eftir Evonia eykur hárvöxt með því að veita hárrótinni næringu og styrk. Bætiefni ársins í Finnlandi 2012. www.birkiaska.is Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika og verkjum í liðamótum og styrkir heilbrigði burðarvefja líkamans. 2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni. Bodyflex Strong
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.