Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.11.2015, Blaðsíða 26

Fréttatíminn - 13.11.2015, Blaðsíða 26
Við erum ekki enn komin heim að brennu Jólasýning Borgarleikhússins í ár er Njála. Leikrit sem byggt er á einni ástsælustu Íslendingasögunni, Brennu-Njálssögu. Leikgerðin er í höndum þeirra Mikaels Torfasonar og Þorleifs Arnarssonar sem einnig leikstýrir. Þorleifur er vanur því að fara sínar eigin leiðir og mikil leynd hvílir yfir því hvaða leikari leikur hvaða hlutverk í sýningunni, og þá sérstaklega hver muni fara með titilhlutverkið, Njál. Brynhildur Guðjónsdóttir leikkona fer með eitt hlutverka sýningarinnar og viðurkennir hún að hún sé búin að lesa mikið og læra texta Njáls. Hún segist þó ekki alveg vera viss ennþá hvort hún muni túlka hann á endanum. „Ef ég á að vera alveg hreinskilin þá veit ég samt ekki hvert við munum fara á næstu vikum fram að frumsýningu. Það er samt traust. Það er gagnkvæm virðing. Það er hugmyndaflug og vilji til þess að kanna þessar lendur. Það eru þvílík forréttindi að vinna með öllu þessu frábæra fólki. Það mundi gleðja mig mjög ef ég fengi að halda áfram að vinna með textann hans Njáls.“ Ljósmynd/Hari E nn sem komið er, hef ég ver-ið að fást svolítið við hann Njál. Ég fer ekkert í grafgöt- ur með það. En það er alveg skýrt að það getur breyst, alveg fram að frumsýningu,“ segir Brynhildur Guðjónsdóttir leikkona. „Þann- ig leikstýrir Þorleifur. Núna erum við búin að æfa í tvær vikur og það hefur verið algerlega stórkostlegt. Hans vinnuaðferð er mjög opin fyrir okkur, en hún er lokuð fyrir hon- um. Í þeim skilningi að hann veit hvað hann vill,“ segir hún. „Hann ýtir okkur mjög langt og það er mjög mikið frelsi. Ég veit ekkert hvað gerist næst. Það er svo mikið traust og gagnkvæm virðing að við getum ekki annað en farið alla leið í þessari vinnu. Þetta er líka alveg rosalega erfitt. Brjálæðislega mikill texti,“ segir hún. „Ég hef bæði feng- ist við Eglu og Laxdælu og þetta er miklu erfiðara. Það eru svo miklar lagaflækjur og það sem mér finnst svo áhugavert við þessa sögu er hvað hún er miklu karllægari í allri byggingu. Hún minnir um margt á réttardrama. Atburður gerist og svo er dæmt í málinu. Réttarkerfið var vissulega annað á þjóðveldisöld en það sem við þekkjum í dag, og það er bara svo gaman að skoða þetta,“ segir Brynhildur. „Við erum ekki kominn á þann stað að tímasetja þetta verk. Það er enginn með GSM síma í sýningunni, en um leið er heldur enginn með sverð og skjöld. Nema kannski stundum,“ segir hún sposk. Ein af þjóðargersemunum „Njáll Þorgeirsson á Bergþórshvoli er fullkomlega passífur karakt- er,“ segir Brynhildur. „Hann gerir aldrei neitt, segir ekki neitt, nema hann sé inntur álits og þurfi að leysa einhverja flækju. Hann er aldrei hvatinn að neinu í sögunni. Ef mað- ur skoðar hvert sé aðalhlutverkið í sögunni þá sér maður Hallgerði og um leið hinar konurnar í sögunni,“ segir hún. „Eins og Unnur Marðar- dóttir sem þarf að láta sækja fyrir sig fé og setur frænda sinn, Gunn- ar Hámundarson, af stað, sem er líka hetja í sögunni. Skarphéðinn er einnig mjög aktífur karakter í þessu öllu og svo Kári Sölmundar- son sem er sá allra flottasti. Ef menn væru að keppast um þessi hlutverk erlendis þá held ég að fáir myndu rétta upp hönd og velja Njál,“ segir Brynhildur. „Vinnuferlið er þannig að þetta er mjög stór hópur, sem spannar alveg frá yngstu leikurum Borgar- leikhússins til þeirra sem mesta reynslu hafa í húsinu,“ segir hún. „Við erum líka með dansara úr Ís- lenska dansflokknum. Þarna mun koma inn karlakór á seinni stigum. Árni Heiðar píanóleikari er með okkur í þessu. Sunneva búninga- hönnuður og Ilmur leikmyndahönn- uður eru mjög aktífir þátttakend- ur í vinnunni ásamt öllum hinum. Það sem Þorleifur gerir, er að hann skiptir okkur upp í hópa og sendir okkur út til þess að vinna ákveðinn part. Þegar við komum til baka þá sjáum við hvernig hver hópur vann hvern part,“ segir hún. „Í svoleiðis vinnu er ekkert ákveðið hver leikur hvern. Það bara gerist. Stundum tekur maður bara að sér það hlut- verk sem hendi er næst. Frelsið er líka fólgið í því hvað við erum að grautast mikið með þetta. Um daginn voru allir karlleikararnir að leika Gunnar og allar konurnar voru að leika Hallgerði. Það er gaman. Það mun alveg pottþétt vera þannig að karakterarnir geta verið marg- faldir upp að vissu marki. Gunnar mun hafa sig í frammi fimmfaldur. Ímynd Hallgerðar mun líka koma sterkt fram. Bergþóru er líka lýst sem dreng góðum. Hvað þýðir það? Er það Jói Sig? Ég veit það ekki. Við erum þó mjög vakandi fyrir því að þetta er þjóðargersemi og saga okk- ar Íslendinga,“ segir Brynhildur. Mikið traust og virðing innan hópsins Brynhildur segir að leikgerðin sé unnin upp úr Njálssögu en um leið séu nýjar slóðir fetaðar. Hún er ekki hrædd um viðbrögð leikhúsgesta sem margir hverjir séu vanafastir í sínum skoðunum, sér í lagi hvað varðar Íslendingasögurnar. „Það segir sig auðvitað sjálft að við erum ekki að fara að leika þessa hundr- að þúsund orða bók,“ segir hún. „Mikael og Þorvaldur hafa því gert þessa leikgerð og það er þeirra að vera þetta utanaðkomandi auga og gera þetta skiljanlegt. Líka fyrir þann sem aldrei hefur lesið Njálu. Það er þó klárt mál að hver og einn áhorfandi mun upplifa þetta á sinn hátt. Leikhús er þannig að þú átt ekki að þurfa að þekkja efnið áður en þú kemur. Þú átt að geta sest í salinn og horft á sögu, hver sem hún er,“ segir hún. „Sá sem er bú- inn að gera mjög djúpar rannsóknir á Njálu mun upplifa hlutina á annan hátt, og kannski sakna einhvers, en hann mun kannski í staðinn fá einhverja upplifun á einhverju sem hann þekkir, og skoða svo á annan hátt. Nú erum við nokkur í þessum hópi sem höfum skoðað þessar sögur áður,“ segir Brynhildur. „Ég sagði t.a.m. sögu Þorgerðar Brák- ar. Konu sem um voru ritaðar ellefu línur í Egilssögu. Úr varð tveggja tíma leikrit, óhjákvæmilega út frá sjónarhorni konu því það var mín túlkun. Það er svo áhugavert að sjá að ég túlka kannski einhvern hlut á allt annan hátt en nýútskrifuð koll- ega mín, eða dansari úr dansflokkn- um. Það er það sem er svo gaman í þessu. Jóhann Sigurðarson er með sína sýn á þessum hlutum. Sigrún Edda Björnsdóttir svo með allt aðra. Svo uppgötvum við allskonar hluti í sameiningu. Við erum samt komin svo stutt á veg ennþá. Við erum ekki einu sinni komin heim að brennu,“ segir Brynhildur. „Þetta verður stór og mikil sýn- ing. Ef ég á að vera alveg hrein- skilin þá veit ég samt ekki hvert við munum fara á næstu vikum fram að frumsýningu. En það er traust. Það er gagnkvæm virðing. Það er hugmyndaflug og vilji til þess að kanna þessar lendur. Það eru þvílík forréttindi að vinna með öllu þessu frábæra fólki. Það mundi gleðja mig mjög ef ég fengi að halda áfram að vinna með textann hans Njáls,“ segir Brynhildur með leyndardóms- fullu augnaráði. Fer í trans með Piaf Edith Piaf hefur verið samferða Brynhildi um árabil. Hún lék söng- konuna í söngleik eftir Sigurð Páls- son í Þjóðleikhúsinu fyrir rúmum áratug og nú í desember ætlar Bryn- hildur að fagna aldarafmæli söng- konunnar með tónleikum í Hörpu. Hún segir tónlistina og sönginn vera mikla slökun fyrir sig og á auðvelt með að kúpla sig úr Njálu til þess að túlka tónlist söngkonunnar frönsku. „Þetta fer ákaflega vel saman,“ segir hún. „Maður kemur dauð- þreyttur af æfingum á Njálu, bæði líkamlega og jafnvel meira andlega. Þess vegna er æðislegt að fá aukið andrými með því að syngja Edith Piaf. Tónleikarnir verða þann 19. desember sem er um sama leyti og ég er á hápunkti æfingaferlisins á Njálu og ég ætla að nota þetta sem fullkomna slökun,“ segir hún. „Ég veit það og trúi því, því ég og mín Edith Piaf höfum verið svolítið eitt síðustu tíu ár og ég næ slökun í þessari tónlist. Þetta er líka bara gleðistund. Við erum ekki þarna til þess að vinna neina bikara. Við ætlum að heiðra bæði hana og Sig- urð Pálsson, höfund leikritsins sem fagnar 40 ára rithöfundarafmæli um þessar mundir. Við verðum með sjö manna hljómsveit undir stjórn Jó- hanns G. Jóhannssonar sem situr sveittur við útsetningar þessa dag- ana. Það er rosalega mikil tilhlökk- un og þetta verður stórkostlegt. Það er bara að röddin haldist. Ég fer í einhverskonar trans þegar ég syng Edith Piaf. Ég fer eitthvert annað, en er þó ég,“ segir Brynhildur Guð- jónsdóttir leikkona. Njála verður frumsýnd í Borgar- leikhúsinu 30. desember. 100 ára af- mæli Edith Piaf verður í Hörpu þann 19.desember. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Gylfaflöt 7 112 Reykjavík 587 8700 krumma.is Skemmtieg og spennandi jóladagatöl frá LEGO 4718kr 4718kr 7198kr 26 viðtal Helgin 13.-15. nóvember 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.