Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.11.2015, Page 42

Fréttatíminn - 13.11.2015, Page 42
3.250.000 kr. Kia cee’d SW 1.6 Árgerð 2013, ekinn 34 þús. km, dísil, 128 hö, beinskiptur. 2.350.000 kr. Kia Rio LX 1.4 Árgerð 2014, ekinn 19 þús. km, dísil, 90 hö, beinskiptur. 6.450.000 kr.3.950.000 kr. Kia Sorento LuxuryKia cee’d EX 1.6 Árgerð 2014, ekinn 43 þús. km, dísil, 198 hö, sjálfskiptur. Árgerð 2014, ekinn 12 þús. km, dísil, 128 hö, sjálfskiptur.4.690.000 kr. Kia Sportage EX Árgerð 2013, ekinn 38 þús. km, dísil, 136 hö, sjálfskiptur. 42.777 kr. á mánuði* 51.777 kr. á mánuði* 30.777 kr. á mánuði* 84.777 kr. á mánuði* Afbo rgun aðe ins: 61.7 77 k r./mán .* *Mánaðargreiðsla m.v. 70% bílalán í 72 mánuði. Vextir 9,25% og árleg hlutfallstala kostnaðar er 11%. **Ábyrgð er í 7 ár frá skráningardegi bifreiðar. ÁRA ÁBYRGÐ Notaðir ÁRA ÁBYRGÐ Notaðir ÁRA ÁBYRGÐ Notaðir ÁRA ÁBYRGÐ Notaðir ÁRA ÁBYRGÐ Notaðir NOTAÐIR BÍLAR www.notadir.is Kletthálsi 2 110 Reykjavík 590 2160 Opnunartími: Virka daga 10–18 Laugardaga 12–16 Allt að 7 ára ábyrgð fylgir notuðum Kia**Ábyrgð fylgir! banareið. Báturinn fylgir háum öldunum upp á við og hossast svo niður með látum, hvað eftir annað. Sem betur fer höfðum við öll tekið sjóveikitöflur á flugvellinum og því vel í stakk búinn fyrir slíka svaðilför, ólíkt aðal- persónum Ég man þig, sem sýndu ekki sömu fyrirhyggjuna á leið sinni til Hesteyrar. Þegar við nálgumst áfangastað er akkerinu kastað skammt frá ströndinni og gúmmí- bátur er settur á flot til að skila okkur síðasta spölinn. Yrsa fær það verkefni að halda á afmælistertunni á meðan blaðamaður lætur sér nægja að halda í næsta mann (Ólaf), enda óvanur því að sigla um í bátum sem þessum. Flótti frá tökuvélinni Þegar upp á ströndina er komið, allir hálfvotir en með tertuna í fullkomnu ásigkomulagi, er kallað á hópinn í gegnum talstöð: „Þið eruð í ramma!“ Okkur er í snarheitum gert að fela okkur úr augsýn myndatökuvélarinnar í ná- lægum geymsluskúr þangað til fyrirmæli um að allt sé með felldu eru gefin. Tökur á mynd- inni eru greinilega í fullum gangi og kemur ekki til greina að öskra „kött“, eingöngu til að taka á móti glæpasagnadrottningunni Yrsu og fylgdarliði hennar. Tíminn í þorpinu fer í að mynda Hesteyrar-kafla bókarinnar, utan- húss, og er hver mínúta nýtt til hins ítrasta á meðan bjart er úti. Við göngum næst eftir þröngum grasstíg að læknishúsinu, sem kemur einmitt við sögu í bókinni, en þurfum að stoppa á miðri leið til að lenda ekki aftur „í ramma“. Það er verið að taka upp atriði með Önnu Gunndísi Guð- mundsdóttur, sem fer með hlutverk Katrínar. Leikarar í læknishúsi Þegar við fáum grænt ljós göngum við að hús- inu, þar sem dökkbrúnn refur nálgast okkur rólega í grasinu, greinilega ánægður að sjá ný andlit á svæðinu. Inni í húsinu tekur Ágústa Eva Erlendsdóttur, sem leikur Líf, á móti okkur með bros á vör og býður okkur vel- komin. Þegar við sitjum svo inni í stofunni og bíðum eftir kaffi og samlokum frá rómuðum þýskum kokki staðarins, gengur Þorvaldur Davíð Kristjánsson, sem leikur Garðar, framhjá og heilsar upp á fólkið, kumpánlegur mjög. Það er stund á milli stríða hjá þeim Þor- valdi Davíð og Ágústu Evu, því núna er Anna Gunndís, eða Dunda, í sviðsljósinu. Kaldur vindur og blautur mosi Eftir kærkominn matarbita röltum við Yrsa, Ólafur og Skúli í átt að næsta tökustað í von um að heilsa upp á leikstjórann Óskar Þór Axelsson og hans aðstoðarmenn en fyrsta kvikmynd hans í fullri lengd var Svartur á leik sem sló rækilega í gegn árið 2012. Aftur þurfum við að leita skjóls í sama, litla skúrn- um til að lenda ekki „í ramma“ og í þetta sinn er biðin ívið lengri. Annað grænt ljós er gefið og við göngum áfram í köldum vindinum í gegnum blautan mosa, drullusvað og hvönn, sem hefur dreift sér allhressilega um svæðið. Glamúrinn sem margir tengja við kvik- myndatökur er víðs fjarri þessa stundina. Sem fluga á vegg fylgjumst við með upp- tökum á öðru atriði með Dundu, sem horfir ákveðin í átt að myndavélinni, áður en hún gengur í burtu í gegnum hvönnina. Eftir nokkrar tökur á sama atriðinu gefur hún sér tíma til að heilsa upp á okkur, rétt eins og restin af tökuliðinu. Óskar Þór, sem skrif- aði einnig handrit myndarinnar ásamt Ottó Borg, er ánægður með tökurnar til þessa en þær hófust deginum áður í báti þar sem aðal- persónurnar voru myndaðar á leið sinni á Hesteyri. Tökurnar hófust því á nákvæmlega sama stað og bókin byrjaði. Drungalegt „lúkk“ á Hesteyri „Við vorum að sigla í gær [á mánudag] og mynda. Það var rosaleg áskorun. Við vorum mjög heppin með veður. Það var falleg þoka á leiðinni, sem rímar vel við söguna,” segir Óskar Þór með spennuglampa í augunum. Hann lýsir því einnig hvernig tökuliðið hjálp- aðist að við að bera „brjálæðislegan helling“ af tækjum og tólum í land með því að mynda röð frá ströndinni í átt að næsta húsi. Líkast til heldur meiri burður en vatnið, súkkulaði- kakan og eyrnartapparnir sem hafði komið í hlut okkar að bera. „Núna þarf að rúlla „kamerunni“ eins og við getum til að geta náð þessu svæði vel. Það er verkefnið. „Lúkkið“ er svo gott á þessum árstíma. Það er mjög drungalegt og maður þarf ekkert að ímynda sér neitt,” segir Óskar Þór og heldur áfram. „Það er magnað að byrja hér. Þetta gefur okkur gott start og þetta „lúkk“ hérna er algjörlega fullkomið fyrir þessar tökur.“ Núna þarf Óskar Þór að skjótast til að taka upp hjá kirkjugarðinum og við nýtum tæki- færið og förum að tygja okkur heim á leið. Stutt, tæplega þriggja tíma stopp á Hesteyri er að renna sitt skeið á enda. Ekki fáum við að bragða á afmælistertunni þrátt fyrir að hafa haft hana í augsýn þetta lengi en svona er bransinn bara. Tökurnar eins og í verkfræðinni Ferðalagið til Reykjavíkur er mun þægi- legra og gengur hreinlega eins og í sögu. Blaðamaður króar Yrsu af á Reykjavíkur- flugvelli og spyr hvað henni hafi fundist um tökurnar. „Þetta er í fyrsta skipti á æv- inni sem ég hef séð nokkuð þessu líkt. Það kom mér á óvart hversu ofboðslega mikil fyrirhöfn þetta er. Þetta eru ekki bara ein- hverjir að leika og maður með myndavél og svo einhver hljóðmaður. Þetta er eins og maður þekkir úr verkfræðinni, búið að skipuleggja allt fram og til baka. Nema að þarna hafa menn áhuga á mínútum og sekúndum á meðan mín vinna snýst um daga og mánuði. Mér fannst þetta virkilega gaman og ég hef ofurtrú á þessu. Þetta verður ótrúlega flott.“ Hugar að frumsýningarkjólnum Tökum á Ég man þig lýkur næsta vor en þær fara einnig fram á Ísafirði og í Grindavík. Fjárhagsáætlun myndarinnar hljóðar upp á 250 til 300 milljónir króna og er þetta dýrasta mynd Zik Zak til þessa, ásamt The Good He- art. Frumsýning er fyrirhuguð um jólin 2016. „Ég hélt að hún væri frumsýnd í desember 2017 en að þetta sé að gerast núna eftir eitt ár er allt annað. Núna getur maður raunveru- lega farið að hlakka til því ég hef ekki þolin- mæði í að hlakka til einhvers sem gerist eftir tvö ár,” segir Yrsa, sem getur loksins farið að huga að frumsýningarkjólnum sínum. Freyr Bjarnason ritstjorn@frettatiminn.is Yrsa kom til Hesteyrar ásamt eiginmanni sínum, Ólafi Þórhallssyni. Henni leist vel á stemninguna á tökustaðnum og kvaðst hlakka til að sjá myndina að ári. „Þetta verður ótrúlega flott,“ segir Yrsa. 42 viðtal Helgin 13.-15. nóvember 2015

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.