Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.11.2015, Síða 66

Fréttatíminn - 13.11.2015, Síða 66
Helgin 13.-15. nóvember 201566 Hvernig byrjar þú daginn? Ég vakna yfirleitt á milli 6 og 7 og er vöknuð á undan heimilisfólkinu, en þá yfirgef ég partíið þar sem það eru oftast þrír karlmenn (á ýmsum aldri) í rúminu mínu. Mér finnst gott að ná smá stund í næði áður en allt fer á fullt á barnaheimilinu. Ég er með rútínu blæti og byrja allt- af á því bleyta andlitið með köldu vatni og fæ mér svo kreista sítrónu í volgt vatn. Ég lauma mér alltaf í sirka 10 mínútur í þvottahúsið þar sem ég næ bæði að vinda af þvotta- hafinu og ná mér í tíu mínútna hug- leiðslu. Hvernig er hefðbundinn morgunmatur hjá þér? Hinn eiginlegi morgunmatur er ekki á borðum fyrr en upp úr 10 en ég fæ mér 1-2 msk af olíu, hamp- eða hörfræjaolíu snemma morguns. Spi- rulina tek ég alltaf, það er mitt kaffi. Eftir morgunæfinguna drekk ég líf- rænt kókosvatn og er sú stund einn af hápunktum dagsins hjá mér og svo fljótlega fer ég í græna sigtaða djúsinn. Hvers konar hreyfingu stundar þú? Jóga er mínar ær og kýr. Heitt jóga finnst mér langbest en ég stunda Ashtanga og Yin jóga samhliða því heita. Á veturna skíðum við fjöl- skyldan og á sumrin er fátt betra en útivera í sveitinni og langar sund- ferðir. Hvað gerir þú til að slaka á? Ég slaka best á í einveru, þá finnst mér gott að hlusta á tónlist, lesa eða hugleiða. Ef ég er alveg út úr víruð finnst mér best að fara í jóga nidra og ná þannig útaf liggjandi djúpslökun. Lumar þú á einu heilsuráði sem hefur gagnast þér vel í gegnum tíðina? Treysta hyggjuvitinu og láta þann hafsjó af heilsuráðleggingum sem er þarna úti í léttu rúmi liggja, við erum svo ólík að upplagi og með mismunandi þarfir. En öll þurfum við góðan grunnsvefn, 6-7 klukku- stundir, ekki fórna honum þrátt fyrir annir. Hvert er furðulegasta heilsu- ráð sem þú hefur heyrt? Öll heilsuráð sem ganga út á að gera eða borða eitthvað eitt og í því fel- ist einhvers konar töfralausnir, ég tengi ekki við slík ráð. Eins hef ég aldrei náð utan um það að kaffi sé á einhvern hátt heilsueflandi. Lyfjalaus meðferð við gyllinæð Ó þægindi sem fylgja gyllinæð eru til dæmis blæðingar og særindi þegar hafðar eru hægðir auk stöðugs kláða yfir daginn. Um það bil 30-40% kvenna fá gyllinæð á meðgöngu eða stuttu eftir fæðingu barns. Lykilatriði fyrir barn og móður er lyfjalaus meðferð við gyllinæð á meðan á meðgöngu og brjóstagjöf stendur. Engir sterar eða endaþarm- stílar sem innihalda efni sem geta skaðað móður eða barn. Einstök kælimeðferð Hermorrite kælimeðferðin er einstök lyfjalaus meðferð við gyllinæð. Áhrif kælingarinnar eru að æðarnar í kringum endaþarmsopið dragast saman, blóðflæði og bólgur minnka og meðferðin linar kláða og verki. Unnið í samstarfi við Ýmus Gyllinæð er algengt vandamál. Talið er að um það bil 50% fólks yfir fimmtugt þjáist af einhverri tegund gyllinæðar við endaþarm- sopið. Nú er hins vegar komin lyfjalaus lausn á vægari tilfellum af þessu hvimleiða vandamáli. Innihald: Einn meðferðarstautur, box til geymslu/frystingar og tvær flöskur af sleipiefni. Kostir lyfjalausrar meðferðar við gyll- inæð: n Hentar vel á meðan meðgöngu og brjósta- gjöf stendur. n Hentar vel til eftirmeðferðar eftir skurðaðgerðir þar sem draga þarf úr blóðflæði og veita liningu verkja. n Virkar vel þar sem einstaklingar þjást af þrálátum sprungum við endaþarmsop. n Samþykkt af Lyfja- stofnun Bandaríkjanna (FDA) til meðferðar á innri og ytri gyllinæð. n Meðferðin veitir allt að 8-10 klst. liningu á einkennum eftir aðeins 8 mínútna kælimeðferð. Leiðbeiningar um notkun: Frystið stautinn í boxinu í a.m.k. þrjár klst. í góðum frysti. Setjið nokkra dropa af sleipi- efni á stautinn. Leggist í þægilega stellingu í rúm og stingið með- ferðarstautnum upp í endaþarm. Látið virka í a.m.k. átta mínútur. Hver meðferðarstautur endist í sex mánuði frá fyrstu frystingu. Hemorrite fæst í eftirfarandi apó- tekum: Reykjavíkur apóteki, Borgarapóteki, Árbæjarapóteki, Lyf- salinn Glæsibæ, Apótek Garðabæjar, Garðsapó- tek, Lyfjaval Hæðarsm- ára, Lyfjaval Mjódd og Akureyrarapóteki  Minn heilsutíMi: sÓlveig ÞÓrarinsdÓttir Hugleiðir í þvottahúsinu Viðskiptafræðingurinn Sólveig Þórarinsdóttir sagði skilið við bankageirann og gerðist jógakenn- ari. Í dag er hún eigandi jógastöðvarinnar Sólir þar sem er að finna hinar ýmsu tegundir af jóga, allt frá heitu jóga til hugleiðslu. Hér segir Sólveig frá því hvernig hún eyðir sínum heilsutíma. Sólveig Þórarinsdóttir, jógakennari, drekkur kókosvatn daglega og hefur litla trú á því að kaffi geti verið heilsueflandi. Mynd/Hari Perspi Guard Bakteríusápa og svitastoppari Dreifing: Ýmus ehf Fæst í apótekum Til meðhöndlunar á lyktarvandamálum vegna ofsvitnunar. KÍSILL GLEYMDA STEINEFNIÐ SEM FEGRAR, STYRKIR OG HREINSAR Veikindabaninn HAWAIIAN NONI Fáanlegt í nær öllum apótekum landsins, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður, Heilsuver, Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is og Heimkaup Heilsuávöxturinn NONI ávöxtur kemur upprunalega frá Kyrrahafs- ofurfæða vegna þess hve einstaklega ríkur hann er af næringaefnum. Hann er auðugur af A, B, C og E-vítamínum, járni, kalki, kalíum, sinki og inniheldur 17 af 20 lífsnauðsynlegum aminósýrum. Noni er ríkari af pro-xeroníni, en aðrir ávextir, en efnið er nauðsynlegt frumum líkamans og styður við myndun seratóníns í heila. • • Veikindi • Blóðþrýstingur • Sýkingar Ónæmiskerfi Sofðu rótt í alla nótt með Anti leg cramps Fæst í apótek um Dreifingaraðili: Ýmis ehf
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.