Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.11.2015, Side 82

Fréttatíminn - 13.11.2015, Side 82
Fyrir tveimur árum var mikið tekið á réttindabar- áttu samkyn- hneigðra svo þetta er þeirra vettvangur til þess að sýna að þeir eru með puttann á púlsinum þessir krakkar. Gerðarsafn býður upp á ókeypis skúlptúrnám- skeið fyrir 8-12 ára krakka næstkomandi sunnudag, 15. nóvember, milli klukk- an 13-15. Linn Björklund myndlistarmaður leiðir námskeið við mótum mannslíkamann í leir. Á námskeiðinu verður litið inn á listaverkageymslur safnsins og faldir fjár- sjóðir kannaðir um leið og ræddar verða hugmyndir um höggmyndalistina. Mannamyndir Gerðar Helgadóttur verða skoð- aðar og unnir skúlptúrar úr sjálfharðnandi leir út frá höfuð- og brjóstmynd- um hennar. Smiðjunni lýkur á sýningu á verkunum í Stúdíó Gerður á neðri hæð safnsins klukkan 15. Skráning fram á netfangið gerdarsafn@ kopavogur.is en þátttaka er ókeypis. Efnt verður til málstofu á Kjar- valsstöðum á morgun, laugar- daginn 14. nóvember, klukk- an 15 í tilefni sýningarinnar Kvennatími – Hér og nú þrjátíu árum síðar sem þar stendur yfir. Í pallborði verða þrír listamenn sýningarinnar, þær Brynhildur Þorgeirsdóttir, Erla Þórarins- dóttir og Harpa Björnsdóttir, ásamt G.ERLU (Guðrún Erla Geirsdóttir) sem var í sýning- arnefnd Hér og nú á Kjarvals- stöðum árið 1985 og gegndi jafn- framt stöðu framkvæmdastjóra Listahátíðar kvenna sama ár. Anna Jóa sýningarstjóri Kvenna- tíma leiðir umræður. Á málstofunni miðla pallborðs- þátttakendur af drjúgri reynslu sinni af listheiminum. Þess má geta að árið 1994 gerðu sömu konur úttekt á kynjaslagsíðunni í íslenskum listheimi í tengslum við sýningu á plakötum Guerilla Girls í Nýlistasafninu. Ýmislegt hefur áunnist síðan en ljóst er að enn er langt í land hvað snertir jafnræði kynjanna í listheimin- um, segir í tilkynningu. Hugmyndin að baki sýning- unni Kvennatími – Hér og nú þrjátíu árum síðar var að kalla aftur saman þær konur sem sýndu saman undir heitinu Hér og nú á Kjarvalsstöðum haustið 1985. Við undirbúning nýju sýn- ingarinnar vöknuðu spurningar á borð við þá hvort kyn lista- mannanna hefði með einhverj- um hætti mótað feril þeirra og verið í þeim skilningi kvenna- tími. Hvers vegna er ennþá þörf á sérstökum „kvennasýning- um“? Sýningin Hér og nú var einn umfangsmesti viðburður Listahátíðar kvenna 1985, en efnt var til hennar vegna loka kvennaáratugar Sameinuðu þjóðanna. Tilgangur hátíðarinn- ar var að gera framlag kvenna á sviði lista- og menningar sýni- legt. Tilefni nýju sýningarinnar er einnig hátíð sem tengist kon- um því að á þessu ári er haldið upp á 100 ára afmæli kosninga- réttar kvenna hér á landi. Sýn- ingin stendur til 29. nóvember 2015. Ljósmyndir frá undankeppnunum í vikunni. Ókeypist skúlptúrnámskeið fyrir börn  Kjarvalsstaðir Málstofa uM KvennatíMa Hér og nú þrjátíu árum síðar G.erla (Guðrún Erla Geirsdóttir), Brynhildur Þorgeirs- dóttir, Erla Þórarinsdóttir og Harpa Björnsdóttir. Guerilla Girl er fyrir miðju.  sKreKKur HæfileiKaKeppni grunnsKóla reyKjavíKur Krakkarnir sofa lítið um helgina Hæfileikakeppni grunnskóla Reykjavíkur, Skrekkur fer fram um þessar mundir í 26. sinn. Undan- úrslitakvöldin voru í þessari viku og tryggðu sex skólar sér beina þátttöku í úrslitunum sem fram fara á mánudagskvöld. Í gær var svo tilkynnt um tvö skóla til viðbótar sem komust í úr- slitin sem svokölluð „Wild-Card“. Héðinn Sveinbjörnsson, verkefnastjóri Skrekks, segir keppnina vera ótrúlega fjölbreytta og bera einnig merki um samfélagslega hugsun ungs fólks í dag. H æfileikakeppnin Skrekkur var haldin fyrst árið 1990 í Háskóla-bíói en frá árinu 2000 hefur keppnin átt sér heimili í Borgarleikhús- inu. „Þessi undanúrslitakvöld hafa verið alveg frábær og gengið alveg ótrúlega vel,“ segir Héðinn Sveinbjörnsson, verkefnastjóri keppninnar. „Það eru 25 grunnskólar í Reykjavík sem taka þátt og það eru allir skólarnir sem hafa unglingadeildir,“ segir hann. „Á úrslita- kvöldinu, sem er á mánudaginn, verða svo átta skólar sem keppa um Skrekks titilinn. Sex sem fara beint, og tveir sem fá þessi svokölluðu „Wild-card“ sæti. Við erum að fara að tilkynna hvaða skólar fá þessi tvö aukasæti en það eru Hólabrekkuskóli og Foldaskóli. Þeir sex skólar sem voru búnir að tryggja sig eru Austurbæjarskóli, Árbæjarskóli, Hagaskóli, Háteigsskóli, Hlíðaskóli og Seljaskóli, segir Héðinn. Þessi keppni hefur byggst mjög mikið á hefðum hjá skólunum, og metnaði. Margir skólar taka þetta mjög alvar- lega og þeir sem hafa náð hvað lengst í þessu byrja að undirbúa atriðin sín fyrir næsta ár strax að Skrekk loknum. Atriðin eru mjög misjöfn og mjög fjöl- breytt,“ segir Héðinn. „Í flestum tilfell- um fjalla þau um eitthvað sem snýr að þeim sjálfum, þeirra hugðarefnum. Í ár er mikið tekið á flóttamannavandanum til dæmis,“ segir hann. „Fyrir tveimur árum var mikið tekið á réttindabaráttu samkynhneigðra svo þetta er þeirra vettvangur til þess að sýna að þeir eru með puttann á púlsinum þessir krakk- ar. Úrslitin verða í beinni útsendingu á Skjá einum á mánudaginn og það er ekki í fyrsta sinn sem keppninni er sjón- varpað, enda frábært sjónvarpsefni. Það er gríðarleg vinna sem þessir krakkar leggja á sig og það er gríðarlegur metn- aður fyrir þessu hjá öllum skólum,“ segir hann. „Í ár settum við saman fjöl- miðlateymi og á Facebooksíðu Skrekks voru sett innslög og streymi sem voru gerð af ungum dreng í Háaleitisskóla sem tók þetta mjög alvarlega. Það eru margir að taka þátt á bak við tjöldin og alltaf fleiri sem hafa hlutverk á hverju ári. Spennan er gríðarleg fyrir mánu- deginum og krakkarnir sofa líklega lítið um helgina,“ segir Héðinn Sveinbjörns- son, verkefnastjóri Skrekks. Skrekkur verður á dagskrá Skjás eins næstkomandi mánudagskvöld klukkan 19. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is 82 menning Helgin 13.-15. nóvember 2015 Bæjarlind 6, 201 Kóp 564-2013 þri-fös 11-18 & lau 11-15

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.