Fréttatíminn - 13.11.2015, Side 94
TónlisT Diskóið Deyr ekki
Þ að hefur ekki farið fram hjá neinum að diskósveitin Boney M heldur tvenna jólatón-
leika í Hörpu þann 20. desemb-
er. Safnplata með þeirra bestu
lögum er nýkomin út hjá HH
hljómplötum og er maðurinn á
bak við útgáfuna enginn nýliði
í plötuútgáfu. „Þetta var bara
hugmynd, og maður á alltaf að
kýla á góðar hugmyndir,“ segir
Höskuldur Höskuldsson hjá HH
hljómplötum. Höskuldur hefur
unnið í áratugi í plötuútgáfu, nú
síðast hjá Senu.
„Ég hætti hjá Senu fyrr á árinu og
það þarf alltaf einhverja hugmynd.
Ég sá að Boney M væri að
koma til landsins og ákvað
að gera safnplötu fyrir ís-
lenskan markað. Með ís-
lensku umslagi og slíkt.
Með mínum tengslum fékk
ég leyfi frá útgáfufyrirtæki
sveitarinnar og framleiddi
þetta. Þetta var ein vin-
sælasta sveit landsins hér
á árum áður og auðvitað
er ég að beina plötunni að
þeim hópi sem er enn að kaupa plöt-
ur, sem eru svona í eldri kantinum,“
segir hann.
„Það eru margir sem segja að þessi
bransi sé búinn en mig langar að
reyna að afsanna það. Það verður að
byrja einhversstaðar. Steinar byrjaði
á Stuðmönnum og ég byrja á Boney
M,“ segir Höskuldur Höskuldsson út-
gefandi.
-hf
Ný íslensk safnplata með
Boney M er komin út.
kvikmynDir Harpa ósk brá sér í HluTverk 15 ára Drengs í ÞrösTum
Tvítugur kvenkyns
drengjasópran
Harpa Ósk Björnsdóttir er 21 árs söng- og verkfræðinemi. Ómur hennar heyrist nú víða um
heim þar sem hún ljær Atla Óskari Fjalarssyni, aðalleikara í kvikmyndinni Þröstum rödd sína, en
myndin er á hraðri sigurför um heiminn. Eftir að tökum lauk fór Harpa í heimsreisu en fékk símtal
þegar hún var stödd á Fiji þar sem hún var beðin um að koma aftur í upptökur. Hún hoppaði því
inn í stúdíó í Ástralíu og kláraði dæmið. Harpa er að ljúka framhaldsprófi í söng og hluti af próf-
inu er að halda tónleika sem munu fara fram í Söngskólanum í Reykjavík þann 22. nóvember.
é g fékk símtal frá konu sem spurði hvort ég þekkti unga stráka í söngnámi sem gætu
komið í prufu. Ég benti henni á
nokkra en var svo sjálf beðin um
að syngja í prufunni,“ segir Harpa.
Kjartan Sveinsson, fyrrum með-
limur í Sigur Rós, semur tónlistina
í myndinni og eftir að hann heyrði
Hörpu syngja Sofðu unga ástin mín
var hann sannfærður um að fá hana
í myndina. „Hann var reyndar mjög
hissa að sjá mig fyrst þar sem hann
bjóst bara við 10-14 ára strákum,“
segir Harpa og hlær. Þrestir, sem
er leikstýrt er af Rúnari Rúnars-
syni, fjallar um Ara, 16 ára pilt sem
er sendur á æskustöðvarnar vestur
á fjörðum til að dvelja hjá föður sín-
um um tíma. Myndin hefur fengið
afar góðar viðtökur og sankar að
sér verðlaunum um allan heim, en
hún var nýlega valin besta leikna
myndin í flokki nýrra leikstjóra á al-
þjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Sao
Paulo í Brasilíu.
Söng upphafslagið í Ástralíu
„Ég syng þrjú lög í myndinni sem
voru öll tekin upp síðasta sumar,“
segir Harpa, sem útskrifaðist úr MR
í vor og fór í heimsreisu um Asíu
og Ástralíu stuttu eftir að tökum á
myndinni lauk. „Ég fékk svo sím-
tal frá Kjartani þegar ég var á Fiji
eyjum þar sem hann bað mig um
að koma og taka aftur upp eitt lag
þar sem hann vildi að það myndi
heyrast betur í mér, eða Atla réttara
sagt.“ Sú leið var því farin að bóka
tíma í stúdíói í Brisbane, en þangað
lá leið Hörpu. „Ég mætti í eitthvert
pínulítið stúdíó þar sem ég horfði á
upphafsatriðið í myndinni og söng
inn lagið á meðan ég horfði á Atla
hreyfa varirnar í kórnum.“
Sérstök drengjasóprantækni
Við upptökurnar var notuð sér-
stök aðferð til að gera röddina
sem líkasta drengjasópran. „Ég
söng öll lögin eins hátt uppi og
ég gat, og án víbradós, og röddin
var svo lækkuð í eftirvinnslunni,
um ferund eða fimmund,“ segir
Harpa. Með „víbradói“ á hún við
titring í röddinni, en henni fannst
erfiðast að þurfa að stjórna rödd-
inni þannig. Harpa hefur í nægu
að snúast þessa dagana en ásamt
því að stunda nám í rafmagns- og
tölvuverkfræði í Háskóla Íslands
er hún að læra söng í Söngskólan-
um í Reykjavík undir handleiðslu
Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur.
„Ég er einmitt að undirbúa mig
fyrir framhaldspróf í söng sem
er í næstu viku.“ Hluti af prófinu
er að halda tónleika og munu tón-
leikarnir hennar Hörpu fara fram
í Söngskólanum í Reykjavík þann
22. nóvember. „Þar mun ég syngja
alls konar lög, en ég held að ég
haldi mig við mína eigin tækni,
þó svo að drengjaröddin hafi nýst
ágætlega í Þröstum.“
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
Harpa Ósk er að læra klassískan söng í Söngskólanum í Reykjavík og þann 22. nóvember heldur hún tónleika sem eru hluti af
framhaldsprófi hennar.
Amiina aðstoðar Sólstafi
Hljómsveitin Sólstafir fagnar 20 ára
starfsafmæli með stórtónleikum í Hörpu
í kvöld, föstudaginn 13. nóvember.
Þetta verða fyrstu tónleikar
sveitarinnar á Íslandi frá
árinu 2012 en Sólstafir
halda fjölda tónleika á
ári hverju á erlendri
grundu. Sveitin
tjaldar öllu til af
þessu tilefni og mun
strengjakvartettinn
Amiina verða þeim til
halds og trausts.
Ágústa Eva fórnar rauða
litnum
Leik og söngkonan Ágústa Eva er þessa
dagana í tökum á spennumyndinni Ég man
þig, sem gerð er eftir samnefndri sögu
Yrsu Sigurðardóttur. Tökurnar fara fram
á Vestfjörðum og leikur Ágústa aðalhlut-
vekið ásamt Þorvaldi Davíð Kristjánssyni.
Ágústa þurfti að fórna rauða hárinu
fyrir myndina, sem hefur lengi
verið hennar aðalsmerki, og
er hún því með ljósa lokka í
tökunum.
Matreiðslubók
Mikka komin aftur
Í kringum 1980 átti hvert
barn á Íslandi, Matreiðslu-
bók Mikka. Í dag er þessi bók
komin út aftur eftir að hafa verið
ófáanleg um árabil. Það er því hægt
að fara að spreyta sig aftur á Pönnukökum
frá Undralandi, eggjasnapsi bjarnarins
Balla og ostborgurum Jóakims á ný.
DNA í sjónvarp
Uppistandarinn og rithöfundurinn Dóri DNA undir-
býr nú tökur á sjónvarpsþáttum sem hann stefnir
á að framleiða á næsta ári. Þættirnir verða um
íslenskt rapp og hip hop og er það kvikmynda-
tökumaðurinn Gaukur Úlfarsson sem gerir
þættina með Dóra. Stefnt er á að þætt-
irnir verði á RÚV einhverntímann á
næsta ári.
Boney M í plötuflóðinu þessi jól
Höskuldur
Höskuldsson .
94 dægurmál Helgin 13.-15. nóvember 2015
Fjölskylduband
Verð frá 34.000 kr.