Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2011, Síða 3

Náttúrufræðingurinn - 2011, Síða 3
55 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Náttúrufræðimenntun íslenskra ungmenna Á síðasta aðalfundi Hins íslenska náttúrufræðifélags var samþykkt ályktun um að hvetja mennta- og menningarmálaráðherra, Katrínu Jakobsdóttur, eindregið til þess að beita sér af krafti fyrir auk- inni og betri náttúrufræðimenntun íslenskra grunnskólakennara og grunnskólanema. Grunnskólakennaranám hefur verið lengt og krafa gerð um aukna sérhæfingu grunnskólakennara í faggrein sinni. Því miður hafa allt of fáir náttúrufræðimenntaðir einstaklingar sótt í kennslu við grunnskóla og því hefur skort nátt- úrufræðikennara á grunnskólastigi með öflugan grunn í náttúrufræðum. Með lögum nr. 87/2008, 21. gr., er framhaldsskólakennurum heimilt að kenna á sínu sérsviði í 8.–10. bekk grunnskóla. Tilraunir hafa verið gerðar með samstarf milli framhalds- og grunnskóla, þar sem framhaldsskólakennarar hafa séð um náttúrufræðikennslu í grunn- skóla, og gefist vel. Þessi nýju lög ýta vonandi undir frekara samstarf á milli skólastiga. Ef til þess kemur að grunnáfangar í náttúrufræðum í framhaldsskóla verði fluttir yfir í grunnskóla þarf að sjá til þess að kennsla þeirra verði til fyrirmyndar. Tryggja þarf að þeir kennarar sem hana stunda hafi næga menntun á sviði náttúrufræða. Einnig er mikil- vægt að endurmenntunarnámskeið verði reglulega í boði fyrir kennara í náttúrufræðigreinum. Menntun og skólakerfi eru megin- undirstaða þjóðfélagsins. Samkvæmt PISA-könnunum OECD er Ísland undir meðallagi, sbr. PISA 2006 þar sem náttúrufræðimenntun var í fyrirrúmi. Prófin sem lögð voru fyrir nemendur áttu fyrst og fremst að reyna á hæfni þeirra til að túlka og vinna með náttúrufræðilega texta. Túlka má þessar niðurstöður PISA 2006 þannig að stór hluti íslenskra nemenda standi frekar illa að vígi og sé ekki vel læs á slíka texta við lok grunnskóla. Það leiðir til þess að nemendum þykir fagið leiðinlegt og áhugi þeirra dvínar. Markmið skólagöngu hlýtur að vera að gera nemendur hæfari til að takast á við lífið og veita þeim tækifæri til að taka fullan þátt í sam- félagi manna, jafnt heima fyrir sem annars staðar. Mikilvægt er að nem- endur geti að loknu grunnskólanámi tekið virkan þátt í samfélaginu og atvinnulífinu. Í skýrslu Námsmatsstofnunar um PISA-rannsóknina 2009 kemur fram að lesskilningi og læsi íslenskra ung- menna hrakaði á árunum 2000–2006 en fór örlítið upp á við frá 2006 til 2009. Munurinn á lesskilningi og læsi í náttúrufræði hjá íslenskum nemendum er ekki marktækur ef borin eru saman árin 2000 og 2009. Ísland liggur enn undir meðaltali OECD-landanna. Það er miður hve litlum tíma er skylt að verja í náttúrufræði- kennslu í grunnskólum. Rannsóknir hafa sýnt að aðalnámskrá grunn- skóla (1999) gerir of miklar kröfur um yfirferð námsefnis á knöppum tíma. Samkvæmt núgildandi aðal- námskrá (2008) skulu vikulegar kennslustundir í náttúrufræði og umhverfismennt einungis vera 1040 mínútur alls, eða jafnmargar og skv. aðalnámskrá 1999. Þrjú hundruð og tuttugu kennslustundir í 1.–4. bekk og þrjú hundruð og sextíu í 5.–7. og 8.–10. bekk. Einungis um 8% kennslustunda er varið í þennan flokk námsefnis. Þessu verður að breyta. Kynntar hafa verið breyt- ingar á viðmiðunarstundaskrá aðal- námskrár grunnskóla þar sem fyrir- hugað er að fjölga kennslustundum í náttúrufræðigreinum yngsta stigs á kostnað kennslustunda sem varið er í þessar greinar hjá tveimur efri stigum grunnskóla. Fyrirhugaðri skerðingu á kennslustundafjölda í náttúrufræðigreinum hjá efri stigum grunnskóla hefur verið mótmælt harðlega af félagasamtökum og einstaklingum sem láta sig náttúru- fræðikennslu grunnskólanemenda varða. Það er jákvætt að kennslu- stundum yngstu nemendanna verði fjölgað, en eðlilegra væri að vikulegum kennslustundum hjá tveimur efri stigum grunnskóla yrði fjölgað þannig að kennslustundir í náttúrufræðum fari ekki undir 10% af heildarkennslustundafjölda. Staðreynd er að síðustu ár grunn- skóla móta val nemenda á fram- haldsnámi. Niðurskurður á nátt- úrufræðigreinum á unglingastigi getur því komið af stað keðjuverkun þar sem færri nemendur eiga eftir að velja náttúrufræðibraut í fram- haldsskóla og enn færri að skila sér í raungreinar í háskóla. Skortur er á raungreinamenntuðu fólki í atvinnulífinu, eins og fjölmargir for- svarsmenn fyrirtækja hafa bent á. Afar brýnt er að komandi kynslóðir verði í stakk búnar að umgang- ast dýrmætar auðlindir landsins á sjálfbæran hátt. Hrein ímynd lands- ins, náttúrufarsleg sérstaða þess og náin tengsl helstu atvinnuvega þjóðarinnar við náttúruna gera þær kröfur að íslensk ungmenni standi a.m.k. jafnfætis jafnöldrum sínum meðal annarra menntaðra þjóða hvað varðar læsi í náttúruvísindum. Viljum við ala upp einstaklinga sem bera litla sem enga virðingu fyrir náttúru og auðlindum Íslands sökum fáfræði? Gerum íslenska skóla og þar með íslenska námsmenn enn betri. Stöndum vörð um íslenska náttúru. Ester Ýr Jónsdóttir, framhaldsskólakennari Fjölbrautaskóla Suðurlands 81_2#profork070711.indd 55 7/8/11 7:40:43 AM

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.