Náttúrufræðingurinn - 2011, Page 20
Náttúrufræðingurinn
72
(1. tafla). Meðalhiti í báðum lands-
hlutum var í kringum -2°C í janúar
og um 10°C í júlí.50 Meiri úrkoma var
á Vesturlandi, um 1.400 mm á ári, en
rúmlega 700 mm á Fljótsdalshéraði.
Frjósemi jarðvegs virðist vera meiri
á Vesturlandi þar sem sýrustig og
C/N-hlutfall í jarðvegi var heldur
lægra en á Austurlandi og einnig
meira af köfnunarefni (1. tafla).
Skömmu eftir aldamótin 1900
var birkiskógurinn á Hallormsstað
girtur af og friðaður en um svipað
leyti var byrjað að gróðursetja þar
barrtré.51 Gróðursetning á Fljótsdals-
héraði hófst þó ekki af alvöru fyrr
en um miðja tuttugustu öldina, á
svipuðum tíma og viðamikil trjá-
plöntun hófst í Skorradal.52 Samhliða
skógræktinni var landið friðað fyrir
beit. Á þessum tíma voru allir rann-
sóknateigar á Austurlandi nánast
skóglaust mólendi en í Skorradal
var birkikjarr meira áberandi.
Til rannsókna voru valdir átta
mæliteigar á Austurlandi en ellefu
á Vesturlandi (1. tafla, 2. og 3. mynd).
Í báðum landshlutum var beitt
mólendi mælt til samanburðar við
gróðursetta barrskóga og sjálfsána
birkiskóga. Fimm 12–50 ára gamlir
síberíulerkiskógar (L1–5) voru
mældir á Austurlandi og hafði sá
elsti (L5) verið grisjaður tvisvar. Í
næstelsta lerkiskóginum (L4) höfðu
örfá tré verið fjarlægð en ekki var um
eiginlega grisjun að ræða. Einnig var
mældur elsti hluti Hallormsstaðar-
skógar (BA2) sem er gamalgróinn
skógur, ungur sjálfsáinn birkiskógur
(BA1) á Buðlungavöllum og beitt
mólendi í landi Mjóaness (MA). Á
* Beit aflétt. ** Í ljós kom að mæliteigur G2 stóð á líparít-innskoti sem hafði mikil áhrif á sýrustig jarðvegs og var hann því ekki samanburðarhæfur um jarðvegs-
þætti. Allir aðrir mæliteigar standa á basalt-berggrunni. † Tímabært að grisja til að viðhalda hámarksviðarvexti. †† Orðinn mjög þéttur; sjálfgrisjun virk.
Mæliteigur Nafn Lýsing Stærð Upphaf Aldur Jarðvegur (0–10 cm) Svarðlag Trjálag
ha ár ár pH N C/N g/m2 Þéttleiki ÞV GF LAI Skuggi
Austurland
Mólendi A MA Beitt 7,4 - - 6,7 0,41 15,6 549 0 0 0 0,0 0
Birki A1 BA1 Sjálfsáinn 5,1 1979* 18 6,0 0,37 20,3 393 8.367 1,1 1,2 1,0 54
Birki A2 BA2 Í endurnýjun 6,1 1905* gamall 5,5 0,42 22,8 282 11.000 2,8 17,0 1,7 75
Lerki 1 L1 Opinn 4,6 1990 12 6,5 0,31 16,6 687 2.580 2,4 1,8 0,8 46
Lerki 2 L2 Hálflokaður 7,2 1984 18 6,7 0,23 17,7 122 3.367 6,6 12,5 2,1 81
Lerki 3 L3 Hálflokaður 9,5 1983 19 6,4 0,31 16,6 202 2.600 6,8 10,9 1,8 75
Lerki 4 L4 Lokaður 3,2 1966 36 5,9 0,37 18,4 105 2.560 12,3 33,4† 3,0 90
Lerki 5 L5 Grisjaður 7,3 1952 50 6,1 0,33 20,8 737 1.120 19,2 33,7† 2,0 79
Vesturland
Mólendi V MV Beitt 9,0 - - 6,3 0,37 15,0 523 0 0 0 0,0 0
Birki V1 BV1 Beitt kjarrlendi 9,2 - gamall 6,0 0,73 14,1 431 30.556 1,0 4,8 1,4 63
Birki V2 BV2 Kjarrlendi 4,8 1985* gamall 5,7 0,70 18,2 639 12.600 1,3 3,6 1,3 60
Birki V3 BV3 Gamalgróinn 13,6 2004* gamall 5,9 0,85 15,2 423 5.378 2,7 6,8 1,2 58
Greni 1 G1 Mjög opinn 7,8 1995 9 6,1 0,74 13,6 714 3.289 0,1 0,0 0,1 12
Greni 2 G2 Hálflokaður 1,2 1970 34 5,2** 0,91** 20,0** 283 2.311 9,1 17,1 2,1 80
Greni 3 G3 Lokaður 3,2 1960–61 43 5,6 0,77 17,4 309 4.000 9,7 32,8† 3,4 94
Greni 4 G4 Grisjaður 4,1 1961 43 5,4 0,94 17,3 73 1.533 17,1 42,8† 4,2 97
Fura 1 F1 Hálfopinn 9,9 1990 14 6,0 0,54 15,2 591 3.067 2,2 2,3 1,5 68
Fura 2 F2 Lokaður 3,4 1965–68 39 5,9 0,43 15,4 136 3.888 13,1 36,8† 3,7 95
Fura 3 F3 Lokaður 1,8 1958–59 46 5,5 0,63 18,4 150 3.688 14,2 63,9†† 4,1 97
1. tafla. Helstu lýsibreytur fyrir mæliteiga á Austur- og Vesturlandi. „Stærð“=flatarmál teigs, „Upphaf“=ár gróðursetningar eða ár sem
sauðfjárbeit var aflétt* og „Aldur“=aldur mæliteigs. Í efstu 10 cm í jarðvegi táknar „pH“=sýrustig, „N“=heildar-köfnunarefni í mg/g og
„C/N“=hlutfall kolefnis og köfnunarefnis. „Svarðlag“=uppskera botngróðurs í g/m2. Í trjálaginu er „Þéttleiki“=fjöldi stofna ríkjandi tegund-
ar á ha, „ÞV“=meðal-bolþvermál ríkjandi tegundar í 1,3 m hæð (brjósthæð), „GF“=grunnflötur ríkjandi tegundar í m2/ha, „LAI“=hlutfalls-
legur laufflatarmálsstuðull (þ.e. m2 laufs/m2 lands) og „Skuggi“=mæling á hlutfallslegri þekju laufþaks í %. – Description of stands:
“Stærð”=area of a stand, “Upphaf”=year of plantation or protection from sheep grazing, and “Aldur”=age of a stand. In “Jarðvegur”=soil is
“pH”=acidity measured in water, “N”=total nitrogen as mg/g and “C/N”=Carbon:Nitrogen ratio. In “Svarðlag”=mass of ground vegetation
as g/m2. In “Trjálag”=tree layer is, “Þéttleiki”=number of dominant species per ha, “ÞV”=main stem mean diameter of dominant species at
1.3 m height, “GF”=stand basal area as m2/ha. “LAI”=Leaf Area Index as m2 leaves/m2 ground and “Skuggi”=the inverse of gap fraction in %.
81_2#profork070711.indd 72 7/8/11 7:41:30 AM