Náttúrufræðingurinn - 2011, Síða 26
Náttúrufræðingurinn
78
breytinga (framvinda) sem hafði
áhrif á lífríki og tegundasamsetn-
ingu. Eins og sjá má á 8. mynd voru
breytingarnar í tegundaauðgi ólíkar
milli mismunandi lífveruhópa. Það
er því ljóst að ekki er nægilegt að
rannsaka einn hóp lífvera til að
meta heildstætt tegundaauðgi og
áhrif landnotkunar á hana. Ef vel á
að vera þarf að rannsaka sem flesta
lífveruhópa og mikilvægt er að
þeir gegni mismunandi hlutverki í
vistkerfinu.
Ályktanir
Útbreiðsla skóga mun að öllum lík-
indum aukast hér á landi á næstu
árum og áhrif þeirra verða sjáanlegri
þegar skógar sem gróðursettir hafa
verið á undanförnum árum munu
vaxa upp. Einnig sjást þess merki að
útbreiðsla birkis sé að aukast í kjöl-
far hlýnandi veðurfars og breyttrar
landnýtingar.97,98 Niðurstöður verk-
efnisins leiddu í ljós að gerð skógar
(trjátegund) virtist ekki hafa afger-
andi áhrif á heildartegundaauðgi
heldur var hún fremur tengd aldri
eða framvindustigi skógarins.
Þannig reyndist vera svipuð teg-
undaauðgi á efri framvindustigum
ólíkra skógargerða og mólendis (6.
mynd). Einnig kom skýrt fram að
skógrækt hefur áhrif á samsetningu
lífveruhópa (7. mynd).
Mólendi sem haft var til viðmið-
unar í verkefninu var tegundaríkt
beitt land. Þar sem upphafsástandið
er annað er líklegt að áhrif skógræktar
á tegundaauðgi yrðu önnur. Til
dæmis fjölgaði tegundum háplantna
og hryggleysingja marktækt þegar
alaskaösp (Populus trichocarpa) óx
upp á túni á Rangárvöllum en
tegundafjöldi varpfugla stóð í stað,
þótt sá skógur væri kominn á
myrkvaskeiðið.99
Í verkefninu voru skýr dæmi um
að þéttir skógar á myrkvaskeiðinu
höfðu færri tegundir en álíka gamlir,
grisjaðir skógar sem voru opnari (6.
mynd). Þetta bendir til að fjölgun
tegunda með aldri skóga geti tekið
mislangan tíma og fari eftir því
hversu lengi myrkvaskeiðið stendur.
Þetta þýðir jafnframt að nota má
markvissa umhirðu (grisjanir) til
að draga úr neikvæðum áhrifum á
tegundaauðgi í fjölnytjaskógrækt. Í
erlendum rannsóknum hafa sömu
niðurstöður fengist, í leiðbeiningum
um sjálfbæra skógrækt er mælt
með því að grisjun sé skipulögð
þannig að hún auki viðarvöxt og
varðveiti jafnframt tegundaauðgi
ræktaðra skóga.100 Þess má geta
að í skógræktarstefnu eða lögum
ýmissa landa, t.d. Svíþjóðar, hefur
viðhald tegundaauðgi skóga verið
lögð að jöfnu við getu skóganna til
viðarframleiðslu.101
Barrskógar í rannsókn okkar voru
9 til 50 ára og flestir birkiskógarnir
mun eldri. Barrskógarnir voru því
ungir að árum. Vaxtarlota ræktaðra
nytjaskóga á Íslandi er almennt
talin vera um 80–150 ár en ef þeir
eru ekki höggnir ná barrtegundir-
nar yfir 300 ára aldri.102 Yfirleitt
eykst tegundaauðgi í skógum með
aldri lundanna.103,104 Hvernig teg-
undaauðgi þessara skóga á eftir að
breytast í framtíðinni hérlendis er
þó enn óskrifað blað. Niðurstöður
verkefnisins sýna að gamalgrónir
birkiskógar hafa svipaða tegunda-
auðgi og 50 ára ræktaðir barrskógar
sem hafa verið grisjaðir (6. mynd).
Út frá þessu mætti ætla að teg-
undaauðgi muni lítið breytast í
seinni hluta vaxtarlotu í ræktuðum
skógum, nema nýjar tegundir aðlag-
aðar lífi í skógum nemi hér land.
Um þetta verður þó ekki fullyrt með
neinni vissu. Það er því mikilvægt
að halda áfram að vakta breytingar
sem verða í skógunum sem rann-
sakaðir voru og gert er ráð fyrir að
það verði gert á u.þ.b. 10 ára fresti.
Umfjöllunin hér að framan ein-
skorðast við mat á tegundaauðgi
en ekki var litið til breytinga í
tegundasamsetningu og þéttleika
innan lífveruhópa. Þeir þættir eru
einnig mikilvægir þegar horft er til
virkni vistkerfa í heild og mikilvægi
tegunda í hringrás þeirra. Bæði
þéttleiki og hlutfallsleg samsetning
tegunda var metin í SKÓGVIST og
er stefnt að frekari birtingu þeirra
niðurstaðna síðar.
Summary
Effects of afforestation on
species richness
Afforestation by exotic species or natu-
ral expansion of birch woodlands may
cause changes in ecosystem structure af-
fecting species richness. Limited data is
available in Iceland on how species rich-
ness is affected when heathlands are
converted to forests. Species richness is
commonly used to evaluate biodiversity,
which is emphasized to maintain in na-
ture conservation. The present research
project (ICEWOODS) focused on how
total species richness of five functional
groups (soil fauna, fungi, surface inver-
tebrates, plants and birds) was affected
when open heathlands changed into dif-
ferent successional stages of four forest
types (native birch, Siberian larch, Sitka
spruce and lodgepole pine). Heathlands
are the commonest land type used for
afforestation and the four selected tree
species comprise ca. 80% of annual tree
planting in Iceland. The main findings
were that total species richness was not
significantly affected in the long run
8. mynd. Mismunandi lífveruhópar og heildarfjöldi tegunda brugðust við á ólíkan hátt
þegar skógar uxu upp á mólendi og náðu myrkvaskeiði. – Effects of afforestation on species
richness of individual groups were different as treeless heathlands changed into forests in
exclusion phase.
81_2#profork070711.indd 78 7/8/11 7:41:43 AM