Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2011, Síða 36

Náttúrufræðingurinn - 2011, Síða 36
Náttúrufræðingurinn 88 nærri jökulrótum fyrir ofan Harða- bala, hlýtur gjóskan að hafa fallið á auða jörð, en þess er áður getið að þar hafi fundist gróðurhula sem virðist hafa sviðnað. Þar sem áður tilvitnaður „dómpóstur“ er ritaður að vori 1686 hlýtur gjóskan að hafa fallið á vatnasvæðið ofan Rifsóss að hausti 1685 eða fyrr. Telja má líklegt að í meðalárferði ,litlu ísaldar‘ hefði þarna rétt neðan jökuljað- arsins aðeins verið auð jörð í stuttan tíma síðsumars. Gjóska úr þessu ,miðaldagosi‘ gæti þó fundist utan gjóskugeirans en tæplega í verulegu magni, því að telja má að fyrsta og líklega langöflugasta goshrinan hafi staðið yfir í tiltölulega stuttan tíma í rokhvassri suð- suðvestlægri vindátt, skýjafari og mikilli úrkomu. Þess konar haustveðri fylgja gjarnan þrumur og eldingar og sennilegt verður að teljast að gosið hafi í ágúst eða september, áður en snjó festi þarna rétt neðan jökulrandarinnar. Sé mikið hvassviðri verður gjósku- geirinn mjórri og hliðarmörkin skarpari en ella. Veður og skýjafar hlýtur að hafa valdið því að gosinu hafi ekki verið veitt eftirtekt. Flóð og öskufall virð- ast því ekki hafa verið talið afleið- ingar jarðelds. Þetta gætu því hafa verið eðlilegar ástæður þess að ekki hafi verið talin tengsl milli ,flóð- anna miklu‘ og óvæntra og óséðra eldsumbrota. Einnig ber að hafa í huga að ekki mun þá hafa verið vitað til að þarna væri virk eldstöð og því ekki líklegt að sá möguleiki hafi verið ofarlega í hugum manna. Ekki er að sjá á frásögn Eggerts Ólafssonar, sem fór upp á jökulinn um miðja átjándu öld, að hann hafi sett sagnir og ummerki eftir stórfljót (móður) í samband við eldsumbrot.2 Í þeirri frásögn virðist mega greina nokkra tregðu fólks til að fara á ókunnar slóðir á fjöllum.2 Jónas Hallgrímsson virðist ekki heldur, þrátt fyrir jarðfræðiathug- anir sínar, taka þann möguleika til athugunar að flóðin hafi stafað af eldsumbrotum undir jökli. Við lokavinnslu þessarar greinar benti Sigurður Steinþórsson mér á dæmi um eldgos sem ekki rataði í heimildir og aðeins er þekkt af gjóskulagi. Það er stórgos sem varð í Vatnaöldum kringum 1477. Þetta gjóskulag er hið þykkasta í jarðvegi á Jökuldal og Hrafnkelsdal, „a“-lagið svonefnda sem Sigurður Þórarinsson kortlagði og er það stærsta á Norð- austur- og Austurlandi frá því að sögur hófust. Hann taldi líklegt að lagið væri frá árinu 1477, en snemma á því ári féll gjóska í Eyjafirði.7 Þjóðsögur Jarðfræðingar hafa ekki hikað við að nota þúsund ára gamla þjóðsögu sem uppistöðu í ritgerðum um rann- sóknir sínar. Í Landnámu segir: Þá var Þórir gamall ok blindr, er hann kom út síð um kveld ok sá at maðr reri útan í Kaldárós á járnnökkva, mikill ok illiligr, ok gekk þar upp til bæjar þess, er í Hripi hét, ok gróf þar í stöðulshliði. En um nóttina kom þar upp jarðeldr, ok brann þá Borgarhraun. Þar var bærinn, sem nú er borgin.8 Jóhannes Áskelsson ritaði grein um rannsóknir sínar á Eldborg og nefndi greinina „Þar var bærinn, sem nú er borgin“.9 Hún varð síðar tilefni Hauks Jóhannessonar til að rita grein í 47. árg. sama rits um rannsóknir sínar á Eldborg og Rauð- hálsum, „Þar var ei bærinn, sem nú er borgin“. Upphaf þjóðsögunnar virðist mér vera sett fram af nokkurri gamansemi og jafnvel sem próf á rökskilningi áheyrandans: „Þá var Þórir gamall ok blindr, er hann kom út síð um kveld ok sá, …“ (leturbr. höf.). Ekki er að sjá að þessi setning sé neitt sérstaklega valin til að auka á trúverðugleika sögunnar. Hún hefði getað verið sett fram til að gera ævintýrið sögulegra í eyrum barna. Sögufléttan um manninn mikla og illilega, járnnökkvann, bæinn í Hripi og stöðulshliðið hefði einnig getað fallið vel að hugar- heimi þeirrar tíðar barna, en hrip og stöðull munu hafa verið notuð í daglegu máli þessa tíma og hefðu hugsanlega getað verið valin með tilliti til málskilnings þeirra. Hrip er gert úr trérimlum og ætlað til geymslu og flutnings á ákveðnu magni heys. Nafnið er því hlutlaust og getur hentað vel sem bæjarnafn í litlu ævintýri fyrir börn sem horfa og hlusta meðan heyinu er komið fyrir í hripinu. Þessi sömu börn, eða önnur sem upplifðu ævintýrið, gátu síðar orðið heimildarmenn höfundar Landnámu og þá getið þessarar skemmtilegu sögu. Vísindamenn tuttugustu aldar hafa verið upp- teknir af henni og dómarar hér á landi virðast einnig á undanförnum áratugum hafa talið allar frásagnir Landnámu traustar heimildir sem forsendur dóma. Verið gæti að dómarar þurfi að endurskoða óskeikulleika Landnámu, því að ,ekki er allt sem sýnist‘. Svo virð- ist sem Borgarhraun og ,borgin´ á dögum Landnámu sé þar sem nú heitir Rauðhálsahraun. Í fyrr- nefndri grein Hauks Jóhannessonar telur hann líkur á að jarðeldurinn í Rauðhálsum hafi brunnið „um eða eftir miðja tíundu öldina“ og þar með einnig að áherslu- og aðalefni þjóðsögunnar sé rétt hvað varðar uppkomu jarðelds á umræddum tíma, „ok brann þá Borgarhraun“. Rifsós Glóandi heit gjóskan, sem mun hafa fallið á jökulinn ofan Eysteins- dals, hlýtur að hafa brætt hann og vatnsflaumurinn síðan borið gjósku eftir lækjarfarvegum niður á undir- lendið allt til sjávar að Gufuskálum. Sú gjóska sem féll á vatnasvæði Hólmkelsár og Laxár, mun að lík- indum hafa farið að berast undan halla, veðri og vindum, eftir vatns- farvegum og að lokum alla leið niður í Rifsós. Þetta mun hafa gerst hratt í fyrstu en síðan hlýtur gjóskan sífellt að hafa borist í farvegina og áfram með vatninu í átt til sjávar. Samkvæmt eðli málsins mun sú þróun hafa staðið yfir frá gosi, mis- hratt en örugglega, eftir þeim lög- málum náttúrunnar sem þar gilda. Líkur benda til að meginhluti gjósk- unnar hafi borist fram í Rifsós með Hólmkelsá, en hún er nær eldstöð- inni og um 200 árum eftir gos er hún almennt kölluð Jarðfallalækur.6 81_2#profork070711.indd 88 7/8/11 7:41:51 AM

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.