Náttúrufræðingurinn - 2011, Page 42
Náttúrufræðingurinn
94
Hiroshima og Nagasaki annars
vegar og Tsjernobyl hins vegar,
enda geislunin mismunandi teg-
undar. Greinst hafa línuleg tengsl
milli geislaálags og hjarta- og æða-
sjúkdóma eftir kjarnorkusprenging-
arnar í Japan. Áhugavert er að geisla-
skammtsþröskuldur fyrir myndun
þeirra sjúkdóma mældist einungis
0,75 Sv þar, en sá geislaskammtur er
mun lægri en almennt er búist við
að valdi slíkum áhrifum.i.53 Fyrsta
krabbameinið sem var greint sem
afleiðing geislunarinnar frá kjarn-
orkusprengingunum í Hiroshima
og Nagasaki var hvítblæði, en það
hefur hins vegar ekki verið tengt við
Tsjernobyl-slysið.40,54 Í Tsjernobyl
var brjóstakrabbamein hjá konum,
sem urðu fyrir geislun sem börn
og unglingar, mjög algengt, en
engin tengsl brjóstakrabbameins
og magns geislunar hafa enn fund-
ist eftir kjarnorkusprengingarnar
í Hiroshima og Nagasaki.31,32
Línulegt samband geislaskammts
og tíðni skjaldkirtilskrabbameins
hefur greinst sem afleiðing kjarn-
orkusprenginganna í Nagasaki
og Hiroshima og einnig slyssins
í Tsjernobyl.34 Meginmunur geisl-
unar í þessum tveimur tilfellum er
sá að í Tsjernobyl urðu einstaklingar
fyrir mestum áhrifum innri geisl-
unar vegna mengunar matvæla,
en í Hiroshima og Nagasaki var
meginhluti geislunarinnar útvortis
γ-geislun og háorkunifteindageislun.
Þetta getur skýrt mismuninn á
áhrifum sem fórnarlömb þessara
tveggja atburða urðu fyrir.40
Erfitt er að draga ályktanir um
áhrif lágra geislaskammta á heilsufar
út frá upplýsingum um áhrif geisl-
unar af þeirri stærðargráðu sem lýst
er að ofan. Um er að ræða langtíma-
áhrif sem koma seint fram og auk
þess geta aðrir umhverfisþættir og
lífsstíll haft úrslitaáhrif á heilsufar
fólks þegar geislaskammtur er lágur.
Línuleg vensl eru á milli hárra
geislaskammta og áhrifa geislunar-
innar á frumur og lífverur. Til þess
að áætla áhrif lágra geislaskammta
hefur þetta línulega samhengi verið
framreiknað fyrir lægri skammta
án nokkurs þröskulds. Sú aðferð er
umdeild55 og mikilvægt er að vita
við hvaða geislaskammt þröskuldur
eyðileggjandi áhrifa háorkugeisl-
unar er, eða hvort slíkur þröskuldur
er fyrir hendi. Hjá starfsmönnum
kjarnorkuvera hefur verið sýnt fram
á jákvæða fylgni litningabreytinga
hvítra blóðfrumna og lágra skammta
geislunar, aukna tíðni krabbameins
og æxlismyndunar í merg56,57,58
auk línulegrar fylgni hvítblæðis,
lungnakrabba og mergæxla við lága
skammta geislunar til langs tíma.59
Færa má rök fyrir því að varnar-
og viðgerðarkerfi frumna, svonefnt
DDR (e. DNA damage response), setji
einskonar þröskuld eða skilgreini
hámarksgeislaskammt áður en lík-
ami og frumur hljóti skaða af.1,60
Þetta kerfi bregst við öllum breyt-
ingum á erfðaefni frumunnar og
sér um viðgerðir og/eða eyðingu
frumna eftir atvikum. Þannig getur
fruman oft lagfært geislaskaða og
komið í veg fyrir krabbameins-
myndun. Erfðagallar tengdir DDR
eru þekktir og einstaklingar með
slíkan erfðagalla eru í sérstökum
áhættuhópi, því lagfæringar á erfða-
efni eru ýmist engar eða rangar og
hætta á krabbameini því meiri.1,2,60
Nauðsynlegt er að rannsaka
áhrif geislunar á lífsameindir, sam-
hliða læknisfræðilegum og sam-
félagslegum rannsóknum, til að
geta ákvarðað hámarksskammt
geislunar á tímaeiningu sem ekki
er skaðlegur frumum og lífverum.
Ísland og flest önnur lönd fara eftir
ráðleggingum Alþjóðageislavarna-
ráðsins (e. International Commission
on Radiological Protection, ICRP)
þar sem nýjustu niðurstöður rann-
sókna eru teknar saman og notaðar
til að móta kerfi geislavarna, m.a.
um árlegan hámarksgeislaskammt
fyrir starfsfólk við mismunandi
vinnuaðstæður, en nefndin gefur
reglulega út ný hefti með ráðlegg-
ingum.
4. mynd. Kort af dreifingu geislavirku samsætunnar 137Cs um Evrópu eftir Tsjernobyl-
slysið sem varð 26. apríl árið 1986.47 – The 137Cs deposition in Europe after the Chernobyl
accident (26 April 1986). Kort/Map: Viktor Novikov, UNEP/GRID-Arendal.47
meira en 1.480 kBq/m2
frá 185 til 1.480 kBq/m2
frá 40 til 185 kBq/m2
frá 10 til 40 kBq/m2
minna en 10 kBq/m2
Engin gögn tiltæk
Setmyndun 137Cs í jarðvegi
í maí 1986.
81_2#profork070711.indd 94 7/8/11 7:41:59 AM