Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2011, Síða 8

Náttúrufræðingurinn - 2011, Síða 8
Náttúrufræðingurinn 112 Dæmi frá Hvammstanga – klæða líparít með lúpínu? Þegar gengið er upp frá tjaldstæð- inu og gömlu kirkjunni á Hvamms- tanga meðfram Syðri-Hvammsá kemur maður fljótlega í þetta lit- skrúðuga gil (9. mynd). Þar er líparít í hlíð við suðurbakka árinnar á um 100 m kafla. Maður er rétt sem snöggvast minntur á litadýrð Land- mannalauga. Það er lítið um líparít í nágrenni Hvammstanga og þessi litla skriða því nokkuð sérstök. Ef svo fer fram sem horfir verður þetta ljósa líparít innan tíðar algróið lúpínu og að mestu hulið sjónum manna. Að mati höfundar er þarna augljóst dæmi um skriður og grjót sem á að fá að njóta sín áfram – ógróið. Án þess verður gilið við Syðri-Hvammsá fátæklegra. 9. mynd. Lúpína hylur óðum litla líparítskriðu ofan við Hvammstanga. Ljósm.: Þ.Ö.Á., ágúst 2010. undir sig á svo sem einum áratug. Á þriðja ári er plantan orðin svo stór og með svo þétta laufþekju að hún fer að skyggja á gróðurinn í kring svo hann veslast upp og deyr. Þegar svörðurinn inni í þéttum lúpínubreiðunum var athugaður kom í ljós að þar var mikið af dauðu berjalyngi. Þarna er lúpínan að leggja undir sig algróið land. Þessar lautir eru hrífandi gróðursamfélag, með þrenns konar berjalyng: Krækilyng (Empetrum nigrum), bláberjalyng (Vaccinium uliginosum) og aðalblá- berjalyng (V. myrtillus). Þegar þessar myndir voru teknar, 12. ágúst 2010, var þar allt blátt af berjum. Rannsóknir sýna að alaskalúp- ína getur numið land og dreift sér við fjölbreytilegar aðstæður á þurr- lendi, allt frá lítt grónum melum og söndum til vel gróins mólendis.1 Þessar algrónu lautir í Borgunum á Hólmavík eru sorglegasta dæmið sem höfundur þessarar greinar hefur séð þar sem alaskalúpína valtar yfir öflugt, fjölbreytt og gjöfult gróðursamfélag.        8. mynd. Í Borgunum við Hólmavík þrífst lúpínan illa á skraufþurrum, gróður- snauðum ásum sem henni var ætlað að klæða, en dafnar mjög vel í algrónum laut- unum. Ljósm.: Þ.Ö.Á., ágúst 2010. 81_3-4_loka_271211.indd 112 12/28/11 9:13:35 AM

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.