Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2011, Blaðsíða 24

Náttúrufræðingurinn - 2011, Blaðsíða 24
Náttúrufræðingurinn 128 þ.e. mun eldra en 6100 ára. Til að komast nær aldri þess má styðj- ast við þykknunarhraða mósins á milli gjóskulaganna H4 og 6000 ára Heklulagsins (mögulegrar Heklu Ö). Gengið er út frá því að þykkn- unarhraðinn hafi verið sá sami neðan 6000 ára lagsins og ofan þess. Stuðst er við bæði sniðin sem mæld voru í Hofsvík (6. mynd). Þykkn- unarhraðinn reiknast annars vegar 2,2 cm/öld í fjörumónum og hins vegar 1,7 cm/öld í brimklifinu (um 1,3 cm/öld í Grundarhverfissniði). Samkvæmt þessum útreikningum gæti mómyndunin hafa hafist fyrir 9.600–9.800 árum. Berghlaupið sjálft kann að vera nokkrum öldum eldra. Um þetta leyti stóð sjór hvað lægst í Faxaflóa, allt að 30 m lægra en nú (8. mynd),29,30 og hefur framhlaupið því líklega ekki náð til sjávar. Sé aldur framhlaupsins nálægt 10.000 ár, eins og hér er ýjað að, skýrir það hvers vegna Saksunarvatnsgjóskan fannst ekki ofan á urðinni, þ.e. hún er eldri en framhlaupið. Umræða Það kom nokkuð á óvart við athug- anir á fjörumónum að gjóskulagið Katla~1500 skuli finnast þar við meðalsjávarborð, sem er um 2 m undir stórstraumsflóðmörkum. Ætla má að mómyndunin hafi stöðvast um það leyti sem mýrin fór niður fyrir stórstraumsmörk og sjór tók að flæða reglulega inn yfir hana. Það þýðir aftur að afstæð hækkun sjávarborðs hefur verið a.m.k. 2 m á 500 árum, eða 0,40 cm/ári að jafnaði. Þetta er meira en annars staðar hefur mælst. Til sam- anburðar má nefna að samkvæmt mælingum í Reykjavíkurhöfn hækkaði sjávarborð um 0,36 cm/ ári á tímabilinu 1956–2007.31 Þarna fer saman hækkun sjávarborðs í heimshöfunum, vegna hlýnunar sjávar, og landsig. Samkvæmt mælingum frá níu stöðum víða um heim hækkaði sjávarborð á seinni hluta 20. aldar um 1,45±0,34 mm/ári að jafnaði.32 Einnig kemur fram að sjávarborðsbreytingar voru mishraðar og mismiklar eftir tímabilum. Með hliðsjón af þessum mælingum má draga þá ályktun að á seinni hluta 20. aldar hafi hækkun sjávarborðs í Reykjavík vegna landsigs verið um 2 mm/ári (20 cm/öld) og um 1,5 mm/ári (15 cm/öld) vegna hækkunar sjávar í heimshöfunum. Ekki eru tiltækar mælingar frá fyrri öldum, en reikna má með að landsig við Faxaflóa hafi verið fremur stöðugt síðustu 500 árin. Hækkun sjávarborðs í heimshöfunum á 16.–19. öld er talin hafa verið lítil sem engin.33 Eins og sjá má af sniðunum á Sjávarhólaurðinni í Hofsvík hefur ekki tekið fyrir mómyndun þar fyrr en nokkru eftir 1500, líklega á 16. eða jafnvel 17. öld. Væntan- lega hefur fyrst flætt yfir mýrina í sjávarflóðum tengdum stórviðri og hárri sjávarstöðu. Á 16.–18. öld var helsti verslunarstaður við Sundin í Grandahólma vestan Örfiriseyjar. Samkvæmt heimildum var versl- unin færð úr hólmanum á 17. öld, fyrst í Örfirisey og síðan upp á -80 -60 -40 -20 0 20 40 60 80 -12000 -10000 -8000 -6000 -4000 -2000 0 2000 Búrfellshraun Hrútagjárdyngja Efstu fjörumörk undir Esjuhlíðum Sjávarhólahlaup Lægsta sjávarstaða í Faxaflóa Leitahraun Nákuðungsáflæði Seltjörn Brimklif ofan Dýjahlíðar Hofsvík Þráinsskjöldur 8. mynd. Staða sjávarborðs á höfuðborgarsvæðinu í ísaldarlok og á nútíma. Tímaskalinn miðast við raunár frá árinu 1950. – Sea level fluctuations in the Reykjavík area during postglacial times. 81_3-4_loka_271211.indd 128 12/28/11 9:13:57 AM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.