Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2011, Blaðsíða 67

Náttúrufræðingurinn - 2011, Blaðsíða 67
171 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags með því móti við miðlun þekk- ingar og fróðleiks til landsmanna um umhverfismál og íslenska nátt- úru. Náttúrufræðingurinn hefur verið gefinn út samfellt í rúma sjö áratugi, frá árinu 1931. Um er að ræða alþýðlegt fræðslurit þar sem birtar eru greinar um náttúrufræði, jafnt fræðilegar greinar og almenur fróðleikur. Margar greinar í ritinu fjalla um niðurstöður rannsókna á íslenskri náttúru sem eru hvergi birtar annars staðar. Leitast er við að gera efninu skil á aðgengilegan hátt þannig að áhugasamir leikmenn sem og fræðimenn geti haft bæði gagn og gaman af, þó án þess að slakað sé á kröfum um gæði og áreiðanleika. Hið íslenska náttúrufræðifélag bendir á að þrátt fyrir menningar- legt og fræðilegt mikilvægi Náttúru- fræðingsins gerir smæð íslensks samfélags félaginu örðugt fyrir um að byggja upp stóran hóp meðlima. Stuðningur og þátttaka opinberra aðila getur því skipt sköpum í afkomu ritsins. Undanfarin misseri hefur borið á auknum úrsögnum opinberra bókasafna og skólastofn- ana úr félaginu. Í ljósi bágs efna- hagsástands og kröfu yfirvalda um sparnað og niðurskurð er skiljanlegt að stjórnendur telji hags sinna stofn- ana gætt með slíkum ákvörðunum. Þó er hætt við að ávinningurinn verði að teljast léttvægur til lengri tíma litið ef grafið er undan tilveru ritsins og útgáfan leggst af. Þegar litið er til þess óeigingjarna framlags sem stór hópur vísinda- manna og fagaðila leggur af mörkum við útgáfu Náttúrufræðingsins og þeirrar sérstöðu sem ritið hefur í útgáfu á íslensku fræðsluefni um náttúrufræði, verður að telja illskiljan- legt að þeir opinberu aðilar sem hafa skyldum að gegna varðandi fræðslu og miðlun náttúrufræða líti á uppsögn Náttúrufræðingsins sem sparnað.“ Útgáfa Á árinu 2009 kom út einn og hálfur árgangur Náttúrufræðingsins, hálfur 77. árg. (3.–4. hefti) og allur 78. árg. (tvö tvöföld hefti), alls þrjú tvöföld hefti. Í árslok vantaði upp á einn árgang til að ljúka átaksverkefni því sem hófst í september 2006 og ætlað var að vinna upp seinkun í útgáfu tímaritsins. Í lok ársins var þó séð fyrir endann á því þar sem unnið var að lokafrágangi á fjórföldu hefti, 79. árg., með safni greina eftir fyrir- lesara á afmælisráðstefnu til heiðurs Arnþóri Garðarssyni prófessor. Hið íslenska náttúrufræðifélag gerði samning við Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn um ljósmyndun á eldri árgöngum Náttúrufræðingsins og var hann undirritaður í febrúar 2009. Með samningnum skuldbatt félagið sig til að skila Náttúrufræðingnum rafrænt til safnsins, auk skylduskila á prentuðu efni, og safnið tók að sér að ljósmynda gömul hefti tímarits- ins. Með þessu er tryggt að tímaritið verður varðveitt bæði á prentuðu og rafrænu formi. Þá var á haustmán- uðum 2009 opnað fyrir aðgang að eldri árgöngum Náttúrufræðingsins á vefnum www.timarit.is sem Lands- bókasafn Íslands – Háskólabókasafn rekur. Samkvæmt samningnum verða fimm nýjustu árgangarnir hverju sinni lokaðir. Leit að efni í Náttúrufræðingnum er með þessu gerð auðveldari. Félagið fékk 500 þúsund króna styrk til verkefnisins úr Náttúruverndarsjóði Pálma Jóns- sonar. Félagsbréfið kom út þrisvar sinnum á árinu. Félagsbréf með aug- lýsingu um aðalfund félagsins var sent öllum félagsmönnum heim í upphafi ársins. Þá komu tvö Félags- bréf út á haustmánuðum, í septem- ber með vetrardagskrá fræðslu- funda félagsins og í desember þar sem afmælisfundur HÍN í tilefni 120 ára afmælisins var auglýstur. Fræðslufundir Fræðsluerindi Hins íslenska nátt- úrufræðifélags voru haldin síðasta mánudag vetrarmánaðanna kl. 17:15 í sal Menntaskólans við Sund. Erindin voru flutt í MS eftir að hafa verið í Háskóla Íslands frá fyrri hluta síðustu aldar, en stjórn félags- ins tók þessa erfiðu ákvörðun vegna hárrar leigu hjá HÍ sem félagið réð ekki við. Sex fræðsluerindi voru haldin á árinu en ekki voru erindi í maí og september. Síðasta erindi ársins, erindi dr. Helga Björnssonar jöklafræðings, var haldið í Salnum í Kópavogi í samstarfi við Jöklarann- sóknafélag Íslands og Bókaútgáfuna Opnu. Erindi ársins voru: Í janúar hélt dr. Árni Einarsson líf- fræðingur erindið „Lífríkiskreppur í Mývatni“. Fundargestir voru 51. Rannveig Magnúsdóttir líffræð- ingur hélt í febrúar erindið „Pokadýr í Ástralíu“ og mættu 50 manns. Dr. Friðgeir Grímsson steingerv- ingafræðingur hélt í mars erindið „Jurtir í jarðsögu Íslands“ sem fjallaði um niðurstöður doktorsverkefnis Friðgeirs. Fundargestir voru 47. Í apríl hélt Snævarr Guðmunds- son, ljósmyndari og stjörnuskoðunar- maður, erindið „Stjörnuhiminninn yfir Íslandi“. Fundargestir voru 18. Jóna Björk Jónsdóttir líffræðingur hélt í október erindið „Gróðurfram- vinda í Skaftáreldahrauni og áhrif hraungambra á landnám háplantna“. Fundargestir voru 28. Síðasta erindi ársins hélt dr. Helgi Björnsson jöklafræðingur í nóvember, um jökla á Íslandi, og nefndi hann erindið „Jöklar á Íslandi í upphafi 21. aldar og framtíðarhorfur“. Fyrir- lesturinn var haldinn í samstarfi við Jöklarannsóknafélag Íslands og Bókaútgáfuna Opnu en bók Helga „Jöklar á Íslandi“ var þá nýkomin út. Fundargestir voru 189. Samtals mættu 194 manns á fyrstu fimm erindin, 39 að meðaltali á hvern fund. Á fræðsluerindi Helga í Salnum skrifuðu 189 í gestabók félagsins en áætlað var að á milli 200 og 250 manns hefðu mætt. Alls mættu því a.m.k. 383 á fræðslufundi HÍN á árinu, eða að meðaltali 64 í hvert sinn. Friðgeir Grímsson og Ester Ýr Jónsdóttir héldu utan um skipulag og framkvæmd fundanna. 81_3-4_loka_271211.indd 171 12/28/11 9:14:30 AM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.