Náttúrufræðingurinn - 2011, Blaðsíða 32
Náttúrufræðingurinn
136
úr, en til þess voru notaðar flugljós-
myndir frá árinu 2003 (Landmæl-
ingar Íslands) og 2007 (Loftmyndir
ehf.) því ekki var hægt að meta
rúmmál urðarinnar beint á yfir-
borði jökulsins sökum óvissu vegna
yfirborðsbráðnunar. Gögn úr jarð-
skjálftamælum í nágrenni Morsár-
jökuls voru könnuð ef ástæður
bergflóðsins væri hugsanlega að
finna í jarðskjálftavirkni og einnig
til að tímasetja hrunið. Þá voru
einnig skoðuð gögn frá nærliggjandi
veðurstöðvum ef vera kynni að
tengja mætti bergflóðið á einhvern
hátt veðurfari, t.d. mikilli úrkomu.
Í tveimur leiðöngrum í maí og júlí
2007 var leitað eftir ummerkjum um
aflögun jökulíssins undir urðinni og
umhverfis hana.
Lýsing á bergflóðinu og
bergflóðsurðinni
Upptök bergflóðsins eru í höfð-
anum vestan við Skarðatind og Þor-
steinshöfða austan megin við eystri
ísfossinn (1. og 6. mynd). Brotsárið
er um 330 m hátt og nær frá um 620
m upp í 950 m h.y.s. og breidd þess
er að meðaltali um 480 m. Til að
áætla rúmmál bergspildunnar sem
féll úr hlíðinni var notað landlíkan
sem byggt er á flugljósmyndum af
svæðinu fyrir og eftir hrunið. Út
bráðnun hans fyrst eftir að berg-
flóðið féll.29
Rannsóknir og mælingar
á bergflóðsurðinni
Frá árinu 2007 hefur verið farið
árlega í leiðangra á Morsárjökul til
mælinga og rannsókna á bergflóðs-
urðinni. Á hverju ári eru gerðar
GPS-mælingar á frambrún urðar-
innar og staðsetning áberandi stór-
grýtis og bjarga í henni fundin til að
unnt sé að fylgjast með hreyfingum
jökulsins. Ljósmyndir eru teknar af
urðinni og fylgst með breytingum á
henni, eins og t.d. hvernig stórgrýtið
í henni molast niður vegna frost-
veðrunar. Þá er þykkt íssins undir
urðinni mæld árlega til að fylgjast
með því hve mikið jökulyfirborðið
umhverfis urðina bráðnar. Einnig er
miðja frambrúnar jökulsins staðsett
með GPS-mælingum á hverju ári
til að fylgjast með hörfun hennar. Í
ágúst 2007 var tekin flugljósmynd
af Morsárjökli (Loftmyndir ehf.) en
hún var notuð til að mæla stærð
og útbreiðslu bergflóðsurðarinnar,
sem hafði auk þess verið GPS-mæld
í maí sama ár. Urðin og brotsárið
voru einnig ljósmynduð úr flugvél
sumarið 2007. Rúmmál efnisins sem
féll niður var áætlað út frá landlík-
ani af hlíðinni sem bergflóðið féll
og aðra jökla á Copper River-
svæðinu.24,25 Frá Bandaríkjunum
eru dæmi eins og Little Tahoma
Peak-bergflóðið sem féll á og huldi
neðri hluta Emmons jökulsins.26
Frá Himalajafjöllum má nefna berg-
flóðið, sem féll á Bualtar-jökulinn
árið 1986,27 og frá Nýja-Sjálandi
er Mt. Cook-bergflóðið frá árinu
1991.28 Mjög löng úthlaupslengd
er sameiginleg öllum þessum berg-
flóðum. Eitt frægasta bergflóðið sem
fallið hefur á jökul er það sem féll
á Sherman-jökulinn í Alaska árið
1964 en það var mikill jarðskjálfti
(Alaska-jarðskjálftinn) sem kom
bergflóðum af stað.24,25 Rannsóknir
leiddu í ljós að ofan á Sherman-jökl-
inum myndaði bergflóðsurðin 1,3
m þykkt einsleitt lag. Urðin lá alls
staðar, að jöðrunum undanskildum,
ofan á óhreyfðum snjó sem hafði
fallið veturinn 1963–1964 og virðist
því hafa ferðast á vökvakenndan
hátt yfir jökulinn, líklega með um
340 km/klst. hraða. Athyglisvert
er að áður en bergflóðið féll hafði
afkoma jökulsins verið neikvæð
og jökulsporðurinn hörfað um 25
m/ári. Eftir að bergflóðið féll á
jökulinn breyttist afkoman og varð
hún jákvæð á árabilinu 1964–1966,
en einungis um nokkra sentimetra
á ári. Urðin ofan á jöklinum virðist
því hafa myndað hlíf sem dró úr
6. mynd. Brotsárið og flæðilínur
bergflóðsurðarinnar sem féll á
jökulinn. Brotsárið nær frá um
620 m upp í um 950 m og er allt
að 400 m breitt. Svonefndur
Birkijökull sést til hægri á mynd-
inni. Hann var um tíma þriðji
ísstraumurinn sem sameinaðist
Morsárjökli, en hefur látið mjög
á sjá seinni hluta 20. aldar og
það sem af er 21. öld. – The frac-
ture zone and flow lines of the
accumulation lobe. The fracture
zone reaches from 620 m up to
950 m and is up to 400 m wide.
The Birkijökull outlet glacier can
be seen to the right on the photo.
It was connected to the Morsár-
jökull glacier but has retreated
considerably during the last cen-
tury. Ljósm./Photo: Matthew
Roberts 2007.
81_3-4_loka_271211.indd 136 12/28/11 9:14:03 AM