Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2011, Blaðsíða 45

Náttúrufræðingurinn - 2011, Blaðsíða 45
149 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags og féll saman við stórstraumsflóð á Suðurnesjum46 (Gísli Viggósson, munnl. uppl.). Frá þeim tíma hefur stofnunin samræmt áætlanir sínar samkvæmt nýjustu reynslu og skýrslum milliríkjanefndar SÞ.2 Snemma á tíunda áratugnum var gert nýtt áhættumat á hafnarmann- virkjum út frá hækkandi sjávarstöðu og forgangsröðun varðandi við- hald og ný verkefni endurskoðuð í ljósi nýrra aðstæðna. Áætlunin var unnin og sett fram í samvinnu við samtök sveitarfélaga, Vegagerðina og ríkisvaldið. Fyrsta reglugerðin sem hvílir á þessum nýja grunni er viðbót í byggingarreglugerð48 sem kveður á um að óheimilt sé að byggja á svæðum þar sem hætta á sjávarflóðum hefur verið skilgreind, og að ekki skuli leyfa kjallara í húsum á viðkvæmum flóðasvæðum. Veggir sem snúa að sjó skulu vera traustbyggðir og gluggalausir. Norðurlönd hafa sýnt áhuga á að nýta enn frekar endurnýjanlega orku í stað olíu; lífmassi, vind- orka, jarðvarmi, sólarorka og jafn- vel öldur og sjávarföll hafa verið virkjuð. Kannað var í samvinnu norrænna sérfræðinga hvaða áhrif veðurfarsbreytingar gætu haft á nýt- ingu endurnýjanlegrar orku og þær virkjanir sem nú eru í notkun, með áherslu á vatnsafl og vindorku.49 Niðurstaðan varð sú að líkleg áhrif eru frekar jákvæð og engar veru- legar hamfarir eru fyrirsjáanlegar. Búist er við að hægt verði að fá jafnari og meiri nýtingu út úr þeim orkuverum sem fyrir eru með vax- andi vindum, meiri úrkomu og örari bráðnun. Í skýrslunni segir jafn- framt á bls. 21: „Búast má einnig við annars konar umhverfisáhrifum af aðgerðum sem miða að því að draga úr koltvísýringsútblæstri; hér duga ekki smáar lausnir lengur, og þær eru sannarlega ekki allar snotrar og því þurfa norrænu þjóðirnar að gera upp við sig hvorn kostinn þær velja: skemmdir á landslagi eða hnatt- ræna hlýnun“. Í skýrslunni49 er ekki tekin fyrir aðlögun mannvirkja að breytingum. Ekki er heldur fjallað um hugsanleg áhrif á uppistöðu- og veitulón eða hvort þörf sé á að styrkja búnað orkuveranna, en bent er á að æskileg þróun væri að orkuvinnslan yrði sveigjanlegri og fylgdi betur eftirspurnarsveiflum, einkum orka frá vindbýlum. Þátttaka almennings Á ráðstefnunni um aðlögun að lofts- lagsbreytingum2 var áberandi hve mismiklum upplýsingum hafði verið komið skipulega á framfæri við almenning á Norðurlöndum. Skandinavísku löndin vænta þess að aðgengi að vönduðum upplýs- ingum geti auðveldað almenna sam- stöðu um undirbúning breytinga og viðbrögð við þeim, en þar er sveit- arstjórnarstigið sett í öndvegi. Ef aðgerðir miðast einungis við afleið- ingar hlýnunar, án þess að ráðist sé að rót vandans, er meiri hætta á að aðlögunin mistakist. Þess vegna var lögð áhersla á að almenningur fái yfirsýn um orsakasamhengið í mál- inu enda talin hætta á að skemmdir dragi athyglina að aðlögun og frá orsökum hlýnunar. Því gætu verri afleiðingar komið í bakið á þjóðunum ef ekki næst jafnframt samstaða um að draga úr útblæstri. Vísindamenn hafa bent á að nú sé rétti tíminn til að upplýsa almenning um málið og hvetja til umræðu um allar hliðar hnattrænnar hlýnunar og viðbún- aðarsstjórnun. Karin O‘Brian við Ósólarháskóla og samstarfskonur hennar hafa vakið athygli á því að ólíklegt sé að heildaráhrifin af veður- farsbreytingum verði jákvæð18 og efast um að tæknilausnir dugi til að afstýra skaða af völdum veðurfars- breytinga (6. mynd). Gera þurfi betri grein fyrir mikilvægi málsins og þörfinni á að draga úr útblæstri. Þær átelja norsk stjórnvöld fyrir að gera ekki frekari ráðstafanir til þess að upplýsa almenning og fella áætl- anir að mismunandi aðlögunarhæfni bæði einstkalinga og sveitarfélaga. Það þurfi að vera ljóst að breyt- ingar í vistkerfum kalli ekki aðeins á tæknilegar lausnir, heldur muni þær reyna á menningu og félags- legan samtakamátt sem aftur krefjist víðtæks undirbúnings og þjálfunar þeirra sem ætlað er að stjórna nauð- synlegum aðgerðum.20 Nauðsynlegt er að endurskoða merkinguna sem lögð er í orðið viðbragð. Ekki dugir að bíða átekta og bregðast við þegar skaðinn er skeður heldur þarf að þoka málum í átt að æskilegum undirbúningi til að fyrirbyggja tjón. Til þess þarf almenna fræðslu þannig að orsakasamhengið liggi ljóst fyrir, og einnig þarf samfélagið að koma fram með nothæfa aðgerðaáætlun og krefjast almennrar þátttöku.20 Það að fólk skuli setja í gang innan- hússkælikerfi sem gengur fyrir olíu og blæs út auknum koltvísýringi í miklum hitum, sem og dæmið um gervisnjóinn, bendir til að þetta hafi ekki tekist í Noregi,18 en öllum 6. mynd. Norrænir vetur hafa áhrif á menningu, tækniþróun, ferðaþjónustu og listir. – The Nordic winter has been the source of cultural and technological development,it attracts tourists and influences creative arts. Ljósm./Photos: María Maack & Finnur Árnason. 81_3-4_loka_271211.indd 149 12/28/11 9:14:16 AM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.