Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2011, Blaðsíða 57

Náttúrufræðingurinn - 2011, Blaðsíða 57
161 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags plöntur fá mjög takmarkaða vitn- eskju um skyldleika tegunda og flokkun þeirra, sem hlýtur að teljast meginatriði í þekkingu á plöntum og öðrum lífverum. Mér sýnist að með þessari aðferð sé notendum bókanna ætluð meiri vankunnátta og tornæmi en ástæða er til. Sem betur fer er plöntum með lítið áberandi eða litvana blómum, svo sem grösum og störum, að mestu raðað eftir kerfinu, og sama er að segja um byrkninga og berfræv- inga. Þó eru sums staðar furðuleg frávik; t.d. eru fífutegundirnar tvær með löngu millibili í bókinni (klófífa sett með störum), blómsef og flagasef skilin frá öðrum sefteg- undum og naðurtunga er ekki með tungljurtum, sem eru af sömu ætt og hún. Innan blómlitaflokka eru líka nokkur óskiljanleg frávik; t.d. er músareyra (Cerastium alpinum) langt frá öðrum Cerastium-tegundum, sem þó hafa allar hvít blóm og svipaða blaðgerð, og sama er að segja um akurarfa (Stellaria graminea), sem er langt frá öðrum Stellaria-tegundum. Nýja Plöntuhandbókin var ekki saumuð eins og sú eldri, heldur aðeins kjöllímd, og því er hætt við að blöðin eigi eftir að losna við mikla notkun. (Mitt eintak losnaði strax úr kápunni að framan!) Ekki hef ég rekist á prentvillur í bókinni, nema á baki titilsíðu, þar sem vísað er í röng númer varðandi tvær myndir. Með þessari nýju bók höfum við loksins fengið í hendur heildaryfirlit um langflestar tegundir blómjurta og byrkninga sem vaxa villtar á Íslandi. Er það vonum seinna, því að nú eru liðin 30 ár síðan slíkt yfirlitsrit birtist, þ.e. þriðja útgáfa af Íslenzkri ferðaflóru Áskels Löve, sem kom út 1981, með strikmyndum Dagný Tande Lid, þeim sömu og í Norsk flora. Íslenska plöntuhandbókin stendur þó ekki undir þeim kröfum sem gera verður til fræðibókar um háplöntuflóru Íslands, enda mun ekki vera til þess ætlast. Það er fyrir löngu orðið tímabært að efna til nýrrar fræðibókar um það efni, sem einnig gæti nýst almenningi, í handhægu formi, með ljósmyndum eða teikningum. Þar ættu mun fleiri innfluttar tegundir og slæðingar heima. Auk tegundalýsinga ætti þar að gera grein fyrir breytileika innan tegunda (deilitegundum og afbrigðum); þar ættu einnig að vera lýsingar flokka (kvísla, ætta o.s.frv.). Einnig mætti geta um nytjar teg- unda í fortíð og nútið, líkt og Ágúst H. Bjarnason gerði í sinni flórubók. Varla er þó mikils að vænta í þessu efni á næstunni, því eins og stendur er aðeins einn grasafræðingur í fullu starfi hérlendis, þ.e. við Háskóla Íslands. Er það mikil og furðuleg afturför frá því sem áður var. Helgi Hallgrímsson, líffræðingur, Egilsstöðum 81_3-4_loka_271211.indd 161 12/28/11 9:14:21 AM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.