Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2011, Qupperneq 22

Náttúrufræðingurinn - 2011, Qupperneq 22
Náttúrufræðingurinn 126 Gjóskulag/upptök – Tephra layer, origin Aldur/gosár – Age Heimildir – Reference Katla ~1500 e.Kr./AD 19, 20 Miðaldalag/Reykjanes 1226 e.Kr. 21, 22 Landnámslag/Veiðivatna- og Torfajökulskerfi ~870 e.Kr. 23, 24 Hekla (nefnt „gráa lagið“) ~1400 BP 20 Hekla-A ~2500 BP 20, 25 Katla-E ~2900 BP 20 Katla-N ~3500 BP 20, 26 Hekla-4 ~4300 BP 6, 7 Hekla (mögul. Hekla Ö) ~6000 BP MÁS, óbirt gögn Reykjanes 6000-6100 BP 20, 27 „Saksunarvatnsgjóskan“/Grímsvötn ~10.200 BP 9, 11 1. tafla. Helstu gjóskulög á Suðvesturlandi. Aldur forsögulegra gjóskulaga er gefinn í raunárum fyrir 1950. – The main tephra layers in the Reykjavík area. The age of prehis- toric tephra layers are given in calendar years before 1950. Könnun gjóskulaga í fjörumónum Í yfirborði urðarinnar í Hofsvík er víðast hvar stórgrýti, en á milli er bergmulningur blandaður leir- kenndu efni. Næst ofan á urðinni er þunnt bláleitt sendið leirlag og þar ofan á kemur dökkleitur mór. Í sjávarmálinu mælist mórinn á bilinu 2,2–3,2 m þykkur, en borað var í hann á fimm stöðum með jarðvegsbor. Telja má víst að ójafnt undirlag mósins ráði því hversu misþykkur hann er. Eftir því sem best verður séð nær mórinn tæpa 2 m niður fyrir stórstraumsfjöruborð. Í honum er mikið um birkilurka, stofna, greinar og rótarhnyðjur (5. mynd). Ekki er að sjá að lurkarnir liggi í ákveðnum lögum eða dýpt- arbilum í mónum, en þó finnast þeir ekki í efstu lögum hans. Allmörg gjóskulög finnast í mónum sem gefa kost á aldursgreiningum og útreikn- ingum á þykknunarhraða mósins. Gjóskulagatímatal Gjóskulög hafa um alllangt skeið verið notuð við ýmiskonar rann- einnig í brimklifinu upp af fjörunni (sjá 6. og 7. mynd). Til samanburðar er sýnt snið úr skurði austan við Grundarhverfi (mælt árið 1994). Gjóskulögin voru greind út frá samanburði við önnur snið á Suð- vesturlandi. Sýni úr öllum lögum voru skoðuð í smásjá til að draga fram ýmis einkenni gjóskukornanna, t.d. lit glers og kornagerð. Efnagrein- ingum var ekki beitt, en öll lög sem fram komu á Kjalarnesi hafa verið efnagreind frá nálægum svæðum, m.a. Mosfellsbæ og Reykjavík (MÁS, óbirt gögn). Í sniðunum í Hofsvík komu fram níu þekkjanleg gjósku- lög. Yngst þeirra er Katla~1500. Í fjörumónum er það á allt að 4 cm dýpi. Landnámslagið frá um 870 er skýrt í sniðunum. Greinileg litbrigði verða í mónum um Landnámslagið, en hann er ljósari ofan þess en neðar. Þessi skil sjást í jarðvegi víða um land og eru talin merki um aukna jarðvegseyðingu eftir landnám. Birkilurkar sáust ekki í mónum ofan Landnámslagsins en eru algengir neðar. Elsta gjóskulagið sem fannst í mónum í Hofsvík er um 6000–6100 ára gamalt Reykjaneslag. Lagið hefur verið rakið frá upptökum, sem eru í sjó við Reykjanes, austur 5. mynd. Rótarhnyðja í fjörumónum hjá Sjávarhólum rétt neðan við Kötlu~3500. Lurkarnir í mónum sýna að þar hefur vaxið skógur allt frá því um 9000 BP og fram að landnámi. Ofan landnámslags sjást ekki lurkar í mónum. Gildustu lurkarnir eru 14 cm í þvermál og um 2 m á lengd. – Tree roots in the submerged peat on the Sjávarhólar rock- slide. Tree trunks in the peat indicate growth of wood in the area from 9000 BP to 1200 BP or until the settlement of Iceland, Ljósm./Photo: Árni Hjartarson. sóknir á Suðvesturlandi, svo sem aldursgreiningar á hraunum á Reykjanesskaga og fornleifarann- sóknir. Helstu gjóskulög sem búast má við að finna á Kjalarnesi eru talin upp í 1. töflu. Mælt var snið í fjörumónum á stórstraumsfjöru og 81_3-4_loka_271211.indd 126 12/28/11 9:13:57 AM
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.