Náttúrufræðingurinn - 2011, Side 30
Náttúrufræðingurinn
134
Eins og áður sagði hefur Morsár-
jökull hörfað umtalsvert á síðustu
öld, líkt og aðrir jöklar á land-
inu. Talið er að jökulgarður þvert
yfir Morsárdal marki sögulega
hámarksstöðu jökulsins á seinni
öldum, en henni var náð um 1890
og er garðurinn um 1,6–1,8 km frá
núverandi jökuljaðri (3. mynd). Frá
því að mælingar hófust árið 1932
og fram til 2010 hefur jökulbrúnin
hörfað um 1560 m.6 Mismunandi er
hversu mikið jökullinn hefur hörfað
milli ára (5. mynd), en hann hefur
hopað meginhluta þessa tímabils,
að undanskildu 15 ára skeiði milli
1973/74 og 1987/88.
Berggrunnur Skaftafells-
svæðisins
Berggrunnur Skaftafellssvæðisins
er talinn myndaður á síðastliðnum
5 milljón árum og geymir fjöl-
breytt jarðlög, svo sem hraunlög
sem runnið hafa á hlýskeiðum og
setlög og móbergsmyndanir frá
jökulskeiðum.7 Berggrunnurinn
endurspeglar miklar veðurfars-
breytingar á upphleðslutímanum. Í
fjalllendinu vestan við Morsárjökul,
í Miðfelli, eru ummerki um forna
megineldstöð sem talin er hafa
verið virk fyrir um 2,7 til 1,9 milljón
árum, en miklar rhýólítmyndanir
á annað hundrað metra (5. mynd)
Á tímabilinu 1902–1904 til 1953 er
talið að jökullinn hafi a.m.k. þynnst
um 90 m og hefur hann haldið
áfram að þynnast allt til dagsins
í dag. Samkvæmt mælingum á
skriðhraða jökulsins, sem gerðar
voru árin 1953 og 1954 bæði í efri
og neðri hluta hans, nam hann um
110 m/ári efst en um 50 m/ári nær
jökuljaðrinum.
og myndaði ísfoss en sá vestari
helst enn samhangandi við megin-
jökulinn. Samkvæmt Ives hopaði
Morsárjökull um allt að 1 km frá
árunum 1902–1904 til ársins 1953
eða til þess tíma þegar hann hóf
mælingar á jöklinum. Síðan hefur
jökullinn haldið áfram að hörfa og
árið 2006 hafði hann hörfað um 2
km alls. Rétt er þó að geta þess að
upp úr 1970 gekk jökullinn fram um
4. mynd. Bergflóðsurðin á Morsárjökli stuttu eftir að bergflóðið féll. Greinileg ummerki
nýlegs jökulrofs eftir þykkari jökul getur að líta í neðri hluta hlíðanna beggja vegna
jökulsins. – The accumulation lobe shortly after the rock avalanche fell. Clear indication
of glacier erosion by a thicker outlet glacier can be seen in the lower part of the slopes on
both sides. Ljósm./Photo: Matthew Roberts 2007.
-140
-120
-100
-80
-60
-40
-20
0
20
40
1930 1940 1950 1960 1970 1980 1990 2000
M
æ
lin
ga
r á
h
ör
fu
n
ja
ar
s
M
or
sá
rjö
ku
ls
(m
)
–
R
et
re
at
o
f t
he
M
or
sá
rjö
ku
ll
gl
ac
ie
r (
m
)
Ár – Year
5. mynd. Breytingar á jökuljaðri Morsárjökuls frá 1933 til 2011. Jökullinn hefur hörfað um 1592 m frá því að mælingar hófust um
1933. – The retreat of the Morsárjökull glacier from 1933 to 2011. The glacier has retreated 1592 m since first measurements in 1933.
81_3-4_loka_271211.indd 134 12/28/11 9:14:02 AM