Náttúrufræðingurinn - 2011, Page 64
Náttúrufræðingurinn
168
hér á landi. Skógarmítillinn heldur til í gróðri og
er algengur í skógarbotnum þar sem hann skríður
upp á gróðurinn og krækir sér á hýslana. Mítillinn
getur borið sýkla í hýslana þ.á m. bakteríuna Borrelia
burgdorferi, sem leggst á taugakerfið og veldur Lyme-
sjúkdómi. Mítillinn hefur fundist af og til á Íslandi
allt frá árinu 1967, þegar hann fannst fyrst á þúfutitt-
lingi sem var nýkominn til landsins frá Evrópu, og
búast má við að tilfellum fjölgi á næstu árum.
Fuglar
Arnarvarp gekk vel á árinu og komust 36 ungar á legg.
Af 65 arnarpörum á landinu urpu 45 og af þeim komu
26 pör upp ungum. Varpsvæði hafarnarins nær nú frá
Faxaflóa vestur og norður um land að Húnaflóa. Þótt
fullorðnir fuglar hafi sést á Suður- og Norðurlandi
hefur haferninum ekki tekist að ílendast þar á ný eftir
mikla fækkun, sem hófst í kjölfar þess að farið var að
eitra fyrir hann á síðari hluta 19. aldar og náði hámarki
um 1960, þegar stofninn taldi 20 pör.
Samkvæmt árlegri vortalningu á rjúpu virðist upp-
sveifluskeið stofnsins sem hófst á austanverðu landinu
2008 hafa náð til alls landsins og var meðalaukning frá
fyrra ári um 25%. Ekki er vitað hvort vöxtur stofnsins
að þessu sinni sé upphaf að náttúrulegri uppsveiflu,
þar sem sveiflutíminn er um 11 ár, eða hvort fækka
muni í stofninum eftir tveggja ára vöxt eins og í síðustu
sveiflu, sem eingöngu varaði frá 2003 til 2008.
Meðal markverðra flækingsfugla var víxlnefur
(Loxia leucoptera) sem sást í fyrsta sinn á Íslandi á
Stöðvarfirði 6. ágúst. Hjálmönd (Bucephala albeola) sást
við Höfn í Hornafirði og Þinganes fyrri hluta febrúar
en áður hafði tegundin eingöngu sést á Íslandi 1956
og 1988. Gransöngvari (Phylloscopus collybita) verpti í
fyrsta sinn á Íslandi í Einarslundi á Höfn.
Krossnefur (Loxia curvirostra), sem er finkutegund
og á aðalheimkynni sín í barrskógabelti norðurhvelsins,
hefur verið nokkuð áberandi á landinu undanfarin ár.
Hann lifir að miklu leyti á könglum og varptíminn,
sem gjarnan er um miðjan vetur, fylgir þroskaferli
könglanna. Í slæmu árferði getur fuglinn lagst í flakk í
lok varptímans og flæðir þá gjarnan yfir Vestur-Evrópu
úr austri í fæðuleit. Eftir mikla fræframleiðslu barrtrjáa
hérlendis á síðasta ári kom ekki á óvart að fuglar sem
komu með stórri göngu árið 2008 reyndu varp. Í árslok
2008 sást til fullorðinna fugla mata 2–3 unga við Sogið í
Ölfusi. Í ársbyrjun 2009 sáust víða hópar fugla í tilhuga-
lífi og varpundirbúningi á Suðurlandi og í nágrenni
Reykjavík. Önnur staðfesting á varpi þessa farhóps
kom hins vegar frá Austurlandi í lok maí, þegar kross-
nefur sást með tvo unga hjá Fellabæ við Lagarfljót.
Ný ganga krossnefja náði til Íslands 2009 annað
árið í röð. Gangan fór yfir landið á 3–4 vikum og náði
hámarki fyrstu viku júlí. Um 600–650 fuglar sáust víðs
vegar um landið, þar á meðal 12 fuglar sem sáust í
árlegum Surtseyjarleiðangri dagana 13.–16. júlí þar
sem þeir sóttu æti í fjöruarfabreiður.
Gransöngvari. Ljósm.: Brynjúlfur Brynjólfsson. Víxlnefur. Ljósm.: Sigmundur Ásgeirsson. Krossnefur. Ljósm.: Skarphéðinn G. Þórisson.
Skógarmítill. Ljósm.: Erling Ólafsson.
81_3-4_loka_271211.indd 168 12/28/11 9:14:28 AM