Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.2011, Blaðsíða 21

Ægir - 01.10.2011, Blaðsíða 21
21 F R É T T I R Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is www.isfell.is Allt til línuveiða vert að fylgjast með hversu giftusamlega tókst til. Fjölskyldan og farsæl sjó- mennska Það var ekki fyrr en ég var kominn öðru sinni á skóla- bekk í Reykjavík, veturinn 1950-51, sem fyrr segir, að ég hitti Marselíu Guðjónsdóttur, sem átti eftir að verða eigin- kona mín og lífsförunautur. Hún leigði í kjallaranum í Barmahlíð 14, þar sem ég var kostgangari. Við vorum þar reyndar fjórir úr Stýri- mannaskólanum. Marselía er ættuð frá Hreppsendaá í Ólafsfirði, dóttir hjónanna Herdísar Sigurjónsdóttur og Guðjóns Jónssonar. Við ákváðum að setjast að á Akranesi. Þar hófum við bú- skap árið 1951 og 24. sept- ember það ár fæddist fyrsta barnið, Inga Jóna, sem er viðskiptafræðingur. Við gift- um okkur síðan 1. júní árið eftir og skírðum frumburð- inn. Síðan fæddist önnur dóttir, Herdís, 31. janúar 1953, sjúkraliði og fiskverk- andi. Loks 14. september 1955 fæddist sonurinn Guð- jón, rafvirki og knattspyrnu- þjálfari. Það var mikið um að vera á okkar heimili, þar sem ég var langdvölum burtu á sjón- um. Þá kom sér vel að Mar- selía var vön að takast á við sérhvert mál sem að höndum bar með röggsemi og mynd- arskap. Hún þurfti að veru- legu leyti að sjá um uppeldi barnanna, annast fjármálin og annað sem gera þarf á stóru heimili. Þegar ég kom heim var alltaf tekið á móti mér með fögnuði, eins og hátíð færi í hönd. Hlakkaði ég því alltaf mikið til heim- komunnar og endurfund- anna. Það hefur stundum viljað gleymast að þakka sjó- mannskonunum þeirra stóra hlut í velferð fjölskyldunnar, þær urðu að vera bæði hús- móðir og húsbóndi langtím- um saman í fjarveru eigin- manna sinna. Það vill gjarnan brenna við í dag að fólk gefur sér ekki tíma til að ræða málin og leysa þau. Þá fer allt í vandamál og skilnaði. Okkur Marselíu hefur tekist að vera vinir. Við höfum alla tíð ver- ið háð hvort öðru, en virt skoðanir hvort annars. Það er góð tilfinning og okkar gæfa. Ég tel mig vera mikinn gæfumann, hef átt góða eig- inkonu og samhenta fjöl- skyldu, sem ég þakka af al- hug. Ég er viss um að yfir mér hefur verið vakað. Alla mína sjómannstíð hef ég aldrei misst mann, aðeins einu sinni hefur maður slasast á sjó með mér. Mér hefur veist sú hamingja að geta bjargað mannslífum, og sjálfur bjargast í ófá skipti úr lífsháska. Fyrir það þakka ég skapara mínum.“ 17 F R Á S Ö G N Þórður og Marselía með börnum og tengdabörnum á hátíðarstundu 1987. Frá vinstri: Inga Jóna Þórðardóttir, Geir H. Haarde, Hrönn Jónsdóttir, Guðjón Þórðarson, Marsel- ía Guðjónsdóttir, Þórður Guðjónsson, Herdís Þórðardóttir og Jóhannes Ólafsson. aegirdes06_final.qxd 15.12.2006 21:27 Page 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.