Ægir - 01.10.2011, Blaðsíða 30
30
reynslu og reynslu af öðru er-
lendu vatni reynum við að
fara ávallt með fulla tanka af
vatni frá Íslandi þegar utan er
haldið.
Á Sauðárkróki er farið í
Kaupfélagið til að versla og
fá ljósrit. Við hittum Guttorm
Óskarsson hinn ágæta gjald-
kera kaupfélagsins, og annað
starfsfólk sem ljósritar fyrir
okkur eftir þörfum og með
mestu ánægju.
Mynd af Mælifellinu prýðir
veggi skrifstofunnar, enda
skipið skráð á Sauðárkróki.
Við erum í heimahöfn. Um
borð hjá okkur hangir mynd
af Sauðárkróki og Mælifellinu
hinu tignarlega fjalli sem
skipið okkar heitir eftir. Á
vissan hátt erum við hér sem
heima.
Næsta höfn er Flateyri, og
við erum í mynni Önundar-
fjarðar nokkru eftir miðnætti.
Þar er látið reka undan Ingj-
aldssandi. Þeirri vel og mynd-
arlega byggðu sveit. Að
bryggju verður ekki farið fyrr
en að morgni, enda mun ekki
unnið við losun fyrr en að
morgni á venjulegum vinnu-
tíma.
Ónafngreindur smyrjari
telur þetta óþarfa töf og
býðst til þess að lóðsa skipið
að bryggju, en það er afþakk-
að kurteislega. Í býtið um
morguninn er loks lagst að
bryggju á Flateyri og þar tek-
ur á móti okkur Gunnlaugur
Finnsson ásamt harðsnúnu
liði bænda og verkamanna. Á
Flateyri fæst úrvals harðfisk-
ur, bæði hjá kaupfélaginu og
Haraldi Jónssyni og kokkur-
inn kaupir hnoðmör.
Eftir alltof stuttan tíma er
losun lokið og út er haldið
fyrir Barðann og inn til Þing-
eyrar. Á Gerðhömrum yst við
Dýrafjörð bjó Jón Oddsson
sem, framleiddi úrvals harð-
fisk milli þess að hann lá á
grenjum eða risti grásleppur
á kvið.
Þingeyringar afgreiða okk-
ur á skömmum tíma, og á
laugardegi 7. nóv. er hringn-
um lokað. Kl. 19.30 klýfur
stefni Mælifellsins öldur
Dýrafjarðar móti nýjum
áfangastað.
Það er aftur Ivigtut. Meira
grjór. Nýr túr er hafinn.
SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS
Skrúfupressur
lofthreinsibúnaður - loftkútar - loftsíur
lofttengibúnaður - loftþurrkarar
Ýmsar stærðir!
Hafið samand við sölumann.
Meðal verkefna Mælifellsins var að flytja norðlenska töðu til Noregs. Hér er heyinu skipað upp í Mosjöen.
Plastprent lagði Krabbameins-
félaginu lið í október og seldi
poka merktan Bleiku slauf-
unni til viðskiptavina sinna.
Um var að ræða BLEIKANN
POKA sem minnti fólk á
átakið og seldust alls 20.000
pokar á tímabilinu.
Plastprent styrkti Krabba-
meinsfélagið um 5 krónur á
hvern seldann poka og af-
henti Ragnheiði Haraldsdótt-
ur, forstjóra Krabbameins-
félagsins, bleika ávísun upp á
100.000 krónur. „Okkur
fannst einstaklega gaman að
taka þátt í verkefninu Bleiku
slaufunni með Krabbameins-
félaginu og hugum á frekara
samstarf í náinni fram-
tíð,“,sögðu fulltrúar Plast-
prents við afhendinguna.
Krabbameinsfélagið
fær bleika ávísun
F R É T T I R
Í S I G L I N G U M