Ægir - 01.10.2011, Blaðsíða 42
42
F R É T T I R
Skipaskrá- og sjómannaalm-
anak Áraklóar komin út
Ný Skipaskrá- og sjómanna-
almanak fyrir árið 2012 er
komin út. Bókinni er dreift
frítt til útgerða skipa og báta
í rekstri, einnig til fram-
kvæmda- og útgerðarstjóra
stærri fyrirtækja, auk fleiri að-
ila. Útgefandi er fyrirtækið
Árakló slf. og er þetta sjötta
útgáfa þess. Auglýsingar
kosta bókina.
Skipaskráin og sjómanna-
almanakið er hefðbundin
handbók sjómanna með upp-
lýsingum um sjávarföll, vita-
og sjómerki, veður og sjólag,
fjarskipti, öryggismál og
fleira. Lagakaflinn er á geisla-
diski, sem fylgir bókinni.
Í skipaskrá eru öll skip og
bátar sem eru á skrá hjá Sigl-
ingastofnun. Skránni er skipt
í tvo hluta, mynda- og texta-
skrá. Í myndaskrá eru skip og
bátar sem eru í rekstri. Í
textaskrá eru einnig upplýs-
ingar um önnur skip og báta.
Á diskinum eru auk laga-
kaflans ýmis kort og eyðu-
blöð. Einnig línurit yfir sjávar-
föll til margra ára frá átján
stöðum á landinu og meira
en þúsund stöðum á jörðinni.
Dreifingu bókarinnar lýkur
fyrir áramót.
SKIPAÞJÓNUSTA EINARS JÓNSSONAR EHF
Laufásvegi 2a • 101 Reykjavík • Gsm: 892 1565 • Sími: 552 3611 • Fax: 562 4299
Útgerðarmenn . . . !
Látið okkur sjá um reglulegt viðhald á skipum ykkar og bátum.
Sérhæfum okkur í viðhaldi á vinnsludekkjum.
Fiskvinnslustöðar . . .
Háþrýstiþvottur og sandblástur.
Alhliða viðgerðir á þökum og veggjum.
Föst verðt i lboð --- Margra ára reynsla --- Le i t ið upplýs inga
Málun og einangrun skipa
Togarinn Þórunn Sveinsdóttir VE er nýjasta fiskiskip þjóðarinnar af stærri gerð-
inni. Skipið kom til landsins um síðustu jól. Upplýsingar um skipið er að sjálf-
sögðu að finna í bók Áraklóar. Mynd: Tryggvi Sigurðsson