Ægir - 01.10.2011, Blaðsíða 46
46
T Í M A M Ó T
„Þrátt fyrir að hafa fylgst með
störfum Fiskifélagsins og
Fiskiþings árum saman kom
það mér á óvart, þegar við fór-
um að taka saman efni í
þessa bók, hvað Fiskifélagið
var gífurlega öflugt á sínum
tíma. Það var í raun og veru
ígildi ráðuneytis og má segja
að félagið hafi í raun mótað
stefnu Íslendinga í sjávarút-
vegsmálum um árabil,“ segir
Hjörtur Gíslason annar tveggja
höfunda bókarinnar Undir
straumhvörfum, hundrað ára
saga Fiskifélags Íslands sem
er nýkomin út. Bókin er um
500 blaðsíður, ríkulega mynd-
skreytt og formála rita þeir
Ólafur Ragnar Grímsson for-
seti Íslands og Jón Bjarnason
sjávarútvegsráðherra. Það er
útgáfufélagið Völuspá, undir
stjórn Jóns Hjaltasonar sem
sér um útgáfu bókarinnar fyrir
Fiskifélagið en Jón er jafn-
framt hinn höfundur bókarinn-
ar.
Þeir Hjörtur og Jón skiptu
með sér verkum við ritun
sögunnar þannig að Jón fjallar
um fyrri hluta tímabilsins en
Hjörtur um þann síðari. Við
ritun fyrri hluta sögunnar var
fyrst og fremst stuðst við
gögn úr fórum félagsins og
samtímaheimildir eins og
blöð, tímarit og Alþingistíð-
indi, en þegar kemur fram á
seinni hlutann verða efnistök-
in meira blaðamennskuskotin
og byggja meðal annars á
munnlegum heimildum og
viðtölum við fyrrum formenn
félagsins og fiskimálastjóra.
Fyrirmyndin sótt til bænda
Fiskifélag Íslands var stofnað
á Hótel Íslandi í Reykjavík
þann 20. febrúar árið 1911.
Jón segir að við stofnun
félagsins hafi menn talið þörf
á að sameina krafta þeirra
sem stunduðu sjómennsku.
Mjög var horft til samtaka
bænda sem talið var að hefðu
náð góðum árangri í sam-
skiptum við Alþingi og fjár-
veitingavaldið. „Sjómenn
horfðu töluvert til bænda á
þessum árum og þeir voru
alltaf nefndir sem dæmi um
það sem hægt væri að ná
fram ef allir í greininni stæðu
saman,“ segir Jón.
Hann segir að landhelgis-
málið hafi brunnið mjög á Ís-
lendingum á þessum árum
Frá Fiskiþingi árið 1987. Fiskiþing sótti fólk af öllum sviðum sjávarútvegsins, bæði sjómenn og landverkafólk.
Hundrað ára saga Fiskifélags Íslands komin út:
Fiskifélagið var ígildi ráðu-
neytis í sjávarútvegsmálum