Ægir - 01.10.2011, Blaðsíða 36
36
F I S K A F U R Ð I R
Þótt Íslendingar hafi á þessu
ári veitt rúmlega 155 þúsund
tonn af makríl hafa íslenskir
neytendur ekki sýnt honum
mikinn áhuga til matargerðar.
Á því kann að þó verða breyt-
ing því nýverið hefur verið haf-
in dreifing á lausfrystum mak-
rílflökum í handhægum neyt-
endaumbúðum í verslanir á
höfuðborgarsvæðinu. Jafn-
framt hefur vefsíðunni www.
makrill.is verið hleypt af
stokkunum en þar er að finna
uppskriftir og margvíslegan
fróðleik um þennan nýja
„landnema“ í íslenskri lög-
sögu.
Maðurinn á bak við þetta
verkefni er Frosti Sigurjóns-
son, sem getið hefur sér gott
orð sem frumkvöðull á allt
öðru sviði en fisksölu. Frosti
er m.a. stjórnarformaður vef-
síðunnar Dohop, sem leitar
uppi hagstæðustu flugfargjöld
um víða veröld fyrir neytend-
ur þannig að beint liggur við
að spyrja hvers vegna hann
hafi svona brennandi áhuga á
markaðssetningu á makríl?
Forvitni var kveikjan
„Ég er dellukarl og ef ég fæ
áhuga á einhverju þá vill
áhuginn verða brennandi. Ís-
lendingar hafa veitt makríl í
umtalsverðu magni í fimm ár
og þessi fiskur hefur verið
fréttamatur vegna deilna um
skiptingu veiða úr stofninum.
Þegar makríllinn fór hins veg-
ar að vaða hér nánast upp í
fjörur jókst forvitni mín til
muna. Ég veiddi dálítið af
honum og langaði að
smakka.“
Frosti segist alinn upp við
matargerð og að sér finnist
gaman að elda, ekki hvað síst
veislumat. „Ég hef verið að
prófa mig áfram. Mér finnst
makríllinn bestur grillaður en
hef reynt ýmsar aðferðir og
líkað vel í öllum tilvikum.“
Hann segir að sig hafi
langað til þess að kynna
þennan forláta matfisk fyrir
landsmönnum en makríll hef-
ur til þessa ekki verið á boð-
stólum í verslunum nema
e.t.v. í undantekningartilfell-
um í stöku fiskbúð. Frosti var
fljótur að sjá að erfiðlega
gengi að kynna vöruna án
þess að hún væri almenningi
aðgengileg. Það varð því úr
að hann og Sindri, sonur
hans og háskólanemi, settu á
stofn fyrirtækið makrill.is og
hófu sölu og dreifingu flök-
uðum makríl. En hvernig
hafa viðtökur verslana verið?
Fín viðbrögð neytenda
„Almennt hafa þær verið
mjög góðar þótt þessi tími árs
sé kannski ekki sá heppileg-
asti til að kynna nýstárlegt
fiskmeti. Við höfum einnig
„Makríllinn er svo sannar-
lega herramannsmatur“
Feðgarnir Frosti Sigurjónsson og Sindri Frostason með afurð fyrirtækis þeirra, lausfryst makrílflök.
Danfoss hf • Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími 510 4100 • www.danfoss.is
Góðar úrlausnir byggjast á faglegri
þekkingu og vönduðum búnaði
Það besta er aldrei of gott!
Stjórnendum í sjávarútvegi og fiskvinnslu er mikið í mun að öll áhöld, tæki og vélar,
bæði í landi og um borð, séu í góðu lagi. Vandaðar vörur þurfa minna viðhald og
lipur þjónusta í landi kemur í veg fyrir kostnaðarsamar tafir, sem skapar mikið
öryggi og sparnað í rekstri.
Danfoss hf. hefur kappkostað að bjóða landsmönnum heimsþekktar
gæðavörur, tryggan lager og góða þjónustu.
Hjá Danfoss hf. starfa tæknimenn með góða sérþekkingu hver á sínu sviði.
Þeir leggja sig fram um að aðstoða við val á rétta búnaðinum við hvert úrlausnarefni.
Stjórnbúnaður fyrir
hita-, kæli- og frystikerfi
Varmaskiptar • Hraðabreytar
Iðnaðarstýringar
Vökvakerfislausnir
Dælur
Dælur
Dælur
Dælur
Dælur
Rafsuðubúnaður
Varmaskiptar
Varmaskiptar
Hitablásarar
Dælur