19. júní


19. júní - 19.06.2007, Page 5

19. júní - 19.06.2007, Page 5
þessum hætti eftir því hvort þær eru lífrænar eða ekki. Þetta er alger brandari – en líka háalvar­ legt. Dúkkurnar fást sérpantaðar af netinu, kaupandinn gefur upp númerið á dúkkunni sem hann langar mest í, hvernig hárkollu hún eigi að vera með, hvernig hann vilji hafa augun og varirnar. Hljómar ótrúlega en svona er þetta. Ég er oft vænd um að vera fantasíuhöfundur en ég er mjög raunsæ í mínum skrifum, allt sem gerðist í þessari ótrúlegu „extravagant“ sögu Yosoy, hefði getað átt sér stað í raunveruleik­ anum, það er ekkert sem mælir á móti því. Það er hægt að kalla þessa bók sem ég er með í smíðum feminíska því hún er í raun mjög kynjafræðileg. Og þótt það ætti auðvitað alls ekki að vera nauð­ synlegt vil ég samt taka fram að ég er ekki að skrifa bók um vonda karlmenn sem breyta konum í ríðidúkkur. Mér finnst plastdúkkurnar ekki endilega bera vott um kvenfyrirlitningu eigenda þeirra heldur fyrst og fremst kvenótta, hreinlega ótta við lífið. Þú getur alveg treyst á dúkkuna – hún fer ekki frá þér. Hún niðurlægir þig ekki, gerir ekkert óvænt. Þessi kvenótti er ekki endilega að aukast í sam­ félaginu heldur er hann að koma meira upp á yfirborðið. Þessi ótti hefur líklega oftast verið í gervi kvenfyrirlitningar og haturs en núna er hann frekar hreinn og tær ótti, því það er ekki sam­ félagslega viðurkennt lengur að brenna konur á báli eða hafa þær hlekkjaðar einhvers staðar.“ Hvaða kona eða konur koma þér í hug í tengslum við hugtakið kvenréttindi eða jafnrétti kynjanna? Stendur einhver ein upp úr? „Fyrir mér eru þessi mál miklu frekar persónuleg en pólitísk. Ég sé helst fyrir mér þær konur sem hafa aukið skilning minn í gegn­ um tíðina, konur sem eru ekki endilega þekktar og því er erfitt að slá um sig með einhverjum nöfnum. Það eru ekki mörg ár síðan mér varð nóg boðið, botn­ aði eiginlega ekki í þessu sam­ félagi sem ég bjó í. Ég skildi þó að ég var samdauna hinum við­ teknu gildum, norminu sem ég var alin upp við. Það er mjög ríkt í okkur mannfólkinu að finnast allt eiga að vera eins og það hefur alltaf verið. Svo ég fór í eins konar vitsmunalegt ferðalag til að kanna hvað allar þessar stórgreindu og áhugaverðu konur voru og eru að segja, um hvað þær vilja vekja okkur til vitundar um og af hverju það skiptir máli að sjá út fyrir normið. Hvernig hlutirnir gætu verið öðruvísi og betri. Við erum jú öll alin upp í okkar kunnuglega samfélagslega umhverfi og öllum þykir óþægilegt þegar verið er að rugga bátnum eða fikta í veru­ leikanum eins og þeir þekkja hann. Mér fannst það líka óþægilegt en ákvað að demba mér í þessa svakalegu „missjón“, láta mig hafa það að vera eins og bjáni og spyrja spurninganna. Um hvað snýst þetta? Maður fær alltaf það sem maður biður um og þarna opnaði ég fyrir ákveðinn lærdóm. Og ég leitaði til kvenna sem urðu mínar ljósmæður í þessari vakningu. Mér finnst erfitt að bæði hitta, og sjá á opinberum vettvangi, ungt fólk sem virðist mikið í mun að viðhalda ranghugmyndum um karla og konur og samfélagið í heild sinni. Breytingar geta verið svo sársaukafullar og það er ógn­ vekjandi hversu mikið maður þarf að leggja á sig sjálfur til að losna undan þeirri heimóttarlegu tilfinningu að best sé að hafa allt eins og það hefur alltaf verið. Nýjar hugmyndir verður maður að heyra aftur og aftur og aftur áður en maður meðtekur þær að fullu og þess vegna er ég innilega þakklát þeim konum og mönnum sem taka að sér það gífurlega mikilvæga verkefni að segja það sama, aftur og aftur, í sorglegri 

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.