19. júní


19. júní - 19.06.2007, Page 12

19. júní - 19.06.2007, Page 12
Sólveig Ólafsdóttir var formaður Kvenréttindafélags Íslands árið 1975. Hvaða málefni voru helst til umræðu þegar þú varst formaður Kvenréttindafélagsins? „Fyrst nefni ég lögin með langa nafninu – um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemis­ aðgerðir, sem sett voru árið 1975. Árin tvö þar á undan áttu sér stað miklar og harðar umræður um tvö frumvörp til þessara laga (1973 og 1974), en þær snerust aðallega um það, hvort konur ættu sjálfar að hafa síðasta orðið um fóstureyðingu. Fundir voru haldnir víða og um málið var hart deilt í fjölmiðlum. Það voru vissu­ lega skiptar skoðanir innan KRFÍ um málið, en meirihluti stjórnar var þeirrar skoðunar, að málið snerist fyrst og fremst um sjálfs­ ákvörðunarrétt kvenna og sendi Alþingi umsögn í samræmi við það. Harkan í deilum birtist með ýmsum hætti og eftir að lögin voru samþykkt spurði einn virðu­ legur maður mig hvort við værum nú ekki stoltir morðingjar! En lögin hafa staðið fyrir sínu og eru enn í gildi. Næsta minnisstæða málið er Kvennafrídagurinn 24. október 1975. Nafnið á honum er líka dæmi um málamiðlanir, sem stundum varð að finna – eðli­ legast hefði verið að kalla atburð­ inn kvennaverkfall, sem það var í raun. Ég veit ekki hvort hægt er að lýsa þessum degi með orðum. Margir hafa örugglega heyrt ótal sögur hver um atvik, sem áttu sér stað þann dag. Það var hreinlega ólýsanleg upplifun að sjá sam­ Sólveig Ólafsdóttir Umræðan snerist um fóstureyðingar Viðtal Svanhildur Steinarsdóttir stöðuna meðal kvenna í sam­ félaginu, sjá hinn mikla fjölda á Lækjartorgi og finna rafmagnað andrúmsloftið þar. Það er skoðun mín, að Kvennafrídagurinn hafi verið sá atburður á áttunda áratugnum, sem hafði víðtækust áhrif á hugsunarhátt og viðhorf kvenna til jafnréttisumræðu. Enn eitt mál verð ég að nefna, en það eru skattamálin. Ég verð næstum því þreytt við tilhugsun­ ina um alla þá vinnu, sem KRFÍ lagði í það mál. Skattamál karla og kvenna höfðu verið á dagskrá félagsins um árabil og mikið reynt til að fá undarlegum reglum um þau breytt. En þegar lagt var fram frumvarp til nýrra skattalaga árið 1976, átti endanlega að spyrða hjón saman í fjárhagslegu tilliti og lögfesta helmingaskiptareglu og samsköttun í eitt skipti fyrir öll. KRFÍ brást hið versta við. Félagið sendi ítarlegar umsagnir um málið, hélt fundi, stjórnarkonur fóru á fundi út um borg og bí – boðnar eða óboðnar eftir atvikum – enda hvíslaði einn ágætur ráð­ herra að mér á einum slíkum fundi: „Þið ofsækið mig, Sólveig.“ Er skemmst frá því að segja, að við gerðum út af við þetta frum­ varp. Eitt lífseigasta baráttumál KRFÍ alveg frá upphafi og enn í dag er aukin stjórnmálaþátttaka kvenna. Skilningsleysi á mikilvægi þessa máls hefur lengi verið með ólíkind­ um. Það eru t.d. aðeins fáar vikur síðan ég heyrði formann í stjórn­ málaflokki segja, að hann skildi nú eiginlega ekki allt þetta tal um karla og konur í forystu – eins og það skipti öllu máli! Allan áttunda áratuginn var hlutfall kvenna á Alþingi 5% – aðeins þrjár konur áttu þar sæti. Konur eru enn aðeins um þriðjungur þingmanna. Mér er minnisstætt að eitt sinn er ég fór á þingpalla og var með son minn með mér. Hann horfði dá­ góða stund yfir þingsalinn og sagði svo stundarhátt: „Hvar eru allar konurnar, mamma?“ Bragð er að þá barnið finnur!“ Hvaða málum finnst þér brýnast að taka á í dag? „Það er erfitt að nefna einhver sértæk verkefni í þessu sam­ bandi. Augljóst er að baráttunni um launajafnrétti er alls ekki lokið. Það er líka undarlegt hve seint gengur að breyta almennu hugarfari fólks til raunverulegs jafnréttis, hvort sem það snýr að stjórnmálaþátttöku kvenna og karla, viðskipta­ og atvinnulífi eða bara almennu daglegu umhverfi og lífi fólks. Ef hægt væri að leysa þetta með einni aðgerð væri það kannski helst með því að ráðast á glerþakið og mölva það mélinu smærra og sópa því út í hafs­ auga!“ Hvernig sérðu framtíðina fyrir þér? „Að okkur takist að ná slíku kynjajafnvægi í samfélaginu, að fyrrverandi formenn þurfi ekki að svara nema sagnfræðilegum spurningum í framtíðinni!“ 12

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.