19. júní


19. júní - 19.06.2007, Síða 17

19. júní - 19.06.2007, Síða 17
17 Lára V. Júlíusdóttir var formaður KRFÍ árin 1986 – 1989. Hún er hæstaréttarlögmaður og starfar hjá Borgarlögmönnum en sinnir auk þess störfum sem lektor við Lagadeild Háskóla Íslands. Hvað var efst á baugi í kvenrétt- indabaráttunni í þinni stjórnartíð? „Það var aðallega tvennt sem við lögðum áherslu á hjá Kvenrétt­ indafélaginu í minni stjórnartíð. Það var annars vegar að fjölga konum á framboðslistum til bæði sveitastjórna og alþingis, enda voru þá kosningar til beggja og vekja upp umræðu um nauðsyn þess að konur væru í framboði. Hins vegar var megináhersla okkar á launamálin sem koma alltaf upp í umræðunni, aftur og aftur. Við hvöttum konur markvisst til þess að vera virkari í stjórnmálum og héldum fundi með þingkonum og þeim sem sýndu áhuga á stjórnmálum. Árið 1988 vorum við með undirskriftasöfnun þar sem við skoruðum á Vigdísi Finnboga­ dóttur að bjóða sig fram til forseta aftur en þá var hennar þriðja kjörtímabil að byrja. KRFÍ hvatti hana óspart til áframhaldandi framboðs og við vorum þær fyrstu sem skoruðu á hana. Mér finnst við því eiga svolítið í Vigdísi. KRFÍ var nokkuð sýnilegt á þessum tíma. Við vorum með mjög fjöl­ sótta hádegisfundi þar sem fram komu fyrirlesarar, umræður fylgdu í kjölfarið og þessi miðlun okkar fékk töluverða umfjöllun í samfélaginu. Þá var meiri fókus á atvinnu­ þátttökunni. Það varð auðvitað sprenging í samfélaginu frá 1960 – 1985 þegar konur fóru af Lára V. Júlíusdóttir Launaleyndin er kúgunartæki Viðtal: Hrund Hauksdóttir heimilunum og út í atvinnulífið. Verulegur skortur var á barna­ heimilum og mikið álag á fjölskyld­ um sem skapaðist vegna flókinn­ ar samþættingar vinnu og barna­ gæslu. Umræðan í þá tíð mark­ aðist mjög af þessu umhverfi.“ Hvaða kona kemur þér fyrst og helst í hug þegar jafnréttismál ber á góma? „Mér þykir Vigdís Finnbogadóttir hafa verið mjög mikilvæg fyrirmynd allra og ekki síst ungviðisins.“ Hver er skoðun þín á stöðu launamálanna? „Staðan er alls ekki nógu góð þótt margt hafi tekið stakkaskiptum eins og menntunarstaða kvenna sem er mjög góð; konur hika hvergi í þeim efnum og í dag þykir sjálfsagt að þær fari í langskólanám. Konur eru líka að sækja fram á atvinnumarkaðinum og ná stórkostlegum árangri. Það varð heilmikil vakning í jafnréttisbaráttunni árið 1975, á kvennaárinu, og ég tel að í dag séum við að uppskera það sem við sáðum til þá, sem sést t.d. á nýafstöðnum alþingiskosningum en aldrei fyrr hafa fleiri nýjar konur verið kjörnar á þing. Hlutfall kynjanna er að jafnast smám saman á þeim vettvangi; minna er um glerþök og þröskulda en áður var. En ég hef áhyggjur af launa­ muninum. Þegar ég var formaður KRFÍ fyrir um tuttugu árum var óútskýrður launamunur kvenna og karla um 18­20% og er það enn í dag. Þrætt og deilt er um mælitækin sem notuð eru við þessa útreikninga en hægt hefði verið að uppræta launamuninn fyrir löngu síðan. Málin koðna svo undir launaleynd, sem einhver launhelgi er á, og konur hafa ekki beitt sér í að ná sjálfsögðum rétt­ indum sínum á þeim vettvangi. Laun eru alltaf bundin samning­ um milli starfsmanna og atvinnu­ rekenda og fólk á auðvitað ekki að gangast undir launaleyndar­ samninga. Það verður að hugsa áður. Tökum ekki þátt í því kúgunartæki sem launaleyndin er.“ Hvernig líst þér á nánustu framtíð jafnréttismála? „Konur eru sífellt að vinna fleiri og fleiri vígi en ég vil fyrst og fremst sjá þær öðlast jafnrétti í launamálum. Ég á ekki von á öðru en að lífeyrissjóðirnir velji konur í auknum mæli í stjórnir sínar á næstu árum. Og nú höfum við fengið ríkisstjórn sem hefur sett sér markmið í jafn­ réttismálum sem er mjög lofs­ vert að hafa í sáttmálanum. Ég treysti konunum í ríkisstjórninni fullkomlega til að hamra það járn.“ Áttu skemmtilega sögu frá formannsárunum í fórum þínum? „Já, á formennskutímanum var ég barnshafandi og var mikið að vinna á Hallveigarstöðum meðan kúlan óx jafnt og þétt. Biðu sam­ starfskonur mínar á Hallveigar­ stöðum spenntar eftir barninu. Daginn sem drengurinn minn kom í heiminn var 1. marz 1989 og þá tóku samstarfskonur mínar upp á því að flagga á Hallveigar­ stöðum. En fólk sem átti leið framhjá húsinu þennan dag hafði orð á því að nú væri illa komið fyrir Kvenréttindafélaginu; nú hefðu þær tekið upp á því að flagga í tilefni Bjórdagsins!“ En fólk sem átti leið framhjá húsinu þennan dag hafði orð á því að nú væri illa komið fyrir Kvenréttindafélaginu; nú hefðu þær tekið upp á því að flagga í tilefni Bjórdagsins!“ Við hvöttum konur markvisst til þess að vera virkari í stjórnmálum og héldum fundi með þingkonum og þeim sem sýndu áhuga á stjórnmálum.

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.