19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.2007, Qupperneq 21

19. júní - 19.06.2007, Qupperneq 21
Inga Jóna Þórðardóttir var for- maður KRFÍ á árunum 1992 – 1995. Hún er viðskiptafræðingur að mennt og er stjórnarformaður bæði Leikfélags Reykjavíkur og Metans hf, auk þess sem hún sinnir ýmsum sjálfstæðum verkefnum. Hvaða nöfn íslenskra kvenna koma þér í hug þegar orðið jafn- réttismál ber á góma og hvers vegna? „Frumherjarnir Bríet Bjarn­ héðinsdóttir, stofnandi KRFÍ, Þorbjörg Sveinsdóttir og Ólafía Jóhannsdóttir sem beittu sér mjög fyrir pólitískum réttindum og rétti kvenna til menntunar. Brautryðjendur og fyrirmyndir hafa alltaf verið mikilvægar í jafnréttisbaráttunni. Auður Auðuns var fyrst kvenna til að ljúka embættisprófi í lögum og fyrst kvenna borgarstjóri og ráðherra og lagði m.a. mikla áherslu á réttindi kvenna í hjú­ skaparmálum. Auður Eir Vilhjálmsdóttir var fyrst til að hljóta prestsvígslu og þurfti að berjast mikið fyrir rétti sínum og ruddi brautina. Ragnhildur Helgadóttir varð önnur í röðinni til að gegna ráðherradómi. Frá hennar langa pólitíska ferli má nefna baráttu hennar fyrir því að tryggja öllum konum rétt til fæðingarorlofs. Inga Jóna Þórðardóttir Við stefnum á fullt jafnrétti kynjanna Viðtal: Hrund Hauksdóttir Svava Jakobsdóttir var þing­ maður og beitti sér fyrir ýmsum jafnréttismálum m.a. jöfnum launum. Hún hafði jafnframt mikil áhrif á jafnréttisbaráttuna með skrifum sínum, sögum og leikverkum.“ Þú varðst formaður árið 1992; hvaða mál voru efst á baugi í jafnréttismálum í þjóðfélaginu á þeim tíma? „Á þessum árum var mikil umræða um ofbeldi gegn konum og meðferð mála í réttarkerfinu því tengt. Samtök um kvenna­ athvarf voru að slíta barnsskón­ um og heimilisofbeldi mjög í sviðsljósinu og sömuleiðis um­ ræðan um kynferðisofbeldi og stofnun Stígamóta. Umræðan var að mörgu leyti á byrjunarstigi og krafðist mikils hugrekkis þeirra sem gengu fram fyrir skjöldu. Við tók síðan mikil vinna við að koma á réttarbótum og ekki síður við­ horfsbreytingum almennt í þjóð­ félaginu. Á þessum tíma var mikið fjallað um þátttöku kvenna í at­ vinnulífinu, hlut þeirra í fyrir­ tækjarekstri og stjórnun og að sjálfsögðu launamisrétti kynjanna. Við lögðum áherslu á sterkari hlut karla í jafnréttisbaráttunni og á landsfundi KRFÍ 1992 kom ákvæði inn í stefnuskrána um fæðingarorlof fyrir feður. Á formennskuárum mínum var í undirbúningi þriðja heimsráð­ stefna Sameinuðu þjóðanna um málefni kvenna sem haldin var árið 1995 í Beijing í Kína og KRFÍ tók fullan þátt í því. Umræðan um mannréttindi var víðtæk – kvenréttindi eru mannréttindi – og við tókum þátt í að stofna Mann­ réttindaskrifstofuna. Alþjóðlegt samstarf var töluvert og samstarf og ráðstefnur norrænna kvenna­ samtaka.“ Hvað getum við gert betur í dag, þ.e. hverjar ættu höfuð- áherslurnar að vera að þínu mati? „Launamunur kynjanna er það sem allir þurfa að taka höndum saman um að útrýma. Sú barátta á að vera háð á jákvæðum og hvetjandi nótum. Fyrirtæki þurfa að setja sér markmið og fram­ fylgja þeim. Það þarf jafnframt að hvetja konur áfram í atvinnu­ rekstri og gera þær sýnilegri sem stjórnendur. Ég tel ennfremur að til að hægt verði að hækka laun í hefðbundnum kvennastéttum þurfi að gera kerfisbreytingar. Nýsköpun í opinberum rekstri á því að vera baráttumál kvenna. Virðing fyrir einstaklingnum er það sem jafnréttisbaráttan grundvallast á. Ýmis teikn eru á lofti um að virðing fyrir friðhelgi og rétti einstaklinga fari dvínandi. Ofbeldi, klámvæðing, nútímasam­ skiptamöguleikar og breytt gildis­ mat eru þættir sem jafnréttis­ barátta samtímans þarf að huga að. Jákvæð og traust sjálfsmynd bæði stelpna og stráka og gagn­ kvæm virðing í mannlegum sam­ skiptum eru lykilatriði í jafnréttis­ baráttunni.“ Hvert stefnum við? „Við stefnum á fullt jafnrétti kynjanna. Kvenréttindafélag Íslands á enn verk að vinna. Það hefur verið styrkur félagsins að innan vébanda þess starfa konur (og karlar) úr öllum stjórnmála­ flokkum og starfsstéttum þjóð­ félagsins. Þar leggja menn til hliðar flokkspólitísk deiluefni og sameinast um aðalatriðið: Jafn­ rétti karla og kvenna. Ég vona að það verði áfram aðalsmerki félagsins.“ Á þessum árum var mikil umræða um ofbeldi gegn konum og meðferð mála í réttarkerfinu því tengt. Samtök um kvennaathvarf voru að slíta barnsskónum og heimilisofbeldi og viðbrögð við því mjög í sviðsljósinu og sömuleiðis umræðan um kynferðisofbeldi og stofnun Stígamóta. Fyrirtæki þurfa að vera virk í því að setja sér markmið og framfylgja þeim. Það þarf jafnframt að hvetja konur áfram í atvinnurekstri og gera þær sýnilegri sem stjórnendur. 21

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.