19. júní


19. júní - 19.06.2007, Page 30

19. júní - 19.06.2007, Page 30
0 stend ég upp, banka í borðið og segi við hana si svona: „Ég er miður mín að hlusta á þennan lestur úr bók sem ég ætlaði að kaupa en mun ekki gera. Að lesa svona kafla á jólavöku Kvenrétt­ indafélagsins finnst mér óviðeig­ andi. Sumir bera sár í hjarta sínu. Af þessum fundi fór ég særð og vinkonurnar báðar og sjálf­ sagt fleiri. Þetta er það eina sem mér finnst hafa borið skugga á í starfi mínu með félaginu. Hún gat valið eitthvað annað af því að þetta var jólafundur. Á seinni árum hafa þessar konur svo gefið sig fram og lýst því hversu fárán­ legt það var að senda þær burtu á þennan hátt því víða voru braggar og tjaldbúðir hermanna við tún­ fótinn á bæjunum sem þær voru sendar á.“ Særindi Sveinbjargar eiga sér skýringar í hennar eigin sögu. Á stríðsárunum trúlofaðist hún ungum breskum flugmanni, Maurice Woodward. Hann var kallaður út og vildi að Sveinbjörg fylgdi sér og byggi hjá foreldrum sínum. Þau ætluðu að gifta sig en hún var ófrísk og mjög veik og læknir hennar réð henni frá því að fara. Sveinbjörg lamaðist fyrir neðan mitti í kjölfar fæðingar­ innar og lá lengi á Landakoti. Hittust aftur eftir þrjátíu og fimm ár Hún og Maurice skrifuðust á en að lokum gafst hún upp og skrifaði og sagðist ekki myndi koma til hans. Heilsa hennar var það slæm. Hún lofaði hins vegar að koma með dóttur þeirra og sýna honum seinna meir. Meðan á þessu stóð leitaði hún mikið í kaþólsku kirkjuna við Landakot. Nunnurnar fóru stundum með hana þangað yfir svo hún gæti beðist fyrir. Síðan þá hefur henni verið hlýtt til kaþólsku kirkjunnar en trúin er veigamikill þáttur í lífi þessarar merku og æðrulausu konu. Eftir þrjátíu og fimm ár kom Maurice svo í heimsókn til þeirra mæðgna með alla fjöl­ skylduna og svo vel tókst til að miklir kærleikar tókust með báð­ um fjölskyldum. „Í kringum það var alltaf þessi fegurð og kærleikur og aldrei fóru ljót orð þar á milli. Ég hef aldrei þurft að kvarta,“ segir hún. „Ég hef alltaf verið svo heppin í lífinu því ég hef alltaf gengið með góðu fólki, átt góða húsbændur og verið umkringd góðu samferðarfólki eins og maður er búinn að þramma. Trúin hefur alltaf verið mitt akkeri.“ En það er ekki bara trúin sem hefur veitt Sveinbjörgu styrk. Hún hefur svolítið aðra lífssýn en flestir. „Ég er svona tveggja heima kona,“ segir Sveinbjörg. „Ég hef alltaf verið næm og ég skynja ýmsa strauma í kringum fólk og ég hef séð svipi látinna. Í gegnum árin hefur oft verið eins og hvíslað að mér hvernig best sé að bregðast við ýmsu og mig dreymir einnig fyrir daglátum.“ En það er komin tími til að kveðja einstaka manneskju sem með hlýju sinni og vakandi anda hlýtur að hafa djúp áhrif á hvern þann sem kynnist henni. En að lokum er ekki úr vegi að spyrja hvernig henni finnist íslenskar konur standa í dag? „Ég er mjög ánægð með konur í dag, sérstaklega hversu dug­ legar þær eru að afla sér mennt­ unar. Konur í dag eru hámennt­ aðar og hafa orðið forsetar, ráð­ herrar og hvað nú er. Mér finnst þó að þær þurfi að fara hægt í suma hluti. Íhuga vel skrefin áður en þau eru stigin. Við erum mæður og það er svo djúp til­ finning. Ég er hins vegar með því að við fáum full réttindi og stönd­ um ekki alltaf þrepi neðar en karlar. Ég vil bara fá að óska Kvenréttindafélaginu bjartrar framtíðar og að konur haldi áfram að berjast fyrir betri kjörum.“ Barnabörnin á yngri árum.

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.