Gerðir kirkjuþings - 1972, Page 4
Þinginu barst kveðja og árnaðaróskir frá forseta íslands
og frú hans.
Þingraenn sátu boð biskupshjónanna mánudaginn 30. október
og miðVikudaginn 1. noveraber voru þeir boðnir til kirkjumála-
ráðhérra og frúar hans.
Sunnudaginn 29. október bauð biskup þingmönnum til Skálholts1.
Flutti hann messu í kirkjunni raeð aðstoð þingmannanna Ásgeirs
Magnússonar, Gunnlaugs Finnssonar og Ástráðs Sigursteindórssonar>
en sr. Pétur Sigurgeirsson, vígslubiskup, þjónaði með honum fyrir
altari»
Skolastjóri, kennari og netnendur Skálholtsskóla voru viðstaddir
messuna* Að lokinni messu og hádegisverði skoðuðu þingmenn undir
leiðsögn skólastjórans, sr. Heimis Steinssonar, og húsameistarans,
Þorvalds Þorvaldssonar, húsakynni skólans, sem eru í smíðumi og
einnig það bráðabirgðahúsnæði, sem skólinn er starfræktur í þetta
fyrsta starfsár sitt.
Þinglausnir voru föstudaginn 3. nóvember að kvöldi. Hafði
þingið þá haft til meðferðar og afgreitt 27 mál, svo sem rakið er
hér á eftir. Auk þess hafði allsherjarnefnd fjallað um skýrslu
kirkjuráðs og skilað um hana áliti, sem þingið samþykkti. Þá var
nokkrum fyrirspurnum beint til biskups, eins og frá er skýrt síðast
í þingtíðindum þessum.
Málin eru tekin hér, eins og venjulega, í sömu röð og þau
komu á dagskrá fyrst og eins og þau voru lögð fyrir af flutnings-
mönnum. Um hvert þingmál fóru fram tvær umræður, eins og þingsköp
mæla fyrir, hin síðari þegar nefnd hafði um það fjallað og skilað
aliti smu. Að lokinni umræðu um álit nefndarinnar var málið
afgreitt með þeim hætti, sem hér greinir.