Gerðir kirkjuþings - 1972, Side 14
1972
8. Klrkjuþlng
4. mál
Frh.
a) 2.gr. laganna orðist svo:
Sóknarnefnd skal halda að minnsta kosti einn almennan
safnaðarfund ár hvert til að ræða um kirkjuleg málefni
safnaðarins. Aukafundi skal halda, þegar meiri hluti
sóknarnefndar fer fram á það.
Sóknarnefndin kýs sér oddvita úr sínum hópi, en að öðru
leyti skipta nefndarmenn störfum með sér. Oddviti boðar
fundi og stýrir þeim. Fundur er lögmætur, ef 2/3 sóknar-
nefndarmanna sitja hann, enda hafi hann verið boðaður með
nægilegxom fyrirvara. Sóknarprestur og safnaðarfulltrúi
skulu starfa með sóknarnefnd og sitja fundi hennar og hafa
þar málfrelsi og tillögurétt*
b) 4.gr. laganna orðist svo:
Sóknarnefndarmenn eru 3 í sóknumj sem færri hafa sóknarmenn
en 500j ella 5> unz tala sóknarmanna er 1000. Kjósa skal
tvo menn til viðbótar í sóknarnefnd fyrir hver full tvö
þúsund sóknarmanna, sem við bætast. Þó skulu aldrei fleiri
í sóknarnefnd en ellefu alls. Kjósa skal jafnmarga vara-
menn, sem taka sæti í forföllum aðalmanna.
c) 6.gr. laganna orðist svo:
Kosningin gildir til fjogurra ára. Á fyrsta aðalsafnaðarfundi
eftir að lög þessi öðlast gildi, skal kjósa sóknarnefndir eftir
þeim í öllum sóknum. Að tveimur árum liðnum skal minni hluti
kjörinna nefndarmanna, svo og varamanna, ganga úr nefndinni og
ræður hlutkesti, en hinn hlutinn að fjórum árum liðnum.
Samkvsamt þessu fara síðan ávallt hinar tvær deildir nefndar-
manna frá annað hvert ár á víxl.
d) l6.gr. laganna orðist svo:
Á aðalsafnaðarfundi skal kjósa einn safnaðarfulltrúa fyrir
sóknina og annan til vara til fjögurra ára í senn. Á fyrsta
aðalsafnaðarfundi eftir að lög þessi öðlast gildi skal kjósa
safnaðarfulltrúa og varamann hans. Um kosningu þeirra og
kjörgengi gilda sömu reglur og um sóknarnefndarmenn.