Gerðir kirkjuþings - 1972, Side 15

Gerðir kirkjuþings - 1972, Side 15
1972 8» Klr.kjuþlng 5 • mál Frumvarp tll samþykktar um fermingarundirbúning og fermlngu. Frsm. sr. Bjarni Sigurðsson. l.gr. Markmið fermingarfræðslunnar er að vekja og glæða trúar- og siðgæðisvitund barnanna, laða þau til samfélags við Krist og til fullrar þátttoku í lífi kirkjunnar, svo að þau fái til- einkað sér þann frelsandi boðskap, sem felst í fagnaðarerindi Krists, og að hann megi verða leiðtógi lífs þeirra. 2 .gr. Lögð skal sérstök áherzla á nokkur grundvallaratriði varðandi kunnáttu barna undir fermingu. Börnin skulu kunna að minnsta kosti þessi atriði: 1) Signingu., 2) Faðir vor, 3) Blessunar- orðin, 4) Boðorðin 10 ásamt kærleiksboðorðinu mikla og gullvægu- lífsreglunni, 5) Trúarjátninguna, 6) Innsetningarorð skírnar- og altarissakramentis. 3-gr. Börnin skulu kunna 35 valdar ritningargreinar hið minnsta og a.m.k. tíu til fimmtán sálma úr sálmabók kirkjunnar. 4.gr. Börnin skulu frasdd rækilega um þessi atriði: 1) Biblíuna, 2) Líf og kenningu, dauða og upprisu Krists, 3) Sakramentin, 4) Bænina* 5) Kirkjuna og kirkjuárið, 6) Guðsþjónustuna,, sálmabókina, Passíu sálmana og bænabók, 7) Meginatriði trúar- og siðalærdóms hinnar evangelisk-lúthersku kirkju, 8) Kristniboð heima og erlendis. 5-gr. Nánar skal kveðið á um framangreind atriði og annað, er til greina kemur, í námsskráj er kirkjuráð setur í samræmi við ofangreindar meginreglur. Kveðið sé þar m.a. á um úrlausnar- efni er biskup leggi fyrir árlega og fái niðurstöðu þess í hendur Frh.

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.