Gerðir kirkjuþings - 1972, Page 19
1972
8. Kirk.juþing
7 • mál
T i 1 1 a g a
til þingsályktunar um tekjustofna safnaða.
Plutt af biskupi.
Kirkjuþing minnir á þá staðreynd, að lögmæltar sóknartekjur
nægja engan veginn til brýnna þarfa safnaðanna í landinu.
Auk þess skal á það bent, að kirkjugjaldið er persónuskattur,
en aðrir slíkir skattar hafa nú verið úr lögum felldir.
Þess vegna ályktar Kirkjuþing, að fyllsta nauðsyn sé á því,
að fram fari nú þegar gagnger athugun þessa máls í því skyni
að finna og lögfesta tekjustofna, er tryggi söfnuðum þjóð-
kirkjunnar eðlileg fjárráð til starfsemi sinnar.
Vísað til löggjafarnefndar. Frsm. hennar í málinu
var Gunnlaugur Finnsson. Við 2. umræðu var áliti
nefndarinnar vísað til hennar aftur til frekari at-
hugunar.
Endanlegt álit hennar var samþykkt og var það
svohljóðandi:
Þar sem heildarlöggjöf um opinber gjöld er nú í ýtarlegri endur-
skoðun, felur Kirkjuþing kirkjuráði að fylgjast með þróun almennrar
skattheimtu í landinu og gera tillögur til löggjafans um gjald-
stofn til kirkna, er sjálfkrafa breytist með breyttu verðlagi, og
tnyggi söfnuðum þjóðkirkjunnar eðlileg fjárráð til starfsemi sinnar.
Þess sé gætt eftir föngum, að varðveitt sé sjálfsforræði safnaða
í þessum efnum.
Leitað sé álits safnaða um þetta mál áður en það verður endanlega
afgreitt..