Gerðir kirkjuþings - 1972, Page 25

Gerðir kirkjuþings - 1972, Page 25
1972 8. Kirkjuþing 13. mál T 1 1 1 a g a tll þingsályktunar um d.jáknaþ.jónustu. Flutn.m. sr. Pétur Sigurgeirsson, vígslubiskup. Þar sem svo hagar til, að skortur er á prestum til starfa í prestaköllum dreifbýlis í landinu, vill Kirkjuþing hvetja til þess, að reynt verði að fá djákna og safnaðarsystur til safnaðarstarfa. Með skírskotun til þess, að djáknaembættið gæti verið veigamikill þáttur safnaðarstarfsins, vill þingið beina þeim eindregnu tilmælum til biskups og kirkjuráðs, að framhald verði á mótun þess embættis í kirkju vorri. Vísað til allsherjarnefndar. (Frsm. sr. Trausti Pétursson). Nefndin lagði til, að ályktunin væri samþykkt með lítilli breytingu, svo hljóðandi: Þar sem svo hagar til, að skortur er á prestum til starfa í prestaköllum dreifbýlis í landinu, vill Kirkjuþing hvetja til þess, að reynt verði að fá til safnaðarstarfa djákna og safnaðarsystur, sem hlotið hafa nauðsynlegan undirbúning. Með skírskotun til þess, að djáknaembættið gæti verið veiga- mikill þáttur safnaðarstarfsins, vill þingið beina þeim eindregnu tilmælum til biskups og kirkjuráðs, að framhald verði á mótun þess embættis í kirkju vorri.

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.