Gerðir kirkjuþings - 1972, Page 31
1972
8. Kirkjuþlng
19» mál
T 1 1 I a g a
tll þingsályktunar um klrkjuhjálp.
Flutn.m. frú Jósefína Helgadóttir.
Kirkjuþing haldið 1972 ályktar, að koma beri á fót sérstakri
kirkjuhjálp við guðsþjónustur í kirkjum landsins.
Kirkjuhjálp þessi felur í sér, að tekið sé á móti kirkjugestum
í anddyri kirkju, þeim réttar sálmabækur og vísað til sætis.
Vísað til allsherjarnefndar. (Frsm. Þórður Tómasson).
Nefndin lagði til, að ályktunin væri orðuð svo, og
var hun samþykkt þannig:
Kirkjuþing haldið 1972 ályktar, að koma beri á stofn sérstakri
kirkjuþjónustu við messur í kirkjum landsins. Kirkjuþjónusta
þessi felur í sér m.a. að tekið sé á móti kirkjugestum í for-
kirkju, þeim réttar sálmabækur og vísað til sætis.
Kirkjuþingið minnir jafnframt á nauðsyn þess að skipuleggja
starf í söfnuðunum, sem miðar að því að auðvelda gömlu og
lasburða fólki kirkjuferðir.
Kirkjuþingið felur biskupi að koma þessu máli til presta og
sóknarnefnda til framkvæmdar.