Öldrun - 01.03.2002, Side 4
4 ÖLDRUN – 20. ÁRG. 1. TBL. 2002
Helga Björg er tónmenntakennari
og músíkþerapisti að mennt og er
nú að ljúka mastersnámi við
Álaborgarháskóla í Danmörku.
Greinin fjallar um músíkþerapíu
með heilabiluðum einstaklingum.
Fjallað er um hvað músíkþerapía er
og hvernig hægt er að nýta hana
með heilabiluðm einstaklingum.
Að lokum er lítillega fjallað um
könnun er Helga Björg undir
handleiðslu Jóns Snædal og
Berglindar Magnúsdóttur,
framkvæmdi á Landspítala –
háskólasjúkrahúsi Landakoti
síðastliðið vor 2001.
Músíkþerapía með heilabiluðum
einstaklingum
Í raun er hægt að segja að músíkþerapía hafi alltaf
verið til. Ef við fylgjum mannkynssögunni eins langt
aftur og skrifað er, er hægt að finna ýmsar frásagnir af
því hvernig tónlist hefur verið notuð í læknisfræði-
legum tilgangi og hvaða meðferðar áhrif hún getur haft
á fólk.
Síðustu 50 árin hefur músíkþerapían staðið sem
sjálfstæð rannsóknarfræðigrein, að hluta til sem einn
hluti af læknisfræðilegri sögu og að hluta til sem tón-
listarfræði - og tónlistarfagurfræðilegri sögu sem er of
umfangsmikið til að fara nánar út í hér.
Músíkþerapía er alls ekki nýtt fyrirbæri hér á landi
því árið 1970 var hún fyrst kynnt hér og þá af Eyjólfi
Melsted sem þá starfaði á Kópavogshæli. Síðan hafa
fleiri íslendingar útskrifast með þessa menntun, en
músíkþerapíu er ekki hægt að læra hér á landi.
Ég kaus að stunda músikþerapíu við Álaborgar
háskóla í Danmörku. Músíkþerapistanámið þar tekur 5
ár og lýkur með kandídat gráðu.
Námið skiptist niður í þrjú þverfagleg svið sem
stunduð eru öll samhliða. Má þar nefna bókleg fög eins
og almenna sálarfræði, sálgreining og sjálfssálarfræði,
geðfræði og svo ýmis tónvísindi eins og tónlistarsögu,
tónlistarsálfræði og tónlistarheimspeki. Síðan eru
verklegar greinar eins og píanóleikur bæði almennur
og klínískur, söngur og samspil þar sem kennt er á hin
ýmsu hljóðfæri. Auk þessa er svo kennd tónfræði og
hljómfræði svo einhvað sé nefnt.
Nemendur þurfa sjálfir að vera í þerapíu/meðferð
öll árin sem þeir eru í námi þar sem þeir bæði þiggja
meðferð og veita hana. Einnig fara nemendur í verk-
nám á flestum önnum námsins og kynnast þá enn
betur mismunandi viðfangsefnum músíkþerapíunnar.
Háskólinn í Álaborg er eini skólinn í Danmörku
sem býður upp á nám í músíkþerapíu og eini skólinn í
Evrópu sem býður upp á doktorsnám í músíkþerapíu,
þ.a.l. býður skólinn upp á allt það nýjasta innan þessa
geira auk þess að vera virkur í rannsóknarvinnu.
Sökum þessa er músíkþerapistadeildin mjög viður-
Músikþerapía
fyrir Alzheimers-
sjúklinga
Heilga Björg Svansdóttir
músikþerapisti