Öldrun - 01.03.2002, Síða 30

Öldrun - 01.03.2002, Síða 30
31ÖLDRUN – 20. ÁRG. 1. TBL. 2002 Dr. FRIÐRIK EINARSSON lést á Landa- kotsspítala þann 28. september s.l. á 93 aldursári. Hans hefur verið minnst sem fjölhæfs læknis og brautryðjanda, sem kom víða við á starsferli sínum. Hann afl- aði sér sérfræðiþjálfunar í almennum handlækningum og kvensjúkdómum í Danmörku, nam þvagfæraskurðlækn- ingar í Bandaríkjunum og kenndi þá sér- grein við læknadeild Háskóla Íslands um árabil og skrifaði doktorsritgerð sína á sviði bæklunarskurðlækninga á Íslandi. Hann ruddi brautina fyrir heila- og taugaskurðlækn- ingar á Íslandi. Hann kom á kraftmiklu samstarfi við grænlensku heilbrigðisþjónustuna. Sem nemandi hans minnist ég hans sem framúrskarandi kennara og mik- ilhæfs skurðlæknis (“stórkírúgs”) og þótt hann væri dagfarslega nákvæmur og formfastur, hafði hann alltaf kímnina og léttleikann með í farteskinu. Mörg ummæli hans urðu fleyg og léttu þau stundir fólks í sínu dag- lega amstri. Fyrir tímaritið Öldrun vil ég fara nokkrum orðum um brautryðjandastarf hans á sviði öldrunar- mála. Árið 1976 tók Dr. Friðrik að sér umsjón með endur- hæfingar- og langlegudeild Borgarspítalans að Hafnar- búðum. Borgaryfirvöldum hafði verið mikið í mun að sinna betur öldruðum sjúklingum í Reykjavík. Algengt var að þeir dveldu í heimahúsum við lélega heilsu og misjafnan aðbúnað og voru þeim nánast allar bjargir bannaðar með innlagnir á sjúkrahús til endurhæfingar eða til vistunar á hjúkrunarheimili. Við bættist að öll heimilisþjónusta var vanþróuð á þessum tíma. Algengt var einnig að gamalt og örvasa fólk dveldi mánuðum og árum saman á bráðadeildunum sjúkrahúsanna. Þessi vandi hafði ríkt í Reykjavík um árabil og var ein- arður vilji borgaryfirvalda undir forystu borgarlæknis að sinna því verkefni sérstaklega með því að reisa B- álmu hins nýja Borgarspítala í þeim tilgangi. Tregða komst á byggingarframkvæmdir við B-álmu og fóru yfirvöld því þá leið að reisa öldrunardeild í Hafnarbúðum. Þegar hún stóð tilbúin reyndust engir læknar á sjúkrahúsinu til- tækir að sinna því nema Dr. Friðrik, sem bauð fram krafta sína. Dr. Friðrik, þá 67 ára gamall, tók ötul- lega til starfa í Hafnarbúðum. Hann tók inn langlegusjúklinga af bráðadeildum og réði til starfa sjúkra- og iðjuþjálfa. Hann kom á náinni samvinnu við heima- þjónustu (heimahjúkrun og heimilis- hjálpina) og skipulagði hvíldarinnlagnir fyrir fólk úr heimahúsum. Sjálfur fór hann stundum í vitjanir heim til fólksins, til að kanna aðstæður og tala við aðstand- endur. Neyðin var stór og mikill þrýstingur var að taka fólk ekki heim aftur úr þessum hvíldarinnlögnum. Sem dæmi má nefna að útbúið var sérstakt plagg í Hafnar- búðum fyrir aðstandendur sjúklinga úr heimahúsum til að skrifa undir að samþykkja að taka gamalmennið heim aftur á tilsettum tíma, að viðlögðum drengskap. Dagdeild var hrint af stokkunum en hún létti nokkuð undir með að gera öldruðu fólki kleift að búa lengur heima. Dr. Friðrik barðist fyrir bættum hag aldraðra í Reykjavík með erindum og greinaskrifum í blöð. Hann braut blað í viðhorfum til líknarmeðferðar á Íslandi með því að þýða og kynna ,,Mit Livs Testament’’. Á ensku kallast það ,,Living Will’’ og var síðar þýtt á íslensku sem ,,líknarskrá’’. Líknarskrá voru fyrirmæli sjúklings um sína eigin meðferð við lífslok. Hug- myndin var að einstaklingurinn gæti ákveðið fyrirfram og áður en hann hugsanlega yrði ósjálfbjarga og gæti ekki tjáð sig eðlilega, mælt svo fyrir á löggildan hátt að ekki mætti nota lífslengjandi aðgerðir við sig s.s. gjör- gæsluvélar, magaslöngur eða næringu í æð, við þær kringumstæður. Dæmin voru, því miður, alltof mörg á þeim tíma um að lífi var haldið í sjúklingum á sjúkra- húsunum löngu eftir að því var raunverulega lokið. Hér Minningarorð um Dr. Friðrik Einarsson Ársæll Jónsson, öldrunarlæknir

x

Öldrun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldrun
https://timarit.is/publication/1137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.